Stund: korter í kvöldmat
Mættir: Allir Afrekshópsmeðlimir í himinsheimisgeiminum NEMA Laddi og Jakka-Jói.
Það var fallegt um að litast við Laugardalshöllina klukkan rúmlega sex í dag. Fagurgul birta vísaði manni veginn að innganginum. Jú, nokkrir Afrekshópsmeðlimir voru mættir í jökkunum alræmdu. Reyndar var hlutfall skærgulu jakkanna svo hátt í dag að það var bent þær örfáu, púkalegu hræður sem voru í "hversdagslegum" hlaupaklæðum. Það var nokkuð ljóst að þessar hræður voru einum flokki neðar í dag. Það var svo gott sem ekki yrt á þær.
Mér hlotnaðist sá gríðarmikli heiður (þrátt fyrir að vera töturslega klædd og laus við skærgula birtu) að leiða hópinn nýja leið. Ný ættleiddur Alheimshöfðingi og viskukonungur Afrekshópsins, Mjólkursýru-Janus, otaði því nefninlega að Hvíta-Kenýa að það væri nú bara ekkert sérstaklega sniðugt að plampa í sömu sporunum tvisvar sinnum í viku, viku eftir viku, mánuð eftir mánuð, ár eftir ár og áratug eftir áratug ..... hann ráðlagði Hvíta-Kenýa að leiða hópinn út fyrir þægindasvið sitt hvað upphitun varðar. Ég tók við forystukyndlinum og stóð mig gríðarlega vel að eigin mati! Ég fór ótroðnar slóðir, og ef þær voru ekki ótroðnar, þá fór ég á móti straumnum ..... mínus síðasta kílómetrann .... en það telst ekki með .... aþþíbara. Ég tók reyndar eftir því og færi hér með til bókar að það voru margir íhaldsgaukar sem gátu ekki setið á strák sínum í lok upphitunar og fóru sunnan megin við höllina í stað þess að fylgja mér norðanmegin. Þeir sem fá plús í kladdan fyrir að fylgja mér eru:
- Hvíti-Kenýa
- Óli
- Arnór
- Albert
- Ástarhnoðrarnir Eva elding og Margeir Hekluspaði
Nú, hvað æfinguna varðar þá gekk hún vel. Almúginn átti að taka 8 - 10 sinnum 300 metra spretti en maraþondeildin 20 x 200 metra spretti. Létt verk og löðurmannlegt.
Mjólkursýrudeildin var auðsjáanlega með Janus yfir hausamótunum því það var enginn með gubb í hálsi og í andnauð að mér virtist í lok æfingar. Landhelgis-Höskuldi fannst ég hlaupa óþarflega greitt og hrópaði að mér í örvæntingu (þegar hann gerði heiðarlega tilraun til að fara fram úr mér): "Þú ferð svo hratt Helga!" Og ég sagði: "Óld njús kappi. Þú skalt bara passa þig". Og með því sama fræsti ég fram úr kappanum og sýndi honum hvar Davíð keypti ölið. Ferli hans er augljóslega lokið. [Ef lesendur þessa bloggs hafa ekki tekið eftir því að þá tekur höfundur sér það bessaleyfi að hagræða sannleikanum endrum og sinnum. Lesendur verða að meta hvenær þeir telja að svo sé].
Einnig ber að nefna að Hvíti-Kenýa og Margeir Hekluspaði voru í eitilharðri samkeppni. Samkeppnin var svo gríðarhörð og baráttumikil að Afrekskonungurinn beitti öllum brögðum til að létta sig.... til að svífa fram úr Hekluspaðanum..... í miðjum klíðum henti hann af sér 100 gramma skónum og smeygði sér í skó sem vigtast ekki því þeir eru svo léttir. Allt til að vinna spaðann. Ég veit reyndar ekki hvor þeirra vann. Enda er mér slétt sama. Það var sýran sem átti hug minn allan í dag.
Í lokin ber að nefna að:
- Steinurnar ætla í rauðvínsmaraþon
- Reynir er í fýlu eftir æfingu gærdagsins
- Siggi Svifnökkvi er montrass. Montaði sig m.a. af svifnökkvunum í snjónum áðan
- Þórdís á nýja súrefnissokka
- Óli keypti ekki Afreksjakka. Utandeildarmaður.
- EmmessÍsBjössi borðaði hnetusmjör og súkkulaði fyrir æfingu í dag. Má það?
HT Johnson
No comments:
Post a Comment