Tuesday, January 15, 2013

Árshátíð Afrekshópsins 5. febrúar

Árshátíð Afrekshópsins verður haldinn laugardaginn 2.febrúar á Holtinu þar sem við fáum tvíréttaða hleðslu.

Við ætlum að hittast fyrst í fordrykk kl.18.30 og mætum á Holtið rétt fyrir kl.20.

Það verður bara gaman – þeir sem mættu í fyrra muna að það var bara stuð og þá svona sérstaklega í lokin :-D

Verð er 5500 pr. mann - makar eru sérstaklega velkomnir

Monday, January 14, 2013

Powerade #4 - úrslit

Fjölmargir meðlimir Afrekshópsins öfluðu stiga í Powerade hlaupinu í janúar og metmæting bætti svo um betur.  Þetta skilaði því að hópurinn er nú kominn í efsta sæti í keppni hlaupahópa.  Vííííí...

RöðTímiNafnStigFlokkastig
6.38:02:00Viktor Orri Pétursson57
16.39:41:00Viktor Vigfússon 8
24.40:27:00Haraldur Vilhjálmsson 7
32.41:16:00Margeir Kúld Eiríksson 5
33.41:22:00Daníel Smári Guðmundsson 10
34.41:26:00Björn Baldursson 4
37.41:40:00Höskuldur Ólafsson 3
47.42:19:00Arnar Garðarsson 1
52.42:53:00Arnór Hauksson  
64.43:13:00Ingvi J. Ingvason 8
67.43:42:00Pétur Ívarsson  
73.43:56:00Helgi Þór Harðarson  
82.44:36:00Eva Ólafsdóttir710
96.45:16:00Daníel Karlsson  
109.46:28:00Hannes Hauksson  
128.47:33:00Guðmundur S. Ólafsson  
133.47:53:00Christine Buchholz 7
156.49:18:00Björn Rafn Gunnarsson  
161.49:33:00María Jóhannesdóttir 5
173.49:59:00Jórunn Dóra Sigurjónsdóttir 5
183.50:46:00Birna Guðmundsdóttir 2
194.51:19:00Marvin Ívarsson  
199.51:39:00Guðmann Bragi Birgisson  
201.51:51:00Vigfús Eyjólfsson  
204.52:08:00Ingvar Þór Magnússon 4
206.52:09:00Inga Björk Guðmundsdóttir 6
226.53:23:00Þórdís G. Magnúsdóttir 1
227.53:23:00Anna Dís Sveinbjörnsdóttir 8
244.54:47:00Sigþór Sigmarsson  
262.55:56:00Gróa Másdóttiir  
270.56:53:00Dagrún Hálfdánardóttir  
279.57:59:00Páll Helgason  
340.67:50:00Vala Guðbjartsdóttir  
341.68:19:00Steinunn G. Ástráðsdóttir 7
343.71:03:00Sigurður Ólafsson  

Saturday, January 12, 2013

Fjallabaksleið efri byggða

Í morgun var farin Fjallabaksleið efri byggða höfuðborgarsvæðisins. Greinilegt að við vorum komin upp fyrir snjólínu við Salalaug í Kópavogi. Síðan var hlaupið niður dalina, með ám og lækjum að sjávarmáli og upp aftur.

Það var nauðsynlegt að fá leiðsögn heimamanns til að fylgja hópnum frá Sölunum yfir í Selin. Þá könnuðust menn við sig og stefndu yfir í Fellin til að fara niður Elliðarárdalinn frá efsta punkti Poweradehringsins.  Áfram niður í Fossvogsdalinn niður að sjávarmáli þar sem sumir lengdu fyrir Kársnesið meðan aðrir fóru yfir hálsinn. Í Kópavogsdalnum hinum megin voru aftur vegvillur og gekk misvel að finna réttu undirgöngin til að komast upp í Lindir.  Eftir að komið var upp í Lindir varð gatnakerfi Kópavogs öllum óskiljanlegt, hópurinn tvístraðist aðeins, sameinaðist aftur en stefndi þó alltaf eitthvað í rétta átt, aftur upp í Sali og sundlaugina.

Ef einhver skilaði sér ekki, þá má kannski athuga hvort gulur jakki sé á ráfi þarna í fjöllum Kópavogs..

Friday, January 11, 2013

Powerade #4 - janúar

Sjaldan eða aldrei hafa fleiri í Afrekshópnum mætt í Poweradehlaup og í gærkvöldi.  Nú verður áhugavert að sjá stigatöfluna.

Wednesday, January 9, 2013

Metmæting á nýju ári

Er hátíðarsamviskubitið að naga ? Áramótaheit strengd ? Lokkaði styrktarþjálfarinn ?

Væntanlega sambland af öllu þrennu og jafnvel fleiru, því það var metmæting á sprettæfingu Afrekshópsins í Frjálsíþróttahöllinni í gær.  Þrjátíuogfjögur stykki, ef skrifari taldi rétt, af fögrum limaburði á hlaupabrautinni takk fyrir.

Létt og stutt æfing á dagskránni fyrir þá sem ætluðu í styrktartímann á eftir hlaupunum eða 10x200m, reyndar með extra hraðaaukningum og fótaburðardrillum á undan.  20 sprettir fyrir þá sem ekki þáðu styrktaræfingarnar.

Sprettgleðin gerði 10 hringina ekkert of auðvelda en það er nú bara þannig...

Svo kom loks að því sem beðið hefur verið eftir í heilan mánuð.  Hópurinn hefur ráðið sér sérstakan styrktarþjálfara til að taka á okkur vikulega í janúar með áherslu á fóta- og kjarnaæfingar sérmiðaðar fyrir hlaupara.

Tutttuguogfjögur þáðu viðbótina og voru mætt í hornið til þjálfarans á slaginu sjö með eftirvæntinguna skínandi úr hverju andliti. Hópnum var skipt í fernt og teknar æfingar með stöðvafyrirkomulagi. Röggsemi og leiðtogagen sumra komu í ljós þegar einn í hverjum hópi leiddi eina æfinguna með taktvissum skipunum.

Sælugrettin og rauðþrútin vellíðunarandlit geisluðu eftir tímann og hlakka strax til næsta þriðjudags.