Thursday, April 7, 2011

Sprettir á heiðarlegum fimmtudegi

Mættir: Margir mínus Rotterdamfarar plús Daníel Rotterdamfari
Staður: Höllin

Hinn fríði og föngulegi Afrekshópur Ármanns lagði í upphitun í sól og sandroki. Hljómar sæmilega en þetta var virkilega frískandi.
Dagskráin var nokkuð svipuð hjá meiri hluta hópsins. 8 - 10 stykki af 400 metra sprettunum með 60 sekúndna púststoppi á milli. Þó voru einhverjir að taka allt upp í 15 stykki af 200 metra sprettum. Ég veit ekki á hvaða sérsamningi þeir voru =o)

Nú, eins og fyrri daginn ljómaði hópurinn af hlaupaástríðu og hlaupagleði. Ef Afrekshópur Ármanns er ekki í essinu sínu þegar meðlimirnir fá að spretta nógu marga spretti nógu hratt, þá veit undirrituð ekki hvað það er sem nærir þessa hlaupa-og hraðaþyrstu hlaupara. Gleði skein úr sprettherptum og sveittum hlaupasmettunum. Allir lögðu blóð, svita og tár (tja, kannski mínus blóðið og tárin) í æfingu dagsins.

Annars erum við flest með hugann hjá Rotterdam-gaukunum okkar. Einn er farinn (Bjössi) og hinir leggja land undir fót í fyrramálið. Ég gróf þessa slóð http://www.abnamromarathonrotterdam.com/ upp af hlaupadagbókinni hans Höskuldar. Ef ég skil heimasíðuna rétt byrjar hlaupið kl.11 ..... það þarf kannski að dobbúltjékka það .... finnst það nú óvenju seint svona miðað við önnur maraþon! Jæja, nóg um það. Hvort sem það er seint eða snemma er ég nokkuð viss um að við verðum öll límd við tölvuskjána á sunnudaginn til að fylgjast með Bjössa, Höskuldi, Margeiri og Danna fræsa upp upp Rotterdam eins og hún leggur sig og koma í mark á ævintýralega góðum tíma! Það verða hvorteðer hundrað metrar á sekúndu og grenjandi úrhellis ausandi rigning á sunnudaginn. Ég trúi tæplega að þið ætlið að hlaupa í svoleiðis óskunda!

Með vinsemd og virðingu,
Helga Þóra

2 comments:

  1. Mjög hvetjandi veðurspá sem þú ert að lýsa Helga!!

    Við fylgjumst pottþétt öll spennt með hlaupinu á sunnudaginn og vonandi nást öll markmið :o)

    Góða ferð strákar.

    kv. Anna Lára

    ReplyDelete
  2. Tja, ég vísa bara í www.vedur.is, spákort fyrir höfuðborgarsvæðið kl.12 á sunnudaginn :) Það lítur bara nákvæmlega svoleiðis út :þ
    Helga Thoris

    ReplyDelete