Afrekshópurinn hittist í frjálsíþróttahöllinni þennan þriðjudaginn. Í upphafi æfingar hafði Anna Lára lofað okkur ljósmyndara frá Morgunblaðinu og því gerðu menn því ýmislegt til þess að sjást betur í mynd. Einhverjir settu upp Liverpool- og Man Utd húfur til að vekja athygli á málsstaðnum en aðrir þvoðu íþróttafötin sín fyrir æfinguna extra vel. Svo þegar ljósmyndarinn myndaði okkur við Laugadalsstúkuna voru menn óvenju sporléttir.
Hefðbundinn upphitunarhringur var skokkaður að venju í frekar snjóþungu færi. Síðan fór fólk að gera sig tilbúna fyrir spretti dagsins. Þjálfi hafði sett 200m spretti á dagskrá og tóku menn mismarga að venju. Einhverjir voru að hlaupa í höllinni í fyrsta skipti og fannst þeim loftið þurrt í höllinni en það venst.
Óvenju fjölmennt var að þessu sinni og ekki ólíklegt að fjöldamet hafi verið slegið. Sá ég þjálfa telja hve margir voru á æfingunni og væri gaman að vita hvað hann taldi marga. Ef ég yrði að slumpa á fjöldann þá myndi ég giska á um 30 manns.
Næsta fimmtudag er það svo Powerade!!! Veðrið hefur farið stigversnandi í síðustu hlaupum og vonandi hefur botninum verið náð núna í febrúar. Vonum að veðurguðirnir (ekki hljómsveitin hans Ingó heldur hinir) verði hlaupurum hliðhollir að þessu sinni.
Kveðja,
Reynir
það var sett mætingarheimsmet! 35 held ég Danni hafi sagt eftir nokkrar tilraunir til að telja hópinn.
ReplyDeletekv HÓ
Þvílík vonbrigði með myndavalið í Mogganum. Það sést ekkert í Liverpool húfuna mína! Hefði átt að taka fánann með. :/
ReplyDeleteVorum 35 hlauparar mættir að mér meðtöldum.
ReplyDeleteFlott mæting og margir öflugir hlauparar að bætast í hópinn.
ReplyDeletePassar þig á því næst Albert að skokka líka með fánann þegar ljósmyndari er á ferð :D
kv. Anna Lára