Ný stjórn var kjörin, Inga öfluga steig til "hliðar" úr þriggja manna stjórn, en bauð sig strax fram til gjaldkera. Ætli megi kalla það skref að hafa stigið þrep upp, til hliðar eða niður ? Þórdís bauð sig fram aftur og Palli og Anna Lára með henni.
Skemmtinefnd, ritnefnd og Esjuhlaupsskipuleggjendur urðu til - hópurinn er allur skipaður framtakssömu fólki.
Góðri skipan hópanna var fagnað með lófaklappi.
Þjálfi flutti fyrirlestur og tók saman starf liðins árs og brýndi til dáða fyrir næsta ár. Rætt var um markmið og skipulagða þátttöku Afrekshópsins í hlaupum bæði erlendis og innanlands. Laugavegurinn 2013 á eflaust eftir að koma verulega við sögu.
Skemmtinefnd hefur þegar ákveðið jólahitting laugardaginn 17. nóv þar sem sameiginleg kolvetnahleðsla í formi fljótandi brauðs verður eitt meginþemað.
Nýbreytni verður á innanhúsæfingum á þriðjudögum í vetur þar sem skipulegar styrktaræfingar bætast við eftir sprettina. Hópurinn hefur ráðið sér íþróttakennara til að temja kroppana, herða kjarnann, styrkja skinkustrengi*, forma kúluglúta, fjórfalda fjórvöðvana, kreppa kálfana og teygja svo á öllu saman á eftir.
(*hamstrings)
G.B.Birgis.
No comments:
Post a Comment