Saturday, January 12, 2013

Fjallabaksleið efri byggða

Í morgun var farin Fjallabaksleið efri byggða höfuðborgarsvæðisins. Greinilegt að við vorum komin upp fyrir snjólínu við Salalaug í Kópavogi. Síðan var hlaupið niður dalina, með ám og lækjum að sjávarmáli og upp aftur.

Það var nauðsynlegt að fá leiðsögn heimamanns til að fylgja hópnum frá Sölunum yfir í Selin. Þá könnuðust menn við sig og stefndu yfir í Fellin til að fara niður Elliðarárdalinn frá efsta punkti Poweradehringsins.  Áfram niður í Fossvogsdalinn niður að sjávarmáli þar sem sumir lengdu fyrir Kársnesið meðan aðrir fóru yfir hálsinn. Í Kópavogsdalnum hinum megin voru aftur vegvillur og gekk misvel að finna réttu undirgöngin til að komast upp í Lindir.  Eftir að komið var upp í Lindir varð gatnakerfi Kópavogs öllum óskiljanlegt, hópurinn tvístraðist aðeins, sameinaðist aftur en stefndi þó alltaf eitthvað í rétta átt, aftur upp í Sali og sundlaugina.

Ef einhver skilaði sér ekki, þá má kannski athuga hvort gulur jakki sé á ráfi þarna í fjöllum Kópavogs..

No comments:

Post a Comment