Sunday, April 10, 2011

Rotterdam Maraþon

Jæææjaaa,  þá er þessari þolraun lokið hjá Rotterdam-gaukunum. Í stuttu máli þá gekk bara vel þó ekki hafi náðst að uppfylla metnaðarfyllstu markmiðin í dag. Allir þó á PB í hópnum nema Danni sem náði ekki að bæta 2:28 tímann sinn að þessu sinni en það er víst svo gamall tími að hann er ekki tekinn með svo hann var líka á PB (að eigin sögn). Veðrið var alveg óþarflega gott fyrir okkur, 19° og glampandi sól en það var mikil stemming og allir höfðu gaman af........nema  eftir 30km það var bara ekkert gaman! Svo við séum nú alveg hreinskilnir, en það er víst eðlilegt þ.e. það á ekki að vera gaman.  Við vorum búnir að búa til alveg rosa stóran afsökunarlista fyrir því að hafa ekki náð enn betri tíma en Þjálfarinn fékk okkur til að eyða honum og taka allt það jákvæða útúr þessu og lýta á björtu hliðaran sem er jú alveg rétt hjá honum. Allir sáttir enda PB dagur!
Nákvæmari lýsing væntanleg á hlaup.com.
Tímarnir okkar svona ca.
Margeir 3:05
Danni    3:08:59
Hössi     3:12
Bjössi    4:40
Vinsamlegast hrósa okkur alveg rosalega mikið fyrir þetta, við þurfum á því að halda!
Kveðja frá Rotterdam,

7 comments:

  1. Til hamingju með hlaupið strákar. Getið verið sáttir við PB í þessu hlaupi. Búið að setja nýtt takmark til að stefna að í framtíðinni.

    ReplyDelete
  2. Stórglæsilegt hjá ykkur. Innilega til hamingju með PB
    hlaupakveðja
    Anna Lára

    ReplyDelete
  3. Til hamingju með flott hlaup! Þessir tímar eru sko hreint ekkert til að skammast sín fyrir. Skál fyrir ykkur! :)

    ReplyDelete
  4. Glæsilegt ! Til hamingju strákar með PB !
    kv
    Inga

    ReplyDelete
  5. ahaha, ekkert mál, ég skal sko hrósa ykkur! Ég segi bara hjartanlega og innilega til hamingju með PB-in ykkar =o) Ég er viss um að þið Afreksdrengir hafi borið af þarna í Rotterdam í dag! Hlakka til að fá nánari lýsingar á upplifun ykkar í dag - alltaf gaman að lesa þolraunasögur :p
    Helga Þóra

    ReplyDelete
  6. Þrefalt húrra fyrir afreksmönnum: Húrra, húrra, HÚRRA! :D

    Kveðja,
    Laddi.

    ReplyDelete
  7. Til hamingju piltar - það var væntanlega ekki gaman að streða við 3t múrinn í 19°C...
    Viktor

    ReplyDelete