Kv, AÞ
Afrekshópur er hópur hlaupara sem æfir markvisst til að ná árangri og leggur áherslu á gæði æfinga.
Wednesday, March 30, 2011
Tuesday, March 29, 2011
Rotterdam-gauka æfing
Rotterdam- gaukarnir (eins og sumir kalla þá) mættu á æfingu frá Ármannsheimilinu að venju klukkan 17:15 á mánudag, en þessi angi af Afrekshópnum telur aðeins orðið brot af hinum ört stækkandi hlaupahópi sem reyndar er orðin svo stór að maður er alveg búin að gefast upp á að læra öll nýju nöfnin enda telur hópurinn orðið hátt í 60 manns ef ekki meira. Ég held bara að Danni sé komin í fanta gott form af því einu að hlaupa á milli bæjarhluta til að sinna þjálfun hinna ýmsu hlaupahópa innan Afrekshópsins.
Allavega þá var rúmlega 100% mæting hjá Rotterdam- gaukunum en mættir voru Danni, Bjössi, Margeir og undirritaður en að auki höfum við fengið til liðs við okkur á æfingarnar Sævar Skaptason fararstjóra bændaferðahópsins til Rotterdam.
Æfing dagsins var eins og síðustu mánudaga Fartlek, 2+3+4+5+4+3+2 minútur með sama skokk á milli. Vel var tekið á því enda ekki laust við að menn séu að komast í gott form og auðvelt að missa sig í þessu frábæra vorveðri sem er kærkomin tilbreiting frá umhleypingunum sem einkennt hafa æfingarnar undanfarnar vikur.
Hlaupakveðja, Höskuldur Ó
Sunday, March 27, 2011
Lúxusdýr
Mættir: Margir. Og mjög margir sem ég hef ekki hugmynd um hvað heita! Ég held að við þurfum að fara í nafnaleik á einhverri æfingunni.
Veðurskilyrði: Logn og úði. Himneskt veður.
Við hittumst við höfuðstöðvar Valur-Skokk-hlaupahópsins - að Hlíðarenda. Undirrituð gat ekki betur séð en að ferskleikinn svifi yfir vötnum - allir hressir og kátir svona í morgunsárið í birtunni.
Það vantaði reyndar mikilvæga mannveru í upphafi æfingar - Reyni! Fregnir herma að bíllinn hans hafi sprungið í gærmorgun. Sel það ekki dýrara en ég keypti það (s.s. af hlaupadagbók Reynis). Hann hitti reyndar fremstu menn fljótlega því hann kom hlaupandi að heiman!
Nú, svo var þetta bara ósköp heiðarleg hlaupaæfing í lúxusfærð. Lítill snjór, engar hnélyftur og lítil hálka. Fremstu menn hurfu fljótt og eftir varð hlaupaalmúginn í þéttum kjarna. Margir Afrekshópsmeðlimir tóku 15 km hring með því að trítla Ægisíðuna og stefna út á hið ógurlega Seltjarnarnes þar sem jafnan ríkir mikið rok. Þetta var þó ósköp huggulegt í gær í logninu. Rotterdam-gaukarnir fræstu hins vegar stíga og götur upp í 35 km enda eiga þeir eitt stykki maraþon fyrir höndum eftir 2 vikur ef undirritaðri skjátlast ekki! Það verður spennandi að sjá hvaða fantagóða árangri fulltrúar Afrekshópsins ná að landa :)
Annars er tilhlökkun til vors og sumars gífurleg hjá undirritaðri - tel nokkuð víst að fleiri séu sammála því!
Með vinsemd og gífurlegri virðingu,
Helga Þóra

Saturday, March 19, 2011
Alls konar fyrir aumingja?
Neehei! Ekki í dag. Óruddir stígar eru sko ekki eitt af þessu alls konar fyrir aumingja, það er morgunljóst.
Mættir: Daníel, Anna Lára, Þórdís, Reynir, Bjössi, Albert, Siggi, Jói, maður með gleraugu sem ég veit ei hvað heitir en Siggi veit það því hann var að tala við hann, Arnór (því Anna Lára sagðimjérða), Gróa og undirrituð.
Þessi tignarlegi og litríki hópi lagði upp frá Valsheimili rétt rúmlega átta. Og það var BJART! Þvílíkur lúxus. Það var líka eini lúxusinn í dag því við máttum vaða hnéháa skafla allt hlaupið (undirrituð tekur sér það bessaleyfi að ýkja frásagnir endrum og sinnum til að gera hlutina meira krassandi og dramatíska).
Bjössi litlu-táar-böðull var alveg extra mjór í morgun. Svo mjór, að undirrituð tók ekki eftir því að hann var vopnaður heilu drykkjarbelti undir jakkanum sínum! Það var ekki eina vopnið hans því hann var einnig vopnaður sérstökum gúmmíhólk sem hann smeygði yfir löskuðu litlu tána (sem var nú þegar með second skin, heftiplástur og vaselín) þannig að hann gæti jú hlaupið í dag! ALLT fyrir hlaupin. Allt.
Af öðrum hefur undirrituð lítið að segja... tja, jú. Rotterdamgaukarnir Höskuldur og Margeir bættust við hópinn þegar ca 250 metrar lágu í valnum. Þeir hlupu heiman frá sér. Nú gildir ekkert annað en kílómetrasöfnun hjá maraþonurunum því Rotterdam-maraþonið er nær en ykkur öll grunar! Höskuldur bar þess merki að hafa barist í gegnum skafla og snjóstorm ofan úr Árbæ.... hárið hans var frosið og þakið snjó og hann minntist á að færðin væri ekki góð. Höskuldur er hógvær maður sem kvartar sjaldrei (sjaldan+aldrei) þannig að við getum kvittað undir að færðin var slæm.
Leiðin lá niður í Nauthólsvík og inn á Ægisíðu. Þar beygði undirrituð til hægri upp Hofsó og í humátt kom Gróa í bleika jakkanum. Saman hlupum við stystu leið í Valsheimilið.
Restin fór lengra. Maður eru að sjá tölur allt frá 14 km upp í þrjátíuogfimmkommaeitthvað á hlaupadagbókinni. Sel það ekki dýrara en ég keypti það.
Með vinsemd og mikilli virðingu,

Wednesday, March 16, 2011
Gran Canari Fjalla-maraþon
6 Afrekshópshlauparar tóku þátt í Ofur-Fjalla-Maraþoni á Gran Canari 4-6.mars alls 123km við erfiðar aðstæður. Öll kláruðu með glæsibrag, til hamingju með þrekvirkið!
HÓ
Röð | Tími | Nafn | Röð í aldursfl. | Aldursfl. | Meðalhraði pr km |
102 | 23:27:52 | Sigurdur Kiernan | 27 | M40M | 11:27 |
164 | 28:43:18 | Johann Gisli Sigurdsson | 72 | M30M | 14:01 |
166 | 29:11:23 | Anna Sigridur Sigurjonsdottir | 4 | M40F | 14:15 |
167 | 29:11:23 | Helga Thora Jonasdottir | 1 | ELF | 14:15 |
168 | 29:11:26 | Christine Buchholz | 5 | M40F | 14:15 |
169 | 29:11:27 | María Jóhannesdóttir | 6 | M40F | 14:15 |
HÓ
Tuesday, March 15, 2011
Mánudagsæfing
Mánudagsæfing frá Þróttheimili kl 17:15. Þrátt fyrir afleitt veður og óspennandi spá þá voru um 10 hlauparar mættir á þessa æfingu. Það hitti reyndar svo snilldarlega vel á að það stytti upp rigninguna á meðan á æfingunni stóð svo við þurftum aðeins að þola rokið sem var ekki mikið mál. Farið var inn í Fossvog þar sem teknir voru sprettir 2min+3min+4min+5min+4min+3min+2min með sama tíma í skokk á milli. Hlupum frá Sprengisandi gegnum Fossvoginn út að flugvelli og til baka, síðan var skokkað til baka niðrí Þróttheimili. Á heimskokkinu vaknaði sú spurning hvort logga mætti skokkið sem tempó hlaup, svo mikill var hraðinn (að sumra mati a.m.k.) Það kom þó til góða að hraða heimferðinni þar sem skall á með grenjandi rigningu á síðustu metrunum svo menn og konur rétt sluppu í hús að teygja án þess að blotna mikið.
Súper fín æfing uppá ca.17km
Kv HÓ
Sunday, March 13, 2011
Powerade nr 6
Það voru 11 félagar sem tóku þátt í síðasta powerade hlaupi vetrarins í snjóþæfingi en annars prýðis góðu veðri. Tæplega 200 manns tóku þátt í hlaupinu. Nú liggja fyrir heildarúrslit eftir veturinn og augljóst að hópurinn okkar er að styrkjast verulega, má nefna m.a. að við urðum í 6. sæti í hópakeppninni en komumst ekki í top 10 síðasta vetur.
Hlaupakveðja HÓ
Nafn | Tími | sæti | Sæti í flokk | Sæti í stigak. |
Höskuldur Ó | 40:54 | 11 | 2 | 3 |
Margeir | 41:40 | 15 | 3 | 4 |
Haraldur V | 43:03 | 23 | 4 | 4 |
Viktor V | 43:54 | 27 | 5 | 7 |
Anna Lára | 51:01 | 93 | 1 | 5 |
Björn Arnars | 53:10 | 116 | 14 | |
Hannes H | 53:34 | 120 | 22 | |
Þórdís | 53:37 | 124 | 5 | 18 |
Guðmann B | 56:05 | 145 | 24 | 13 |
Gróa | 61:00 | 175 | 16 | |
Birna G | 61:22 | 176 | 11 |
Hlaupakveðja HÓ
Wednesday, March 9, 2011
Þriðjudagssprettir
Afrekshópurinn hittist í frjálsíþróttahöllinni þennan þriðjudaginn. Í upphafi æfingar hafði Anna Lára lofað okkur ljósmyndara frá Morgunblaðinu og því gerðu menn því ýmislegt til þess að sjást betur í mynd. Einhverjir settu upp Liverpool- og Man Utd húfur til að vekja athygli á málsstaðnum en aðrir þvoðu íþróttafötin sín fyrir æfinguna extra vel. Svo þegar ljósmyndarinn myndaði okkur við Laugadalsstúkuna voru menn óvenju sporléttir.
Hefðbundinn upphitunarhringur var skokkaður að venju í frekar snjóþungu færi. Síðan fór fólk að gera sig tilbúna fyrir spretti dagsins. Þjálfi hafði sett 200m spretti á dagskrá og tóku menn mismarga að venju. Einhverjir voru að hlaupa í höllinni í fyrsta skipti og fannst þeim loftið þurrt í höllinni en það venst.
Óvenju fjölmennt var að þessu sinni og ekki ólíklegt að fjöldamet hafi verið slegið. Sá ég þjálfa telja hve margir voru á æfingunni og væri gaman að vita hvað hann taldi marga. Ef ég yrði að slumpa á fjöldann þá myndi ég giska á um 30 manns.
Næsta fimmtudag er það svo Powerade!!! Veðrið hefur farið stigversnandi í síðustu hlaupum og vonandi hefur botninum verið náð núna í febrúar. Vonum að veðurguðirnir (ekki hljómsveitin hans Ingó heldur hinir) verði hlaupurum hliðhollir að þessu sinni.
Kveðja,
Reynir

Wednesday, March 2, 2011
Þriðjudagsæfing
Hinn klassíski upphitunarhringur tekinn í slabbi og bleytu og engu líkara en að froskahjörð hefði gert innrás í Dalinn við Laugarnar slík voru slabbbbhljóðin í hverju skrefi hlaupara.
..já blautt var það
En þegar inn var komið lumuðu einhverjir á aukasokkum og jafnvel aukaskóm meðferðis en undirrituð var ekki í þeim lúxus heldur tók sprettina með poll í skónum :)
Byrjendahópur Daníels Smára var mættur á brautina með okkur og áhuginn, metnaðurinn og talentinn skein úr andlitum þeirra ! Byrjendur hvað ?? Daníel Smári hélt sig á hliðarlínunni og taldi hringina fyir hvern og einn hlaupara, þvílík þjónusta því eins og vanir hlauparar í Afrekshópnum vita þá er ekkert jafn erfitt við þessa spretti en að halda tölu á þeim !
20 x 200 m sprettir á dagskrá hjá okkur í dag og Þórdís loksins búin að fá sér Bleiku Sokkana og sýndi mun betri tilburði fyrir vikið :)
Sjáumst á fimmtudaginn

Subscribe to:
Posts (Atom)