Tuesday, March 20, 2012

Þriðjudagsæfing

Staður: Laugardalshöll
Stund: Tæplega átjánhundruð
Mættir: Dágóður slatti... en samt vantaði marga. Svo marga að það er ekki pláss að telja þá upp hér og nú!

Loksins er ég ein af hópnum - ekki lengur óvinsæl utangarðskona sem á ekki gula jakkann. Nei. Nú er ég fullgildur meðlimur í jakkavinafélagi Afrekshóps Ármanns! Adam var reyndar ekki lengi í paradís því Landhelgis-Höskuldur setti þá kröfu á mig, ca 3 sekúndum eftir að ég gekk inn í höllina í nýja jakkanum með breiðara bros en þetta sólkerfi, að ég þyrfti að redda mér buffi í stíl við jakkann. Ég geri þá ráð fyrir að kúlheit mín séu ekki fullkomlega fullkomnuð með jakkanum.....?

Núh, en ef við víkjum að æfingu dagsins þá var eitt og annað sem má týna fram í dagsljósið og segja frá. Við byrjuðum á upphitun. Hvíti Kenýa er algjör óhemja þessi misserin og gerir kröfu um nýja upphitunarleið á hverri æfingu! Hverjum hefði dottið þetta í hug fyrir þremur mánuðum? Hann veitti mér þann mikla heiður í té að finna góða leið. Ég hélt það nú! Enda enginn meðal Jón þegar kemur að leiðarvali. Ég er vetrarbrautarmeistari í þeim efnum.... að ég hélt......upphitunin fór nefninlega úr böndunum.....  vegna þess að löggiltur utangarðsmaður potaði sér í hópinn! Já, Friðrik nokkur Melabúðarkaupmaður, meðlimur í Hlaupasamtökum Lýðveldisins (æji, montprikin þarna í West Side sundlauginni) og lærlingur hjá Sigga Pjé grátbað Hvíta Kenýa um að fá að fylgja okkur í upphitun þar sem Siggi Pjé var nýbúinn búin að sparka honum út úr höllinni..... hann kærði sig ekki um meiðslapésa á sinni sprettæfingu en það er það sem hann Friðrik er um þessar mundir! .... Það var skammgóður vermir að fá virðulegan vesturbæjarkaupmann með í upphitun dagsins því rólega tempóið hans Frikka er ekki rólegt upphitunartempó fyrir Afrekshópinn. Tölur eins og 5:19 og 5:04 sáust á Görmum Afrekshópsmeðlima! Fararstjóri átti í fullu fangi með að fylgjast með hvort að skærgula strollan væri öll á sínum stað. Frikka var nett... nei, ekki nett heldur SLÉTT  sama um afdrif skæragula gengisins, hann vildi bara hlaupa! Sagði að þetta væri rólegt tempó þegar fararstjóri gerði athugasemdir um þann asa sem hann sýndi!
Menn höfðu á orði þegar inn í höll var komið að hægt væri að nota sprettina sem gott niðurskokk.......

Nú, það þarf tæpast að minnast á sprettina sjálfa. Þeir voru inntir fagmannlega af hendi. Fræsingar voru í hámarki og svitinn bogaði af meðlimum hópsins. Almúginn tók 5 - 8 x 600 metra spretti á meðan maraþongengið tók fullorðins spretti á - við erum að tala um 1000 og 2000 metra spretti gott fólk. Það er fullorðins, það er eitthvað til að svitna yfir.

Já, og meðan ég man, Albert aka Berti Boot-Camp, brátt Crossfit-Alli, fær nafnbótina svikahrappur dagsins. Ekki nóg með að hann hafi klæðst grænum jakka, heldur byrjaði hann kl. 17:15 á æfingu og brosti svo bara að þessu öllu saman þegar ég böstaði hann á stígnum í Laugardalnum. Algjört feil hjá kappanum. Þó að hann hafi skrifað annálinn fyrir árshátíðina þá er hann ekki stikkfrí að eilífu. Það er bara þannig.

Að lokum legg ég til að þetta verði opinber keppnisbúningur karlkyns Afrekshópsmeðlima.
 
Með trylltri vinsemd og gífurlegri virðingu,
HT Johnson

2 comments:

  1. Danni er víst búinn að panta inn slatta af svona búningum fyrir okkur. Fæ mér xsmall, bara fyrir þig Helga ;)

    ReplyDelete
  2. Alli (The green Hornet)April 2, 2012 at 10:30 PM

    Já það er alveg rétt hjá þér Helga, ég er eins og álfur út úr kú í jakkanum mínum innan um ykkur sem svífið um eins og skærgult sólkerfi á ógnarhraða framhjá útbrunnum dvergstjörnum eins og alheimurinn sé ykkar (sem hann er). Ég hef þegar hafist handa við að breyta græna jakkanum í svona sniðugan keppnisbúning, hann verður góður í íslenska sumarhitanum.

    ReplyDelete