Tuesday, June 7, 2011

Er Daníel í vogarmerkinu?

Mættir: Massa flottir hlauparar
Staður: Klambró
Stund: 17:15
Veðurskilyrði: Sól og ííííískaldur vindur

Stundum fara hlutirnir ekki eins og þeir eru lagðir upp. Sumt breytist án fyrirvara, sumt breytist aldrei. Hingað til hafa hlaupaplön frá háttsettum þjálfara vor haldið eins og Alþingishúsið. Þeim hefur lítið verið haggað. Þar til í gær.
Allir Afrekshópsmeðlimir mættu í mánudagssakleysi sínu á réttum tíma við Kjarvalsstaði. Flestir voru haustlega klæddir enda haustveður. Og flestir voru með ca 8-10 stykki af 500 metra sprettum á sínu plani. Afskaplega settlegt og fínt. Um leið og Daníel keyrði inn á bílaplanið á fák sínum var sem einhver upplausn ætti sér stað ... einhver múgæsingur ..... hvað var að gerast!?! ... Daníel heldur ræðu og fyrr en varir hvissast út að verðandi Laugavegshlauparar (svo gott sem allir sem mættir voru á æfingu) ættu að taka að minnsta kosti 12 spretti! Jáh! God morgen eins og gárungarnir myndu sletta fram. Allt í góður. 12 kvikindi skyldu það vera.
Nú, að þessu uppþoti loknu var haldið í venjubundna upphitun. Niður Flókó, til vinstri inn á Rauðó, til vinstri inn á Mikló, undirgöngin, Langahlíð, Valsó, Öskjó. ...... bíddu .... hvað er verið að segja ... sextán .... ha? ... Jói, hvað meinarðu? .... áður en menn og konur voru búin skrensa eftir upphitunina var aftur komin umræða um fjölda spretta. Og nú var Jói hundrað farin að blanda sér í málin og heimtaði 16 stykki!!!!!!! Hvað er að frétta. Fær maðurinn ekki nóg? Vill hann blóðbragð í munn og ælu í háls?  Daníel samþykkti þetta án þess að blikna. "Þið ofurhlauparar, þið eigið að geta þetta. Þið takið 16 kvikindi. Og þú líka Helga því þú ert í skuld" .... Já, það er skotið fast. Engum er hlíft. Það eru sko engin svik og prettir sem eiga upp á pallborðið hjá Hvíta Kenýa. Það verður aldrei liðið.
 Eftir uppþot númer tvö héldu hlauparar í laaaaaaaaaanga sprettvegferð .... einn .... tveir .... þrír ... fjórir ....... Rafn, erum við ekki búin með sex spretti? SEX?? nei Helga, það eru bara fjórir komnir ....nei, hvað meinarðu, þú ert að djóka? Nei, ég djóka aldrei ... það er rétt, Rafn er ekki djókari frekar en ég er kona jólasveinsins ... andsk .... jæja .... fimm .... ... sex ..... og ca hundrað og sjö árum síðar voru 16 í valnum. Laugavegshlaupararnir sem tóku sína 12 spretti samviskusamlega voru komnir í ofkælingarástand eftir að hafa þurft að bíða eftir að undirrituð kláraði dagskipunina.

Þegar allt kom til alls var þetta bara hin fínasta æfing. Tók vel í og maður fann fyrir þreytu í vöðvum. En, er leikurinn ekki til þess gerður? Að reyna á sig, ýta sér eins langt að mörkunum og maður ræður við? Fá blóðbragð í munn og gubb í háls ef svo ber undir? Já, þetta viljum við. Þessu sækjumst við eftir. Enda er þetta miklu betra en að hlamma sér í sófann beint eftir vinnu :)

Eftir temmilega stutt niðurskokk og umræður um svindl í hlaupum og 7-Tinda-hlaupið var haldið heim á leið. Góð æfing að baki.


Með vinsemd og virðingu,
Helga Þóra

2 comments:

  1. Snilldaræfing og sprenghlægilegt blogg Helga!!!

    ReplyDelete
  2. Hihi, reglulega góður penni Helga. Legg til að þessum pistlum verði safnað saman í bók og þeir gefnir út. Tekur alla vega Tobbu Marínós í nefið :D

    ReplyDelete