Mættir: rjóminn af Afrekshópnum
Staður: Laugardalslaug
Stund: Frekar seint sko, svona miðað við frídag..... átta núll núll. Þetta kallar maður að sofa út.
Í gær voru nýir tímar. Hvíti-Kenýa er búinn að koma sér upp kladda. Já. Ég er ekki að djóka. Sorrí þið sem ekki mættuð. Þið fenguð öll stórt og feitt F. Þegar ég mætti á svæðið kl. 7:58 var merkt við mig í kladdanum. Mér leið eins og ég væri sjö ára í Melaskóla .... Það var engin dúndurmæting í gær þannig að það fengu aaaaaaaaansi margir áður téð F. Alls konar ólíðandi afsakanir í gangi eins og yfir-sig-sofelsi *hóst* Beta Bronz *hóst*, ferming *hóst* Landhelgis-Höskuldur *hóst*, Akureyristjill *hóst* Siggi-Svifnökkvi og Jakka-Jói *hóst* , nárameiðsl *hóst* Laddi *hóst*.... og fleiri lame afsakanir sem teljast ekki með.
Ég er annars að reyna átta mig á þessari kladda – nýjung hjá höfðingjanum. Mér dettur einungis fernt í hug:
- Hvíti er að taka saman mætingu yfir páskahátíðina til þess að getað verðlaunað þá sem mæta best yfir þessa frídaga og gefið þeim páskaegg
- Hvíti er að reyna að finna út hver ætlar að borða mest af súkkulaði með því að sjá hverjir mæta mest og hlaupa mest og taka mest á því (sá sem gerir það er væntanlega að vinna sér inn auka súkkulaðipáskaeggskalóríuplass – ég meina, það er enginn að mæta á æfingar til neins annars, er það?)
- Hvíti vill gera vísindalega rannsókn á því hver er samviskusamasti Afrekshópsmeðlimurinn
- Hvíti er bara að þykjast að vera eitthvað valdsmannlegur
Nú, að æfingunni sjálfri. Vorboðinn Stuttbuxna-Reynir (að öllu jöfnu Íhalds-Reynir) var mættur á svæðið – í stuttbuxum. Það segir okkur ýmislegt um tíðina. Vanalega hefur hann tórað þar til sumardagurinn fyrsti rennur upp en hann gat greinilega ekki setið á strák sínum og dróg stullurnar fram í gær. Hann fær 2 sumarrokkprik fyrir það drengurinn.
Við lögðum af stað, öll vel út hvíld, enda var sofið út til 7, og fórum í átt að sjónum. Það var nefninlega blankalogn og úði í Laugardalnum og það er veðuróðum Afrekshópsmeðlimum ekki að skapi. Það var því ekki verandi í slíkri blíðu. Við viljum rok og sjórinn er helsti geymslustaður þess. Það var samt heldur rýr rokuppskera við sjóinn. Eiginlega engin...... gæfan var samt okkur í vil því við uppskárum blessunarlega sviftivinda þegar Afrekskonungurinn Hvíti-K hóf sína spretti - hann hljóp svo hratt að vindhraðinn fór upp í 13 m/s á Sæbrautinni og áður skærguli jakkinn hans var orðinn svarbrúnn því hann fræsti göngustíginn svo illilega upp að annað eins hefur ekki sést. Ég efast um að Halldóra nái að lappa upp á jakkagarminn eftir svona aðfarir.
Annars gekk æfingin vel og var helst til tíðindalítil. Ætli að það hafi ekki verið vegna fjarveru aðal skemmtikraftanna Palla og Ladda. Svo vantaði kanónur á borð við Sigga og Jóa ... og svo vantaði bara frekar marga. Krakkar, koma svo, step up your game! :D .... ég get samt sagt ykkur það að Hekluspaðinn og Eva elding eru stigin upp úr flensu, Halldóra á nýja Hoka-skó, Ingvar týndist, Viktor var meðvirkur í vali á mjög óábyrgri upphitunarleið og Hannes kom með Árbæjarskokksmeðlim í APPELSÍNUGULUM jakka á æfingu!
Með vinsemd og virðingu
HT Johnson sem ætlar að mæta á morgun á langa æfingu
No comments:
Post a Comment