Friday, December 30, 2011

Líf í gömlum glæðum

Uss. 2 mánuðir án Afreksbloggs. Þetta er slæmt mál. Ritari þykist vera svo upptekinn að hann hefur ekki "tekið upp pennann" í 2 mánuði og einn dag.
En, 2 mánuðir eru ansi drjúgir til afreka og Afrekshópsmeðlimir hafa svo sannarlega ekki setið auðum höndum á þessum vikum.
Fyrst ber að nefna hlauparana í utanvegadeild hópsins, grindvísku neglurnar Christine og Önnu Siggu sem og þjálfara vor Daníel Smára. Þau lögðu land undir fót, ásamt stuðningsmönnum og flugu alla leið til Spánverjalands til að trítla litla 160 km í Andalúsíu. Að sjálfsögðu voru einhver vel valin fjöll inn í þeim kílómetrapakka enda eru þessir hlauparar ekkert blávatn í bransanum þegar kemur að utanvegaplampi.
Til að gera langa sögu stutta luku Danni og Christine hlaupinu á góðum tíma. Christine var þriðja konan á 23,5 klst og Danni var í 12. sæti á 21 klst. Anna Sigga þurfti því miður að láta undan vegna þrálátra hnéverkja eftir 80 km rúnt.

Afrekshópurinn átti einnig 2 fulltrúa í Njú Jork maraþoninu (eftir því sem best er vitað, endilega leiðréttið ritara ef hann fer með rangt mál). Það voru grindvísku hjónakornin Jói Júll og hundrað kílómetra skvísan María Jó. Þau voru Afrekshópnum til mikils sóma og luku sinni pligt með bros á vör, eftir því sem best er vitað :)

Nú, svo ber að nefna Powerade-hlaupaseríuna. Þar eru Afrekshópsmeðlimir engir aukvisar því hópurinn er í 4 sæti í hópakeppninni auk þess sem hann á hlaupara í fremstu víglínu í aldursflokkakeppninni. Daníel Smári getur ekki verið annað en stoltur af þessari frammistöðu. Hver veit hvað gerist á nýju ári - serían er jú bara hálfnuð.

Aðalfundur var einnig haldinn í lok nóvember þar sem fyrsta stjórn hópsins var mynduð. Ber hópurinn MIKLAR væntingar til nýju stjórnarinnar og vonast er til að epískir hlutir fari að gerast í kjölfar starfa hennar. Hún er skipuð af sómafólkinu Ingu Björk, Þórdísi og Beinhimnubólgumanninum.

Ritari hefur ekki fleiri fregnir að flytja í þetta sinnið og minnir á Gamlárshlaup ÍR sem fram fer á morgun kl. 12. Þetta er eitt af skemmtilegri hlaupum ársins að mati ritara.

Með vinsemd og virðingu og ósk um gott gengi á morgun,

Helga Þóra

1 comment:

  1. Jöss, gaman að sjá að ritarinn fann tíma í sinni þéttsetnu dagskrá til að uppfæra síðuna góðu, húrra fyrir því! :D

    ReplyDelete