Tuesday, November 30, 2010

Esjuæfing

Margeir fékk þessa mynd frá einni Esjuæfingunni frá síðasta sumri. Maður biður spenntur eftir Esjuferðum næsta árs...


Kveðja
Reynir

Sunday, November 28, 2010

Sveitahlaup í frosti og fögru veðri

Mættir: Daníel, Halldóra, Reynir, Bjössi, Siggi, Jói, Kristján, Þórdís, Steinunn ? og undirrituð.

Veðurskilyrði: Ca 7 stiga frost, heiður himinn og algjör stilla.

Afrekshópi var gert að mæta við Lágafellslaug laugardaginn 28. nóvember. Upplegg dagsins var hlaup um Mosfellsveit og var tiltekið að brekkur yrðu á leið okkar.

Við lögðum í hann heldur kuldaleg. Sumir mættu í heimskautsbúningnum sínum á meðan aðrir létu nánast sumarflíkur nægja. Leiðin var eitthvað óljós til að byrja með en þegar uppi var staðið var þetta sirkabát 7-Tindahlaups-leiðin án tindanna. Fórum frá lauginni inn í dalinn sem Lágafellskirkja er í, hlupum þann dal til enda og fórum í dalinn þar sem Reykjalundur er ... þar fyrir fellið (sem ég held að heiti Reykjafell/Reykjaborg) og þaðan að Æsustaðafelli. Því næst var stefnan tekin að fjallsrótum Grímmannsfells sem allir Tindahlauparar dýrka og dá, enda auðveldasta fjallið í því annars ágæta hlaupi. Á leið okkar að fjallsrótunum römbuðum fram á hundaræktun .... þar var vond lykt ... og þar voru æstir hundar. ...... 400 metrum síðar rákumst við á ansi hárfagran hest og nokkra félaga hans. Þegar þessari dýravinafélagsstund var lokið tókum við stefnuna á veginn og síðan inn í Mosfellsbæ að nýju.

Í heildina hið huggulegasta og skemmtilegasta hlaup í undurfögru aðventuveðri með góðum félögum.

Með vinsemd og virðingu,
Helga Þóra

Thursday, November 25, 2010

Myrkur æfing!

Æfing frá Ármannsheimili um Laugardal, 4x1000 m sprettir á myrkum malarstíg, hlaupa þurfti sprettina að hluta til eftir minni vegna ljósleysis og söknuðu margir höfuðljósanna. Vel tekið á því samt og allir skiluðu sér að lokinni æfingu utan ein sem hér með er auglýst eftir. Danni stakk uppá að nýta Höllina á fimmtudagskvöldum a.m.k. yfir svartasta skammdegið....... líklega til að tína ekki fleiri liðsfélögum.

Fínasta æfing og góð mæting.

Höskuldur

Tuesday, November 23, 2010

fjölmenn þriðjudagsæfing í Höllinni.

Ótrúlega góð mæting í Höllina að þessu sinni, náði ekki að telja en örugglega mætingarmet. Eftir rúmlega 3km upphitun úti var farið í 200 og 400 metra spretti inni í höll, fjöldi spretta eftir prógrammi hvers og eins. Vel tekið á því að venju og góðar teygjur á eftir. Umræðuefni dagsins var handtaka ónefnds hlaupafélaga á rjúpnaveiðum um helgina : )
Minni á að væntanlegir Rotterdam maraþonhlauparar þurfa að melda sig inn við fyrsta tækifæri en til stendur að hittast í næstu viku og ákveða ferðatilhögun.


hlaupakveðja Höskuldur

Saturday, November 20, 2010

Laugadagur 20. nóvember

Afrekshittingur var á Hlíðarenda að þessu sinni. Hópurinn kom saman klukkan níu í myrkrinu og voru sex mættir, Albert, Bjössi, Danni, Jónína, Reynir og Siggi. Heldur fáir en samt fleiri en síðasta laugadag. Dagskráin var misjöfn hjá fólki um 60-120 mínútur. Hlupum við af stað niður í Nauthólsvík og inn Fossvogsdalinn. Sumir fóru hratt af stað og þurfti að hægja aðeins á þeim þeirra vegna. Hljóp ég(Reynir) með Danna og Sigga inn í Elliðaárdal og tókum Poweradehringinn. Svo var hlaupið sama leið til baka í gegnum Fossvogsdalinn. Einhverjir fóru upp að Árbæjarlaug og einn fór í menningarferð, að hans sögn, niður í Víkingsheimili, Þróttaraheimili, tónlistarhús og Valsheimili. Eru þeir aðilar til frásagnar um það sem á daga þeirra dreif.

Það voru ekki margir hlauparar á ferðinni á leiðinni uppeftir. Mættum einum skokkhóp, Árbæjarskokk, en á leiðinni niðureftir mættum við mun fleiri. Veðrið var til fyrirmyndar, nánast enginn vindur, þurrt og 7 stiga hiti. Fínt að hlaupa Poweradehringinn í dagsbirtu til tilbreytingar og upplifa sömu staði í betra ástandi ásamt því að skiptast á nokkrum Poweradesögum.

Næsta æfing á þriðjudag í frjálsíþróttahöllinni í Laugadal klukkan 18:00.

Thursday, November 18, 2010

Brekkusprettir í Laugardalnum

Þrettán hlauparar mættu í Ármannsheimilið í dag á æfingu, frábært mæting og gaman að sjá hvað fjölgar í hópnum. Upphafleg dagskrá hljóðaði reyndar upp á eltingaleik en henni var skyndilega breytt í brekkuspretti í grasinu í Laugardalnum.

Veðrið var gott, 7 stiga hiti en blautt og dáldið dimmt. Við létum það ekki á okkur fá og tókum fullt af mismunandi brekkusprettum, stuttum, löngum, hratt upp - hægt niður og hægt upp - hratt niður.

Frábær æfing í alla staði, með hefðbundinni upphitun og niðurskokki. Næsta æfing er á Laugardaginn, mæting fyrir utan Valsheimilið kl.09

JG

Wednesday, November 17, 2010

Þriðjudagsæfing í Laugardalshöll

Góð mæting var á sprettæfingu í höllinni. Eftir hefðbundinn upphitunarhring um Laugardalinn var farið í  hina sívinsælu 200 metra spretti á brautinni inní í höll. Að venju var misjafnt hve marga spretti meðlimir tóku og fór eftir áætlun hvers og eins en fjöldi spretta var frá 15  og uppí óteljandi að því er virtist en nokkrir ofurhlauparar voru enn í sprettunum þegar síðast fréttist og þegar aðrir meðlimir voru komnir heim búnir að fara í sturtu og sestir fyrir framan sjónvarpið.
Nú líður varla sú æfing að ekki sjáist ný andlit en að þessu sinni bættust 3 í hópinn sem ekki hefur sést til áður og eru „þær“ boðnar velkomnar. (auglýst er eftir nöfnum nýju meðlimanna)
Mættir: Danni, Siggi, Rafn, Helga, Jónína, Albert, Maggi, Bjössi, Margeir, Höskuldur, Kristján og 3 nýjir meðlimir sem mig vantar nöfnin á. (Jói mætti líka en ekki á hlaupaskónum)
Hlaupakveðja Höskuldur

Sunday, November 14, 2010

Powerade hlaup nr.2


Powerade 11.Nóvember.  
11. hlauparar hlupu að þessu sinni undir merkjum Afrekshópsins. Hlaupið var við heldur kuldalegar aðstæður, frost og vindstrekkingur. Árangurinn var með ágætum eins og sjá má í töflunni hér að neðan. 340 manns tóku þátt í hlaupinu.
Nafn
Tími
sæti
Sæti í flokk
Sæti í stigak.
Daníel
39:17
18
2
2.
Margeir Kúld
41:32
35
7
4.
Sigurður K
41:56
42
8
6.
Höskuldur Ó
41:58
43
5
4.
Reynir J
42:16
48
8
8.
Viktor V
43:10
58
13
10.
Albert
45:23 PB
86
15

Kristján G
46:44
114
4
3.
Björn K
53:18
233
34

Magnús
54:16
246
16

Helga Þóra
54:24
249
18
12.
Jónína



6.
 Hlaupakveðja, Höskuldur

Saturday, November 13, 2010

Gettóhlaup

Mættir: Daníel, Parísar-Bjössi og undirrituð.

Veðurskilyrði: Mun betri en þau litu út fyrir að vera þegar maður leit út um gluggann í morgun.

Afrekshópi var gert að mæta við Breiðholtslaugina kl. 9:00 í morgunsárið. Þegar undirrituð mætti í anddyri laugarinnar í morgun rakst hún á hlaupara úr ÖÐRUM hlaupahópi! Undirrituð varð óörugg og vissi ekki hvernig hún átti að haga sér innan um þessa ókunnugu hlaupara. Til allrar hamingju kom Daníel fljótlega ... og stuttu síðar Bjössi þannig að undirrituð var hólpin.

Þegar klukkan var orðin 9:10 ákváðum við að leggja í hann. Þvílík mæting! VÁ. Við erum að tala um eitt stærsta Afrekshópshlaupapartý veraldarsögunnar. Það var ekki þverfótað fyrir þessu liði þarna í Austurberginu. Ég þurfti stöðugt að vera sparka Sigga og Reyni frá mér svo ég kæmist nú áfram ...

........eða þið vitið, svona næstum því. Þetta var mun fámennara hlaup. Við Daníel og Bjössi þurftum að berjast í gegn ískaldan næðinginn í efri hlíðum Breiðholtsins á eigin spýtur. Daníel fór í Breiðholts-nostalgíukast og vildi leiða okkur einn 10 km klassíker sem hann hljóp alltaf á sínum yngri árum ... þegar hann var upp á sitt besta eins og hann orðaði það :D

Til að gera langa sögu stutta var þetta flott hlaup og ótrúlega frískandi. Breiðhyltingar eru bara ágætir ...

Með vinsemd og virðingu,
Helga Þóra

Tuesday, November 9, 2010

Laugardalshallarsprettir í byrjun nóvember

Mættir: Daníel, Halldóra, Jóhanna, Reynir, Margeir, Kristján, Höskuldur, Bjarnsteinn, Parísar-Bjössi, Bara-Bjössi, Akranes-Magnús, Siggi sem var hálfur í dag, Albert og undirrituð.

Veðurskilyrði úti við: Mjög góð. Svalt (gráðurnar voru í mínus), logn og fagurt veður. Parísar-Bjössi var í stullum. Förum ekki nánar út í þá vitleysu að svo komnu máli.
Veðurskilyrði inni: Mjög góð. Heldur heitt fyrir fólk í langermabol, vetrarbuxum og með buff.

Uppleggið í dag, fyrir flesta, var 15 x 200 metra sprettir. Mjög huggulegt og temmilegt fyrir Powerade-hlaupið nk. fimmtudag.
Við byrjuðum á því að taka klassíkerinn, þ.e. hefðbundna upphitun í Laugardal. Þar lenti undirrituð í umræðum við Daníel og Bjarnstein um gildi tempóhlaupa, brekkuspretta og styrkingaræfinga fyrir fólk í mismunandi íþróttum. Ég hafði mína skoðun.... og Daníel sína .... við vorum ekki sammála :D Síðan var rætt um svaðilför til Kanarí og 50x200 mtr sprettæfingu. Að þeim umræðum loknum, ásamt maraþonspjalli við Akranes-Magnús, vorum við skyndilega komin inn í höll! Time flies when you´re having fun =o)

Afrekshópurinn var flottur inni í höll - lang flestir í merktum Afrekshópsbolum sem leit mjög gæðalega og atvinnumannslega út :)
Það var tekið hraustlega á því og mátti sjá svitadropa spretta og mörg þreytupúst hér og þar.

Næst á dagskrá: Powerade.

Með vinsemd og virðingu,
Helga Þóra

Saturday, November 6, 2010

fimmtudagur 4. nóv

„gæðaæfing“ í Laugardal í fimbulkulda. Eftir upphitun var farið í hinn alræmda eltingarleik sem útfærist þannig að teknir eru jafn margir spretti og þáttakendur eru og hver og einn fær að leiða einn sprett, reyndar tvo í þetta skiptið þar sem teknar voru tvær umferðir. 8 manns voru á æfingunni svo við enduðum með 16 spretti, mislanga og hraða en flestir voru í kringum 1 min. Augljóslega lögðu allir mikinn metnað í „sinn“ sprett og voru sumir svo hraðir að félagar liggja undir grun um að hafa sparað sig mjög  í öðrum sprettum til að geta sýnt sitt besta í sýnum spretti J . Fæfingin endaði í góðum 10 km.
Umræðuefni æfingarinnar var markmiðasetning fyrir næsta ár en þjálfarinn hefur riðið á vaðið með mjög svo metnaðarfullum markmiðum og eru allir sem þora hvattir til að upplýsa hópinn um markmið sýn fyrir árið 2011.
Mættir: Daníel, Helga, Jóhanna, Kristján, Rafn, Albert, Bjössi og undirritaður.
Höskuldur

Tuesday, November 2, 2010

Þriðjudagsæfing í Höllinni.

Sprettæfing í Höllinni, byrjað á upphitun í skítakulda og roki um Laugardalinn, forystusauðirnir gátu greinilega ekki beðið eftir að komast inn í hlýjuna og var því hringurinn í styttra lagi. Þjálfarinn var fljótur að sjá við þessu og setti upp auka upphitunaræfingar í höllinni, hraðaaukningar og allar mögulegar gerðir af drillum sem var bráðskemmtileg tilbreyting. Þegar allir voru orðnir sjóðheitir í drillunum var farið í 200 metra spretti með 45 sek pásu á milli, tóku menn ýmist 15 eða 20 spretti.  Karlhormónarnir voru allsráðandi á þessari æfingu þar sem engin af stelpunum lét sjá sig.
Mættir voru Daníel, Margeir, Siggi, Maggi, Bjössi, Bjarnsteinn,  Björn og Albert ásamt undirrituðum.

Höskuldur