Staður: Laugardalur
Stund: Nálægt kvöldmat
Veðurfar: Alls konar úti við. Eiginlega of mikið alls konar. Mjög einsleitt veður inni í höll.
Mættir: Feykna fjöldi
Í gær endurheimti Afrekshópurinn einn Rotterdamgauk til baka á æfingu. Margeir mætti bísperrtur, ánægður með sitt þon og ætlaði aldeilis að þenja sig upp í góðan slatta af 400 mtr sprettum á æfingunni. Sem undirrituð getur staðfest að hann gerði! Það var ekki að sjá að kappinn hefði tekið maraþon í nefið 9 dögum áður.
Æfingin í gær var eins hefðbundin og hugsast getur. Hefðbundni og afskaplega rótgróni og inngróni upphitunarhringurinn var joggaður samviskusamlega, hraðaaukningarnar á sínum stað, sprettirnir voru teknir með mikilli ákefð og svo voru það klassískar teygjur og gott niðurskokk sem settu punktinn yfir i-ið. Klikkar ekki.
Uppleggið var 10-12 400 metra sprettir. Sumir fengu mínútu pásu á milli á meðan aðrir máttu hafa sig alla við og jogga 400 metra á milli spretta! Það er alvöru fyrir atvinnumenn og enga aðra!
Jæja, nóg í bili. Þokkalegasta tempóæfing á plani í fyrró.
Með vinsemd og virðingu,
Kanarífuglinn
No comments:
Post a Comment