Sunday, May 13, 2012

Ritari rís upp úr öskustónni


Ok ok ok ok. Fréttaflutningur af afrekum og æfingum Afrekshópsins hefur verið til háborinnar skammar! Ritari hefur það þó sér til varnar að hann hefur verið upptekinn við önnur mikilvæg málefni. En kræst, öllu má nú ofgera! Djízúss.
Þar sem Afrekshópurinn er með eindæmum ofvirkur og rúmar 6 vikur er ansi langur tími í fréttaflutningsleysi ætla ég að taka mér það bessaleyfi að setja þetta fram á örfréttaformi. Hefst þá fréttaflutningur:
  • Tvíeykin Þórdís + Steinunn og Rúnar + Pétur héldu uppi heiðri hópsins í Víðavangshlaupi ÍR á sumardaginn fyrsta og þyrluðu upp rykinu framan í smettin á hinum 442 hlaupurunum. Þeir máttu muna fífil sinn fegurri. Sko, þessir 442.
  • Afrekshópurinn ÁTTI sviðið í Vormaraþoni Félags maraþonhlaupara. Vöffin tvö, Viktor og Vigfús voru í sviðsljósinu í heilu þoni enda tóku þeir sig gríðarlega vel út á skeiðinu. Restin af hópnum (svo gott sem) sýndi hinum hlaupurum borgarinnar hvernig ætti að hlaupa hálft maraþon og tókst ÖLLUM vel upp.
  • Nú, hópurinn heldur uppi alþjóðstefnu sinni og heldur merkjum sínum uppi í öllum heimshornum. Nú var komið að Hvíta-K, Hekluspaðanum, Grindarvíkurneglunni Christine og bróður henna Kaupmannahafnar-Tomma til að sýna vambmiklum Hamburgarbúum hvernig maður hleypur maraþon. Sú ferð var til fjár. Danni keypti sér fokk töff sólgleraugu og Hekluspaðinn tók í stýrið á Citroen. Síðast fréttum við af honum upp í Brimborg.
  • Gríngaukarnir og spéfuglarnir Palli og Laddi eru á fullu að bústa upp sumarstemmarann í hópnum og selja Afrekshlaupurum hlaup sumarsins. Ég held að þeir séu á prósentum hjá hlauppunkturis því þeir flippa skuggalega oft upp umræðum á smettisflettunni um hlaupamöguleika sumarsins. Ég er samt ánægð með þessa frammistöðu. ÞAÐ ÞARF EINHVER HALDA UPPI STEMMARANUM - KOMASOOOOO
  • Icelandair hlaupið var ekki laust við Afreksklanið. Ógisslega margir sem hlupu og fengu sveppasúpu og banana í verðlaun. Vei.
  • Siggi Svifnökkvi og Jakka-Jói fóru til Emmoríku til að sýna þessum útlensku hamborgararössum hvernig maður hleypur 80 km trail hlaup. Þeir gerðu það með  Cep sokka í annarri og Hoka skó í hinni. Hold kæft hvað þetta var ísí písi hjá þeim. Jói hljóp svo hratt að hárið fauk af! Ok, reyndar voru síðustu 40 km hjá Sigga Svifnökkva mjög erfiðir að eigin sögn.... en ég meina, það voru „bara“ síðustu 40 km þannig að hann hafði þetta nú af kallinn.
  • Afrekshópurin var narraður á æfingu uppi á skaga. Akranes-Magnús er klókur maður og náði meira að segja að plata hersinguna upp á Akrafjall í hundrað metrum á sekúndu og mínus fjórum gráðum. Æ, hvernig læt ég, þetta eru kjöraðstæður fyrir Afrekshópinn.
  • Hvíti-K er orðinn löggildur meðlimur í Félagi 100 km félaga á Íslandi. Meðlimur #51.  Afrekshópsmeðlimir eru 15,38% meðlima þessa klúbbs.
  • Þaratöflubóndinn Beinhimnubólgu-Bjössi er bara Bjössi núna. Í besta falli Bjössi Boot Camp. Ekki mikið meira en það.
  • Nokkrir rokþyrstir meðlimir fóru í Neshlaupið í gær! Steinunn Þórdísarmamma, Sigurður Ólafs, Dagrún djammari, Anna Dís, Þórdís þruma, Eva elding, Hörður, Siggi Svifnökkvi, Viktor  og Haraldur. Þau stóðu sig vel í fellibylnum. Nánari upplýsingar á hlaup.is
Til að loka þessu örbloggi þá ber að geta þess að Esjuæfingar eru hafnar og utanvegatjúttið komið í góðan farveg. Ergo, SUMARIÐ ER FREAKING KOMIÐ!     


Kveðja,
HT Johnson