Afrekshópurinn hittist við Ásgarð þennan morguninn með stefnuna á Heiðmörk.
Fljúgandi hálka á stígunum gerði út um þau plön, einungis tveir voru á broddum eða gormum, svo farinn var hringur um Garðabæ þess í stað.
Ekki var hálkan samt minni inni í bænum svo hópurinn þræddi grasbala, umferðareyjar og götur eins og við var komið.
Afrekshópur er hópur hlaupara sem æfir markvisst til að ná árangri og leggur áherslu á gæði æfinga.
Saturday, November 24, 2012
Monday, November 12, 2012
Úrslit úr powerade #2
Þá hafa úrslitin verið birt á heimasíðu hlaup.is. Úrslitin hjá okkar fólki:
24 40:22:00 Haraldur Vilhjálmsson Afrekshópur-Ármann
34 41:22:00 Viktor Vigfússon Afrekshópur-Ármann
38 41:35:00 Margeir Kúld Eiríksson Afrekshópur-Ármann
46 42:12:00 Daníel Smári Guðmundsson Afrekshópur-Ármann
59 43:19:00 Ingvi J. Ingvason Afrekshópur-Ármann

69 44:19:00 Reynir Jónsson Afrekshópur-Ármann
84 45:07:00 Eva Ólafsdóttir Afrekshópur-Ármann
93 45:54:00 Helgi Þór Harðarson Afrekshópur-Ármann
99 46:03:00 Jónína Gunnarsdóttir Afrekshópur-Ármann
104 46:28:00 Gunnar Júlísson Afrekshópur-Ármann
145 48:39:00 Daníel Karlsson Afrekshópur-Ármann
155 49:16:00 Guðmann Bragi Birgisson Afrekshópur-Ármann
178 50:11:00 Christine Buchholz Afrekshópur-Ármann
179 50:12:00 Ingvar Þór Magnússon Afrekshópur-Ármann
180 50:14:00 María Jóhannesdóttir Afrekshópur-Ármann
217 52:35:00 Anna Dís Sveinbjörnsdóttir Afrekshópur-Ármann
245 54:07:00 Gróa Másdóttiir Afrekshópur-Ármann
253 54:26:00 Sigþór Sigmarsson Afrekshópur-Ármann
276 56:00:00 Páll Helgason Afrekshópur-Ármann
288 56:57:00 Þórhallur Helgason Afrekshópur-Ármann
314 59:28:00 Ásta Snorradóttir Afrekshópur-Ármann
341 62:17:00 Vala Guðbjartsdóttir Afrekshópur-Ármann

Úrslitin í stigakeppni hópanna
Röð | Félag/klúbbur | Kyn | Hlaup 1 | Hlaup 2 | Samtals |
1 | ÍR | Karlar | 73 | 81 | 154 |
Konur | 28 | 10 | 38 | ||
Samtals | 101 | 91 | 192 | ||
2 | Afrekshópur-Ármann | Karlar | 42 | 45 | 87 |
Konur | 54 | 35 | 89 | ||
Samtals | 96 | 80 | 176 | ||
3 | Hlaupahópur FH | Karlar | 56 | 63 | 119 |
Konur | 26 | 21 | 47 | ||
Samtals | 82 | 84 | 166 |
Thursday, November 8, 2012
Powerade vetrarhlaup #2
Gulir Afrekshópsjakkar voru áberandi í hópnum í kvöld. Úrslit sett inn þegar þau eru birt.
Wednesday, November 7, 2012
All we are saying ...
... is give pace a chance.
Þessari hraðatöflu var miskunnarlaust nappað af síðu annars hlaupahóps. Ágætt getur verið að hafa hana til hliðsjónar þegar strategían fyrir næsta Powerade er sett niður. Eru ekki annars allir með strategíu eða er það bara Reynir?

Tuesday, November 6, 2012
Fyrsta innisprettæfing haustsins - 10x200m
Snögglega breytt um æfingaplan þegar leiðbeinandi styrktaræfinga forfallaðist. Góður hópur fór langa upphitun á tempóafköstum í grenjandi úrhellisrigningu og svo inn í höll í hraðaaukningar og 10 x 200m spretti, nema sumir. Þeir fóru fleiri...
Aðalfundur Afrekshópsins
Í gærkvöldi hittist hópurinn á aðalfundi, ársfundi eða hvaða nafni mætti nefna tilefnið.
Ný stjórn var kjörin, Inga öfluga steig til "hliðar" úr þriggja manna stjórn, en bauð sig strax fram til gjaldkera. Ætli megi kalla það skref að hafa stigið þrep upp, til hliðar eða niður ? Þórdís bauð sig fram aftur og Palli og Anna Lára með henni.
Skemmtinefnd, ritnefnd og Esjuhlaupsskipuleggjendur urðu til - hópurinn er allur skipaður framtakssömu fólki.
Góðri skipan hópanna var fagnað með lófaklappi.
Þjálfi flutti fyrirlestur og tók saman starf liðins árs og brýndi til dáða fyrir næsta ár. Rætt var um markmið og skipulagða þátttöku Afrekshópsins í hlaupum bæði erlendis og innanlands. Laugavegurinn 2013 á eflaust eftir að koma verulega við sögu.
Skemmtinefnd hefur þegar ákveðið jólahitting laugardaginn 17. nóv þar sem sameiginleg kolvetnahleðsla í formi fljótandi brauðs verður eitt meginþemað.
Nýbreytni verður á innanhúsæfingum á þriðjudögum í vetur þar sem skipulegar styrktaræfingar bætast við eftir sprettina. Hópurinn hefur ráðið sér íþróttakennara til að temja kroppana, herða kjarnann, styrkja skinkustrengi*, forma kúluglúta, fjórfalda fjórvöðvana, kreppa kálfana og teygja svo á öllu saman á eftir.

(*hamstrings)
G.B.Birgis.
Sunday, May 13, 2012
Ritari rís upp úr öskustónni
Ok ok ok ok. Fréttaflutningur af afrekum og æfingum
Afrekshópsins hefur verið til háborinnar skammar! Ritari hefur það þó sér til
varnar að hann hefur verið upptekinn við önnur mikilvæg málefni. En kræst, öllu
má nú ofgera! Djízúss.
Þar sem Afrekshópurinn er með eindæmum ofvirkur og rúmar 6
vikur er ansi langur tími í fréttaflutningsleysi ætla ég að taka mér það
bessaleyfi að setja þetta fram á örfréttaformi. Hefst þá fréttaflutningur:
- Tvíeykin Þórdís + Steinunn og Rúnar + Pétur héldu uppi heiðri hópsins í Víðavangshlaupi ÍR á sumardaginn fyrsta og þyrluðu upp rykinu framan í smettin á hinum 442 hlaupurunum. Þeir máttu muna fífil sinn fegurri. Sko, þessir 442.
- Afrekshópurinn ÁTTI sviðið í Vormaraþoni Félags maraþonhlaupara. Vöffin tvö, Viktor og Vigfús voru í sviðsljósinu í heilu þoni enda tóku þeir sig gríðarlega vel út á skeiðinu. Restin af hópnum (svo gott sem) sýndi hinum hlaupurum borgarinnar hvernig ætti að hlaupa hálft maraþon og tókst ÖLLUM vel upp.
- Nú, hópurinn heldur uppi alþjóðstefnu sinni og heldur merkjum sínum uppi í öllum heimshornum. Nú var komið að Hvíta-K, Hekluspaðanum, Grindarvíkurneglunni Christine og bróður henna Kaupmannahafnar-Tomma til að sýna vambmiklum Hamburgarbúum hvernig maður hleypur maraþon. Sú ferð var til fjár. Danni keypti sér fokk töff sólgleraugu og Hekluspaðinn tók í stýrið á Citroen. Síðast fréttum við af honum upp í Brimborg.
- Gríngaukarnir og spéfuglarnir Palli og Laddi eru á fullu að bústa upp sumarstemmarann í hópnum og selja Afrekshlaupurum hlaup sumarsins. Ég held að þeir séu á prósentum hjá hlauppunkturis því þeir flippa skuggalega oft upp umræðum á smettisflettunni um hlaupamöguleika sumarsins. Ég er samt ánægð með þessa frammistöðu. ÞAÐ ÞARF EINHVER HALDA UPPI STEMMARANUM - KOMASOOOOO
- Icelandair hlaupið var ekki laust við Afreksklanið. Ógisslega margir sem hlupu og fengu sveppasúpu og banana í verðlaun. Vei.
- Siggi Svifnökkvi og Jakka-Jói fóru til Emmoríku til að sýna þessum útlensku hamborgararössum hvernig maður hleypur 80 km trail hlaup. Þeir gerðu það með Cep sokka í annarri og Hoka skó í hinni. Hold kæft hvað þetta var ísí písi hjá þeim. Jói hljóp svo hratt að hárið fauk af! Ok, reyndar voru síðustu 40 km hjá Sigga Svifnökkva mjög erfiðir að eigin sögn.... en ég meina, það voru „bara“ síðustu 40 km þannig að hann hafði þetta nú af kallinn.
- Afrekshópurin var narraður á æfingu uppi á skaga. Akranes-Magnús er klókur maður og náði meira að segja að plata hersinguna upp á Akrafjall í hundrað metrum á sekúndu og mínus fjórum gráðum. Æ, hvernig læt ég, þetta eru kjöraðstæður fyrir Afrekshópinn.
- Hvíti-K er orðinn löggildur meðlimur í Félagi 100 km félaga á Íslandi. Meðlimur #51. Afrekshópsmeðlimir eru 15,38% meðlima þessa klúbbs.
- Þaratöflubóndinn Beinhimnubólgu-Bjössi er bara Bjössi núna. Í besta falli Bjössi Boot Camp. Ekki mikið meira en það.
- Nokkrir rokþyrstir meðlimir fóru í Neshlaupið í gær! Steinunn Þórdísarmamma, Sigurður Ólafs, Dagrún djammari, Anna Dís, Þórdís þruma, Eva elding, Hörður, Siggi Svifnökkvi, Viktor og Haraldur. Þau stóðu sig vel í fellibylnum. Nánari upplýsingar á hlaup.is
Til að loka þessu örbloggi þá ber
að geta þess að Esjuæfingar eru hafnar og utanvegatjúttið komið í góðan farveg.
Ergo, SUMARIÐ ER FREAKING KOMIÐ!

Kveðja,
HT Johnson
Saturday, April 7, 2012
Laugardagur til leka
Mættir: annar rjómahópur af Afrekshópnum
Staður: nú, Laugardalslaug
Stund: geðveikt seint, 8:00
Mætingin í morgun var gott sem svipuð og í fyrradag. Nokkrir, sem mættu ekki í fyrradag mættu í morgun, afskaplega skömmustulegir. Ber þar að nefna sjaldséða hvíta hrafna eins og Beinhimnubólgu-Bjössa, Crossfit-Albert og Betu Bronz. Hins vegar voru margir sem mættu á fimmtudaginn sem mættu ekki í morgun. Þannig að þetta jafnaðist út.
Nú. Stóra kladdamálinu lauk í morgun. Danni ákvað að gerast vísindalegur (fyrir tilstilli Janusar sýruguðs) og ætlaði að finna út einhverjar fræðilegar tengingar á milli sýru og getu... nei, sýru og mætingu... eða, nei, bíðið mætingu og getu? Æj, ég er ekki nógu gáfuð fyrir svona vísindahjal. En svo það sé alveg á hreinu, þá var þetta kladdatal ekkert djók sko, Hvíti-K var egsjölli með kladda á fimmtó! .... bara svona svo fólk haldi að ég sé ekki alveg eins og kú inn í hól.
Æfingin fór prýðilega fram. Hvíti-K vildi leggja Grafarvogslendur að velli og var það samþykkt einróma. Höskuldur sagði Stuttbuxna-Reyni frægðarsögur af sér á hreindýraveiðum. Frásögn hans var svo glæsilega og hetjulega fram sett að aumingja Stuttbuxna-Reynir mátti muna fífil sinn fegurri. Hann átti ekkert mont-svar. Ekki neitt. Hann gat ekki einu sinni montað sig af því að hafa veitt lax í tjörninni. Hans eina montsaga var á þá leið að hann flaut á fleka á Rauðavatni í den og veiddi síli með sigti móður sinnar úr eldhúsinu ....... ergo, þyrlureddarinn Landhelgis-Höskuldur var tööööluvert meira kúl en Stuttbuxna-Reynir í dag. Sorrí Reynir, þú kemur sterkari inn næst.
Eva elding mátti líka muna sinn fífil fegurri í Grafarholtsbrekkunni ógurlegu sem við Reynir nörruðum hana í .... hún var víst ekkert sérlega ánægð með þessa ráðstöfun þó hún hafi nú ekki kvartað í brekkunni sjálfri. Vísa ég í athugasemd hennar á hlaupadagbóksfærslu minni þessa dags. Þar stendur svart á hvítu:
Ansi sluppum við Stuttbuxna-Reynir vel í dag – jéraðseiíjaykkurða, það vill enginn verða laminn í skran og klessu af Evu. Hún á mótorhjól..... og væntanlega leðurföt. Best að halda sig á mottunni í nærveru hennar.... þess má svo geta að ástand mitt var ekki beysið eftir þetta brekkutrítl. Hjartað var lamað af álagi eftir að hafa pumpað mig upp þennan 70% halla í 10 mínútur.
Annars fékk ég ábendingu á smettisflettunni fyrr í dag frá með-annálsritara mínum, spéfuglinum Crossfit-Alberti! Ég leyfi honum jafnframt að eiga síðustu orð þessa bloggs:

„Er næstum búin að fyrirgefa ykkur Reyni að hafa dregið mig upp þessa neverending-golfvallar-hryllings-brekku...! Eina ástæða þess að ég kláraði hana var svo að ég gæti náð ykkur og tekið í lurginn á ykkur... en það var engin orka eftir til þess þegar upp var komið“
Ansi sluppum við Stuttbuxna-Reynir vel í dag – jéraðseiíjaykkurða, það vill enginn verða laminn í skran og klessu af Evu. Hún á mótorhjól..... og væntanlega leðurföt. Best að halda sig á mottunni í nærveru hennar.... þess má svo geta að ástand mitt var ekki beysið eftir þetta brekkutrítl. Hjartað var lamað af álagi eftir að hafa pumpað mig upp þennan 70% halla í 10 mínútur.
Annars fékk ég ábendingu á smettisflettunni fyrr í dag frá með-annálsritara mínum, spéfuglinum Crossfit-Alberti! Ég leyfi honum jafnframt að eiga síðustu orð þessa bloggs:
Kæra Fraulein Helga. Í ljósi þess að þú hefur tekið fram svipuna og stórbætt mætingu Afreksmeðlima á æfingar þá finnst mér viðeigandi að þú mætir í þessum búningi næst. Svo sé ég Hvíta-Kenýa fyrir mér sem Herr Flick með kladdann tilbúinn. :)
Með vinsemd og virðingu,
Holy T
Subscribe to:
Posts (Atom)