Wednesday, March 9, 2011

Þriðjudagssprettir

Afrekshópurinn hittist í frjálsíþróttahöllinni þennan þriðjudaginn. Í upphafi æfingar hafði Anna Lára lofað okkur ljósmyndara frá Morgunblaðinu og því gerðu menn því ýmislegt til þess að sjást betur í mynd. Einhverjir settu upp Liverpool- og Man Utd húfur til að vekja athygli á málsstaðnum en aðrir þvoðu íþróttafötin sín fyrir æfinguna extra vel. Svo þegar ljósmyndarinn myndaði okkur við Laugadalsstúkuna voru menn óvenju sporléttir.

Hefðbundinn upphitunarhringur var skokkaður að venju í frekar snjóþungu færi. Síðan fór fólk að gera sig tilbúna fyrir spretti dagsins. Þjálfi hafði sett 200m spretti á dagskrá og tóku menn mismarga að venju. Einhverjir voru að hlaupa í höllinni í fyrsta skipti og fannst þeim loftið þurrt í höllinni en það venst.

Óvenju fjölmennt var að þessu sinni og ekki ólíklegt að fjöldamet hafi verið slegið. Sá ég þjálfa telja hve margir voru á æfingunni og væri gaman að vita hvað hann taldi marga. Ef ég yrði að slumpa á fjöldann þá myndi ég giska á um 30 manns.

Næsta fimmtudag er það svo Powerade!!! Veðrið hefur farið stigversnandi í síðustu hlaupum og vonandi hefur botninum verið náð núna í febrúar. Vonum að veðurguðirnir (ekki hljómsveitin hans Ingó heldur hinir) verði hlaupurum hliðhollir að þessu sinni.

Kveðja,
Reynir

4 comments:

  1. það var sett mætingarheimsmet! 35 held ég Danni hafi sagt eftir nokkrar tilraunir til að telja hópinn.

    kv HÓ

    ReplyDelete
  2. Þvílík vonbrigði með myndavalið í Mogganum. Það sést ekkert í Liverpool húfuna mína! Hefði átt að taka fánann með. :/

    ReplyDelete
  3. Vorum 35 hlauparar mættir að mér meðtöldum.

    ReplyDelete
  4. Flott mæting og margir öflugir hlauparar að bætast í hópinn.

    Passar þig á því næst Albert að skokka líka með fánann þegar ljósmyndari er á ferð :D

    kv. Anna Lára

    ReplyDelete