Staður: Höfuðstöðvar Vals Skokks
Stund: 8:00
Veður: Heldur þungt yfir og vindasamt seinni part hlaups
Mættir: Anna Lára, Þórdís, Steinunn Sveins, Inga, Hannes, Rafn og undirrituð
Já, við vorum ekki mörg mætt til æfingar í gær. Sumir lágu í páskadvala á meðan aðrir sviku lit og fóru til AkureyrIS til að hlaupa með Eyrarskokki! Piff. Það er nú aldeilis uppi t***** á sumum, ég segi nú bara ekki annað. Mikið á sig lagt til að hlaupa með norðanfólki.
Jæja, við létum ekki svoleiðis vitleysu á okkur fá og lögðum af stað hæfilega seint eftir tilætlaðan farartíma, eða kl. 8:09. Nesið varð fyrir valinu. Ekki ég veit ég ástæðu þess enda líklega mesta rokrassgat sem fyrirfinnst á Stór- Reykjavíkursvæðinu utan Kjalaness. Ef það er ekki rok bæði sunnan-og norðanmegin á Seltjarnarnesi að þá má bóka að það er rok öðru hvoru megin. Logn er fyrirbrigði sem er sjaldan til staðar. Kosturinn við að hlaupa út á nes frá Hlíðarenda er hins vegar sá að þetta er svo gott sem brekkulaus leggur. Fólk var almennt lúið eftir langt tempó á skírdag þannig að þetta var samþykkt möglunarlaust. Þar sem ég er nú að minnast á brekkulausa hlaupaleið ... og það er páskadagur .. þá rakst ég á þessa tilvitnun á netinu: „Brekkur eru hraðaæfingar í dulargervi" ...... er það? Það var víst emmorískur hlaupari, Frank Shorter, sem vann gull á Ólympíuleikunum í maraþoni árið 1972 í Munchen, sem sagði þessu ágætu orð.... já já, maður getur nú slegið um sig og sýnt að maður er miklu meira en Kanarífugl! ....
Jæja, nóg um það. Rafn og Hannes skokkuðu áfram á sínum laugardagshraða. Síðan trítluðum við Anna Lára í hummátt á eftir þeim. Þar fyrir aftan voru Inga, Þórdís og Steinunn.
Þetta hlaup var nú bara askolli fínt. Rok var af afskaplega skornum skammti út í Gróttu en þegar skeiðað var eftir norðanverðu nesinu máttum við eyða töluverðum kröftum í mótvind, og það kaldan!! Leiðin lá svo fram hjá JL-húsinu, upp Bræðraborgarstíg, Vesturgötu, Ingólfstorg, Austurvöll, Lækargötu, fram hjá Kára Stefáns og flugvellinum, inn á stíginn aftur sem var farinn inn í kirkjugarð (til að ná pottþétt að fylla 150 mínútna kvóta dagsins) og tilbage inn að Hlíðarenda.
Fínasta hlaup í frískandi veðri og frábærum félagsskap!
Þar sem undirrituð er í rífandi páskaeggjamálsháttargír, er þá ekki best að enda þessi laufléttu páskaskrif á ágætis málshætti:
Góður vilji ekur þungu hlassi heim.
Með vinsemd og virðingu,
Helga Þóra
Afrekshópur er hópur hlaupara sem æfir markvisst til að ná árangri og leggur áherslu á gæði æfinga.
Sunday, April 24, 2011
Wednesday, April 20, 2011
Los sprettos
Staður: Laugardalur
Stund: Nálægt kvöldmat
Veðurfar: Alls konar úti við. Eiginlega of mikið alls konar. Mjög einsleitt veður inni í höll.
Mættir: Feykna fjöldi
Í gær endurheimti Afrekshópurinn einn Rotterdamgauk til baka á æfingu. Margeir mætti bísperrtur, ánægður með sitt þon og ætlaði aldeilis að þenja sig upp í góðan slatta af 400 mtr sprettum á æfingunni. Sem undirrituð getur staðfest að hann gerði! Það var ekki að sjá að kappinn hefði tekið maraþon í nefið 9 dögum áður.
Æfingin í gær var eins hefðbundin og hugsast getur. Hefðbundni og afskaplega rótgróni og inngróni upphitunarhringurinn var joggaður samviskusamlega, hraðaaukningarnar á sínum stað, sprettirnir voru teknir með mikilli ákefð og svo voru það klassískar teygjur og gott niðurskokk sem settu punktinn yfir i-ið. Klikkar ekki.
Uppleggið var 10-12 400 metra sprettir. Sumir fengu mínútu pásu á milli á meðan aðrir máttu hafa sig alla við og jogga 400 metra á milli spretta! Það er alvöru fyrir atvinnumenn og enga aðra!
Jæja, nóg í bili. Þokkalegasta tempóæfing á plani í fyrró.
Með vinsemd og virðingu,
Kanarífuglinn

Sunday, April 17, 2011
Tveggja tinda hlaup Afrekshópsins í sýnishornaveðri
Mættir: Slatti
Staður: Lágafellslaug
Veður: Alls konar sýnishorn
Mosfellsbæjarhöfðinginn og þjálfari vor, Daníel Smári, boðaði til æfingar í Mosfellssveit í dag. Það var fínt! Ansi huggulegt að fá breik frá malbiksplampinu og bílaumferðinni og komast upp í sveit til að skottast um grænar grundir, með hrossum, í hrossaskít og annarri drullu!
Leiðangurinn var í þó nokkurri óvissu fyrstu kílómetrana. Fólk skiptist á að leiða hópinn þannig að úr varð hálf höfuðlaus her sem stefndi þó ákveðið í átt að fellum, fjöllum og heiðum Mosfellsshrepps. Já, ágætis samsuða þar á ferð. Jói gerði sig breiðan og ætlaði nú aldeilis og sérdeilis að leiða hópinn eina flottustu leið sem hafði verið valinn fyrr og síðar á Afreksæfingu. Hann missti þó fljótt forystusauðshlutverk sitt þegar Jón Ebbi og einn annar (nafn?) voru orðnir leiðir á öllu þessu tvístigi, tóku málin í sínar hendur og urðu sjálfskipaðirleiðangursstjórar! Þá fóru málin loksins að skýrast ogAfrekshópurinn gat hlaupið sína leið áreynslulaust ... tja, alla vega hvað leiðarval og ákvarðanatökur varðar. Hlaupaálgið var langt í frá áreynslulaust.
Þegar uppi var staðið lá leiðin einhvern veginn svona:
Við hófum för okkar við Lágafellslaug, fórum undirgöngin undir Vesturlandsveginn, upp í dalinn meðfram Úlfarsfelli (sem ég vildi svo gjarnan vita hvað heitir!). Þegar sá dalur var á enda kominn trítluðum við aðeins niður í byggð, tókum svo netta u-beygju upp á Hafravatns-og Úlfarsfellsveg aftur til þess eins að komast á einhvern hliðarveg sem átti svo að leiða okkur í Skammadal! Sá vegur leiddi okkur hins vegar bara ekki baun í bala niður í Skammadal heldur upp á einhverja heiði þar sem drulla var í hávegum höfð. Eftir smá spotta á þeirri heiði fór undirrituð að kannast við appelsínugular stikur og jú, umhverfið sjálft! Já, Afrekshópurinn var kominn á slóðir hins aldræmda 7 Tinda hlaups! Fjúff, það hrísluðust blendnar tilfinningar um undirritaða enda þykja henni 7 Tindarnir ekkert spaughlaup! Við vorum þó hvergi bangin heldur spændum við upp á Reykjafell sem er 3.tindurinn í áðurnefndu 7 Tinda hlaupi. Ef fólk hafði verið svo óheppið að mæta í nýju, hvítu Njú Ballans skónum sínum á æfingu þá er ég nokkuð viss um að þeir skór voru langt frá því að vera ennþá nýir og hvítir á þessum tímapunkti. Kannski nýir, en þó varla miðað við þá meðferð sem skótau Afrekshópsmeðlima fékk þennan morguninn! Það var auðvelt að sökkva ofan í ökklaháa drullu ef maður var ekki nógu fimur að stökkva á milli mosaþúfna og stæðilegra steina. Já, stundum er gott að vera langur og mjór og eins og fis til að fjaðra svona um holt og hæðir eins og meistari okkar getur svo léttilega gert.
Nú, þegar Reykjafellið hafði verið lagt að velli þótti afskaplega tilhlýðilegt að trítla upp á Æsustaðafellið sem er 4. tindurinn í 7 Tinda hlaupinu. Að svo búnu var Mosfellsdalurinn hlaupinn á enda og strikið tekið beint niður í Lágafellslaug, þó með smá viðbótarslaufu hjá mörgum til að fylla tímakvóta dagsins.
Þessi æfing var góð. Mjög góð. Og já, skemmtileg! Nú er bara að hefja veðurguðina upp til vegs og virðingar, heiðra þá og ákalla og krossleggja fingur um að blessað vorið komi helst á morgun þannig að svona æfingar verði farnar í sól og sumaryl! Það eru forréttindi.
Með vinsemd og virðingu,
Helga Þóra
Staður: Lágafellslaug
Veður: Alls konar sýnishorn
Mosfellsbæjarhöfðinginn og þjálfari vor, Daníel Smári, boðaði til æfingar í Mosfellssveit í dag. Það var fínt! Ansi huggulegt að fá breik frá malbiksplampinu og bílaumferðinni og komast upp í sveit til að skottast um grænar grundir, með hrossum, í hrossaskít og annarri drullu!
Leiðangurinn var í þó nokkurri óvissu fyrstu kílómetrana. Fólk skiptist á að leiða hópinn þannig að úr varð hálf höfuðlaus her sem stefndi þó ákveðið í átt að fellum, fjöllum og heiðum Mosfellsshrepps. Já, ágætis samsuða þar á ferð. Jói gerði sig breiðan og ætlaði nú aldeilis og sérdeilis að leiða hópinn eina flottustu leið sem hafði verið valinn fyrr og síðar á Afreksæfingu. Hann missti þó fljótt forystusauðshlutverk sitt þegar Jón Ebbi og einn annar (nafn?) voru orðnir leiðir á öllu þessu tvístigi, tóku málin í sínar hendur og urðu sjálfskipaðir
Þegar uppi var staðið lá leiðin einhvern veginn svona:
Við hófum för okkar við Lágafellslaug, fórum undirgöngin undir Vesturlandsveginn, upp í dalinn meðfram Úlfarsfelli (sem ég vildi svo gjarnan vita hvað heitir!). Þegar sá dalur var á enda kominn trítluðum við aðeins niður í byggð, tókum svo netta u-beygju upp á Hafravatns-og Úlfarsfellsveg aftur til þess eins að komast á einhvern hliðarveg sem átti svo að leiða okkur í Skammadal! Sá vegur leiddi okkur hins vegar bara ekki baun í bala niður í Skammadal heldur upp á einhverja heiði þar sem drulla var í hávegum höfð. Eftir smá spotta á þeirri heiði fór undirrituð að kannast við appelsínugular stikur og jú, umhverfið sjálft! Já, Afrekshópurinn var kominn á slóðir hins aldræmda 7 Tinda hlaups! Fjúff, það hrísluðust blendnar tilfinningar um undirritaða enda þykja henni 7 Tindarnir ekkert spaughlaup! Við vorum þó hvergi bangin heldur spændum við upp á Reykjafell sem er 3.tindurinn í áðurnefndu 7 Tinda hlaupi. Ef fólk hafði verið svo óheppið að mæta í nýju, hvítu Njú Ballans skónum sínum á æfingu þá er ég nokkuð viss um að þeir skór voru langt frá því að vera ennþá nýir og hvítir á þessum tímapunkti. Kannski nýir, en þó varla miðað við þá meðferð sem skótau Afrekshópsmeðlima fékk þennan morguninn! Það var auðvelt að sökkva ofan í ökklaháa drullu ef maður var ekki nógu fimur að stökkva á milli mosaþúfna og stæðilegra steina. Já, stundum er gott að vera langur og mjór og eins og fis til að fjaðra svona um holt og hæðir eins og meistari okkar getur svo léttilega gert.
Nú, þegar Reykjafellið hafði verið lagt að velli þótti afskaplega tilhlýðilegt að trítla upp á Æsustaðafellið sem er 4. tindurinn í 7 Tinda hlaupinu. Að svo búnu var Mosfellsdalurinn hlaupinn á enda og strikið tekið beint niður í Lágafellslaug, þó með smá viðbótarslaufu hjá mörgum til að fylla tímakvóta dagsins.
Þessi æfing var góð. Mjög góð. Og já, skemmtileg! Nú er bara að hefja veðurguðina upp til vegs og virðingar, heiðra þá og ákalla og krossleggja fingur um að blessað vorið komi helst á morgun þannig að svona æfingar verði farnar í sól og sumaryl! Það eru forréttindi.
Með vinsemd og virðingu,
Helga Þóra
Sunday, April 10, 2011
Rotterdam Maraþon
Jæææjaaa, þá er þessari þolraun lokið hjá Rotterdam-gaukunum. Í stuttu máli þá gekk bara vel þó ekki hafi náðst að uppfylla metnaðarfyllstu markmiðin í dag. Allir þó á PB í hópnum nema Danni sem náði ekki að bæta 2:28 tímann sinn að þessu sinni en það er víst svo gamall tími að hann er ekki tekinn með svo hann var líka á PB (að eigin sögn). Veðrið var alveg óþarflega gott fyrir okkur, 19° og glampandi sól en það var mikil stemming og allir höfðu gaman af........nema eftir 30km það var bara ekkert gaman! Svo við séum nú alveg hreinskilnir, en það er víst eðlilegt þ.e. það á ekki að vera gaman. Við vorum búnir að búa til alveg rosa stóran afsökunarlista fyrir því að hafa ekki náð enn betri tíma en Þjálfarinn fékk okkur til að eyða honum og taka allt það jákvæða útúr þessu og lýta á björtu hliðaran sem er jú alveg rétt hjá honum. Allir sáttir enda PB dagur!
Nákvæmari lýsing væntanleg á hlaup.com.
Nákvæmari lýsing væntanleg á hlaup.com.
Tímarnir okkar svona ca.
Margeir 3:05
Danni 3:08:59
Hössi 3:12
Bjössi 4:40
Vinsamlegast hrósa okkur alveg rosalega mikið fyrir þetta, við þurfum á því að halda!
Kveðja frá Rotterdam,
HÓ
Thursday, April 7, 2011
Sprettir á heiðarlegum fimmtudegi
Mættir: Margir mínus Rotterdamfarar plús Daníel Rotterdamfari
Staður: Höllin
Hinn fríði og föngulegi Afrekshópur Ármanns lagði í upphitun í sól og sandroki. Hljómar sæmilega en þetta var virkilega frískandi.
Dagskráin var nokkuð svipuð hjá meiri hluta hópsins. 8 - 10 stykki af 400 metra sprettunum með 60 sekúndna púststoppi á milli. Þó voru einhverjir að taka allt upp í 15 stykki af 200 metra sprettum. Ég veit ekki á hvaða sérsamningi þeir voru =o)
Nú, eins og fyrri daginn ljómaði hópurinn af hlaupaástríðu og hlaupagleði. Ef Afrekshópur Ármanns er ekki í essinu sínu þegar meðlimirnir fá að spretta nógu marga spretti nógu hratt, þá veit undirrituð ekki hvað það er sem nærir þessa hlaupa-og hraðaþyrstu hlaupara. Gleði skein úr sprettherptum og sveittum hlaupasmettunum. Allir lögðu blóð, svita og tár (tja, kannski mínus blóðið og tárin) í æfingu dagsins.
Annars erum við flest með hugann hjá Rotterdam-gaukunum okkar. Einn er farinn (Bjössi) og hinir leggja land undir fót í fyrramálið. Ég gróf þessa slóð http://www.abnamromarathonrotterdam.com/ upp af hlaupadagbókinni hans Höskuldar. Ef ég skil heimasíðuna rétt byrjar hlaupið kl.11 ..... það þarf kannski að dobbúltjékka það .... finnst það nú óvenju seint svona miðað við önnur maraþon! Jæja, nóg um það. Hvort sem það er seint eða snemma er ég nokkuð viss um að við verðum öll límd við tölvuskjána á sunnudaginn til að fylgjast með Bjössa, Höskuldi, Margeiri og Danna fræsa upp upp Rotterdam eins og hún leggur sig og koma í mark á ævintýralega góðum tíma! Það verða hvorteðer hundrað metrar á sekúndu og grenjandi úrhellis ausandi rigning á sunnudaginn. Ég trúi tæplega að þið ætlið að hlaupa í svoleiðis óskunda!

Subscribe to:
Posts (Atom)