Saturday, November 24, 2012

Rólegt morgunhlaup um Garðabæinn

Afrekshópurinn hittist við Ásgarð þennan morguninn með stefnuna á Heiðmörk.

Fljúgandi hálka á stígunum gerði út um þau plön, einungis tveir voru á broddum eða gormum, svo farinn var hringur um Garðabæ þess í stað.

Ekki var hálkan samt minni inni í bænum svo hópurinn þræddi grasbala, umferðareyjar og götur eins og við var komið.

Monday, November 12, 2012

Úrslit úr powerade #2

Þá hafa úrslitin verið birt á heimasíðu hlaup.is. Úrslitin hjá okkar fólki:

24 40:22:00 Haraldur Vilhjálmsson Afrekshópur-Ármann
34 41:22:00 Viktor Vigfússon Afrekshópur-Ármann
38 41:35:00 Margeir Kúld Eiríksson Afrekshópur-Ármann
46 42:12:00 Daníel Smári Guðmundsson Afrekshópur-Ármann
59 43:19:00 Ingvi J. Ingvason Afrekshópur-Ármann
69 44:19:00 Reynir Jónsson Afrekshópur-Ármann
84 45:07:00 Eva Ólafsdóttir Afrekshópur-Ármann
93 45:54:00 Helgi Þór Harðarson Afrekshópur-Ármann
99 46:03:00 Jónína Gunnarsdóttir Afrekshópur-Ármann
104 46:28:00 Gunnar Júlísson Afrekshópur-Ármann
145 48:39:00 Daníel Karlsson Afrekshópur-Ármann
155 49:16:00 Guðmann Bragi Birgisson Afrekshópur-Ármann
178 50:11:00 Christine Buchholz Afrekshópur-Ármann
179 50:12:00 Ingvar Þór Magnússon Afrekshópur-Ármann
180 50:14:00 María Jóhannesdóttir Afrekshópur-Ármann
217 52:35:00 Anna Dís Sveinbjörnsdóttir Afrekshópur-Ármann
245 54:07:00 Gróa Másdóttiir Afrekshópur-Ármann
253 54:26:00 Sigþór Sigmarsson Afrekshópur-Ármann
276 56:00:00 Páll Helgason Afrekshópur-Ármann
288 56:57:00 Þórhallur Helgason Afrekshópur-Ármann
314 59:28:00 Ásta Snorradóttir Afrekshópur-Ármann
341 62:17:00 Vala Guðbjartsdóttir Afrekshópur-Ármann

Úrslitin í stigakeppni hópanna

Röð Félag/klúbbur Kyn Hlaup 1 Hlaup 2 Samtals
1 ÍR Karlar 73 81 154
    Konur 28 10 38
    Samtals 101 91 192
 
2 Afrekshópur-Ármann Karlar 42 45 87
    Konur 54 35 89
    Samtals 96 80 176
 
3 Hlaupahópur FH Karlar 56 63 119
    Konur 26 21 47
    Samtals 82 84 166

Thursday, November 8, 2012

Powerade vetrarhlaup #2

Gulir Afrekshópsjakkar voru áberandi í hópnum í kvöld. Úrslit sett inn þegar þau eru birt.

Wednesday, November 7, 2012

All we are saying ...

... is give pace a chance.

Þessari hraðatöflu var miskunnarlaust nappað af síðu annars hlaupahóps. Ágætt getur verið að hafa hana til hliðsjónar þegar strategían fyrir næsta Powerade er sett niður. Eru ekki annars allir með strategíu eða er það bara Reynir?

Tuesday, November 6, 2012

Fyrsta innisprettæfing haustsins - 10x200m

Snögglega breytt um æfingaplan þegar leiðbeinandi styrktaræfinga forfallaðist. Góður hópur fór langa upphitun á tempóafköstum í grenjandi úrhellisrigningu og svo inn í höll í hraðaaukningar og 10 x 200m spretti, nema sumir. Þeir fóru fleiri...

Aðalfundur Afrekshópsins

Í gærkvöldi hittist hópurinn á aðalfundi, ársfundi eða hvaða nafni mætti nefna tilefnið.

Ný stjórn var kjörin, Inga öfluga steig til "hliðar" úr þriggja manna stjórn, en bauð sig strax fram til gjaldkera. Ætli megi kalla það skref að hafa stigið þrep upp, til hliðar eða niður ? Þórdís bauð sig fram aftur og Palli og Anna Lára með henni.

Skemmtinefnd, ritnefnd og Esjuhlaupsskipuleggjendur urðu til - hópurinn er allur skipaður framtakssömu fólki.

Góðri skipan hópanna var fagnað með lófaklappi.

Þjálfi flutti fyrirlestur og tók saman starf liðins árs og brýndi til dáða fyrir næsta ár. Rætt var um markmið og skipulagða þátttöku Afrekshópsins í hlaupum bæði erlendis og innanlands. Laugavegurinn 2013 á eflaust eftir að koma verulega við sögu.

Skemmtinefnd hefur þegar ákveðið jólahitting laugardaginn 17. nóv þar sem sameiginleg kolvetnahleðsla í formi fljótandi brauðs verður eitt meginþemað.

Nýbreytni verður á innanhúsæfingum á þriðjudögum í vetur þar sem skipulegar styrktaræfingar bætast við eftir sprettina. Hópurinn hefur ráðið sér íþróttakennara til að temja kroppana, herða kjarnann, styrkja skinkustrengi*, forma kúluglúta, fjórfalda fjórvöðvana, kreppa kálfana og teygja svo á öllu saman á eftir.

(*hamstrings)

G.B.Birgis.