Já halló. Er einhver þarna?
Ég var nefninlega að pæla í að blogga eitthvað um afdrif Afrekshópsins. Þessi síða bara dó án þess að nokkur spyrði hana um leyfi til þess sko ......
Síðan síðasta færsla fór í loftið hefur ýmislegt gerst! 3 og 1/2 mánuður er bara töluverður tími! Rúmlega sumar.... 1/3 af meðgöngu hjá hómó sapíjéns, hæfilegt maraþon æfingatímabil.....þannig að það getur ekki annað verið en að það sé margt í fréttum.
Meðlimir hópsins hafa lagt að baki hundruð og jafnvel þúsundir kílómetra (sko, samtals bara til að hafa það á kristaltæru) þetta sumarið. Hitasvitaofuráfangahlaup á sléttum Andalúsíu, Laugavegshlaupið, Vesturgata, Jökulsárhlaupið, Reykjarvíkurmaraþonið, Ofurhlaup umhverfis Hvíta Fjallið í Fransmannalandi og Ítalíu .... allt eru þetta hlaup þar sem Afrekshópurinn tjaldaði sínum glæstu hlaupurnum. Slíkir gæðingar eru ekki á hverju strái og því má Daníel vera nokkuð montin með þessa fyrirtaks hlaupara sem hlaupa undir hans stjórn.
Nú, en að æfingu gærdagsins - það verður að skjalfesta hana.
Mættir: Margir... en samt ekki eins margir þegar best lét í sumar
Staður: Höllin
Stund: klukkutíma í kvöldmat
Að vanda var hefðbundin ríkisupphitun tekin enda eru ríkisleiðir í hávegum hafðar innan vébanda Afrekshópsins.... samanber ríkisleiðina á Esjunni og ríkishringinn í Heiðmörk. Það er ekkert sniðugt að brjóta upp mynstrið og gera eitthvað allt öðruvísi þegar kemur að upphitun. Það gæti raskað ró til dæmis Reynis um heilan helling. Hann gæti ekki á sér heilum tekið eftir slíka uppákomu og sprettirnir hjá kappanum gætu bara farið í vitleysu vegna ójafnvægis. Nei, ríkishringurinn og Marteinn Mosdal er það sem blífar.
Þegar í höllina var komið flettu Afrekshópsmeðlimir af sér úti-klæðum og í ljós komu helköttaðir og vel þjálfaðir hlaupaskrokkar sem svo sprönguðu sperrtir um höllina; fyrst til þess að teygja og því næst til að hlaupa nokkrar hraðaaukningar.
Ég hef sagt það áður og segi það en - þvílíkur glæsileiki, þvílíkur stíll.. Þessi tignarleiki er sjaldséður á fróninu.
Sprettirnir gengu vel. Afrekshópsmeðlimir gerðu þetta með miklum myndarbrag og kláruðu tilsettan skammt fumlaust.
Næsta æfing er á morgun. Það er æskilegt að mæta ætli menn að gera sig breiða í Pávereidhlaupinu í næstu viku.
Með vinsemd og virðingu,
Helga Thoris
No comments:
Post a Comment