Mánudagsæfing frá Þróttheimili kl 17:15. Þrátt fyrir afleitt veður og óspennandi spá þá voru um 10 hlauparar mættir á þessa æfingu. Það hitti reyndar svo snilldarlega vel á að það stytti upp rigninguna á meðan á æfingunni stóð svo við þurftum aðeins að þola rokið sem var ekki mikið mál. Farið var inn í Fossvog þar sem teknir voru sprettir 2min+3min+4min+5min+4min+3min+2min með sama tíma í skokk á milli. Hlupum frá Sprengisandi gegnum Fossvoginn út að flugvelli og til baka, síðan var skokkað til baka niðrí Þróttheimili. Á heimskokkinu vaknaði sú spurning hvort logga mætti skokkið sem tempó hlaup, svo mikill var hraðinn (að sumra mati a.m.k.) Það kom þó til góða að hraða heimferðinni þar sem skall á með grenjandi rigningu á síðustu metrunum svo menn og konur rétt sluppu í hús að teygja án þess að blotna mikið.
Súper fín æfing uppá ca.17km
Kv HÓ
No comments:
Post a Comment