Thursday, September 30, 2010

Tempó í Laugardal

Mæting við Laugardalslaug í dag þar sem framundan var tempóæfing. Mættir voru Daníel, Siggi, Höskuldur, Friðrik, Kristján, Reynir, Rafn, Bjössi, Margeir og Jónína.

Farinn var sami hringur og síðasta fimmtudag, rúmlega 4 km hringur í upphitun og síðan sami hringur aftur á tempó. Ekki eru menn á einu máli með lengdina þó og ég er ekki frá því að hann lengist örlítið í hvert sinn, heyrði einhvern tala um 4,33 km sem réttustu mælinguna.

Fínasti hringur í ágætis veðri og góðum félagsskap þó það hefðu alveg mátt vera fleiri stelpur !

Næsta æfing á laugardag - RÍKISHRINGURINN

JG

Monday, September 27, 2010

Brekkusprettir

Mæting á mánudegi á Miklatún venju samkvæmt. Mættir voru Daníel, Reynir, Margeir, Kristján, Jóhanna, Hannes, Viktor, Lemlem, Halldóra, Barcelona Bjössi og Jónína.

Á dagskrá voru brekkusprettir og búið var að lofa betri brekku en síðast, þ.e. ekki eins brött en þeim mun lengri í staðinn. Fínasta hlaupaveður, hlýtt og vindur frekar rólegur.

Haldið var af stað með hópinn í Öskjuhlíðina og teknir sprettir frá Sóllandi að Perlu. Teknir voru átta c.a. 340-360 m sprettir, þeir allra hörðustu tóku þó tíu. Fínustu sprettir sem tóku vel í. Að lokum var tekið niðurskokk til baka.

Næsta æfing á fimmtudaginn - Tempó í Laugardalnum

JG

Saturday, September 25, 2010

Heiðmörk 25. september

Afrekshópurinn hittist í Heiðmörkinni á hefðbundnum stað við Helluvatn. Mættir voru Daníel, Hannes, Jóhanna, Jónína, Kristján, Lemlem, Margeir og undirritaður (Reynir). Dagskráin sagði einn rólegur hringur.

Veðurútlitið var ekki glæsilegt, rok og rigning. Var farið rólega af stað og héldum við hópinn. Einhverra hluta vegna talaði Margeir um fátt annað en Blikaleikinn og hvað rokið hentaði Eyjamönnum miklu betur en Blikum. Eftir um hálfan hring hvarf Margeir úr augsýn. Kom það svo í ljós að hann var að verða of seinn á Players þar sem Blikarnir ætluðu að hittast klukkan 10 og hita upp fyrir leikinn. Fyrstu 4 km. einkenndust af miklum mótvind og rigningu í fangið. Eftir það þegar hæsta punkti var náð var þetta meira í bakið og allt léttara. Voru svo blautir hlauparar sem komu að bílastæðinu eftir rúmlega klukkustund.

Fín æfing í frekar slæmu veðri og gaman að endurnýja kynnin við Heiðmerkurhringinn. Næsta sameiginlega æfing er á mánudaginn klukkan 17:15 á Klambratúni.

Kveðja
Reynir

Friday, September 24, 2010

Æfing Heiðmörk laugardag kl 8.00

Munnið æfinguna á morgun kl 8.00. Mætum og styðjum Reyni maraþonhlaupara og hlaupum með honum hringinn góða. Lagt af stað frá Helluvatni.

Thursday, September 23, 2010

Tempó í Laugardal

Mættir: Daníel, Halldóra, Höskuldur, Jónína, Jóhanna, Margeir, Reynir, Kristján, Barcelona-maraþonfarinn sem er einnig félagi Reynis (og heitir?) og undirrituð.

Veðurskilyrði: Skýjað, 10°C hiti og svo gott sem logn. Sem sagt eðal hlaupaveður.

Meðlimir Afrekshópsins mættu við stúkuna í Laugardal í mikilli óvissu um hvar hópurinn ætti í raun og veru að hittast! Laugardalur ... Laug ... Laugardalslaug ... fólk tvísté og vissi ekki hvernig það átti að haga sér ...... sumir veltu vöngum yfir því hvort Daníel væri ennþá að afgreiða í búðinni á meðan aðrir héldu því fram að hann biði við laugina. Óvissuástandi var aflýst þegar hlaupaforinginn mætti á svæðið á hjólinu, gíraður eins og Lance Armstrong.

Plan dagsins hljómaði upp á 3 km upphitun og 3 km tempó ásamt niðurskokki. Undir lok æfingar reyndust þetta var ca 4,5 km í upphitun, 4,25 km í tempó og rétt rúmlega kílómetri í niðurskokk. Alltaf gott að græða aukakílómetra hér og þar til að hífa sig upp listann á hlaup.com!

Maraþon-Reynir sagðist vera þreyttur og ætlaði að fylgja plani meirihlutans í stað þess að fylgja ofurhlaupaplaniu sínu. Enda er kappinn búin að vera ansi iðinn við kolann þessa vikuna. Við lýstum blessun okkar yfir þá ákvörðun hans.

Eftir æfingu voru teknar misgóðar teygjur. Höskuldur fær fyrstu verðlaun fyrir góðar teygjur, enda naut hann aðstoðar Daníel við hinar ýmsustu teygjur. Svo svakalegar voru teygjurnar á tímabili að menn töluðu um að Daníel væri að úrbeina Höskuld þar sem hann lá sveigður og teygður í spað og tætlur á gangstéttinni.....

Næsta æfing, Heiðmörk?

Með vinsemd og virðingu,
Helga Þóra

Monday, September 20, 2010

Æfing 20.09.10

Staður: Miklatún
Mættir: Daníel, Siggi, Kristján, Reynir, Margeir, Höskuldur, Hannes, Jóhanna, Halldóra og Jónína
Vegalengd: 7-7,5 km

Hópurinn lagði af stað frá Miklatúni kl.17:15 þar sem ferðinni var heitið í Öskjuhlíðina. Á dagskránni í dag voru 6-8 30 sek brekkusprettir. Valin var brött og góð brekka upp að Perlunni sem reyndist lengri en 30 sek. Sprettirnir voru því u.þ.b. 1:15 min langir og tóku þokkalega vel í, bæði læri og lungu. Síðan var skokkað í rólegheitum til baka og teygt vel á (treysti á það allavega, þar sem ég hljóp ekki með tilbaka). Fín æfing í frábæru hlaupaveðri, logni og smá rigningu.

Saturday, September 18, 2010

Saucony 5km hlaup

Þann 9. september síðastliðinn tóku 5 meðlimir Afrekshópsins þátt í Saucony hlaupinu sem fram fór í Árbænum. Skemmtilegt hlaup á ágætis braut, þokkalegt veður þó flestir hafi komið hundblautir í markið.
104 keppendur voru skráðir til leiks.
árangur:

Höskuldur Ólafsson       00:18:47     9.sæti (4.í aldursflokki)
Viktor J. Vigfússon      00:20:00    19.sæti (9.í aldursflokki)
Margeir Kúld Eiríksson   00:20:43    28.sæti (11.í aldursflokki)
Reynir Jónsson           00:20:59    31.sæti (9.í aldursflokki)
Kristján Gunnarsson      00:22:04    44.sæti (5.í aldursflokki)

HÓ.

Friday, September 17, 2010

Heimasíða Afrekshópsins

Fimmtudaginn 16.september var haldinn fundur hjá Afrekshópnum þar sem farið var yfir árangur þessa árs og rætt var hvað væri framundan í æfingum og markmiðum ársins 2011. Ein af þeim hugmyndum sem upp komu var að stofna heimasíðu fyrir hlaupahópinn. Hugmyndin er að síðan verði vettvangur til að skrá inn upplýsingar um æfingar og annað sem er á döfinni  og vonandi verður hægt að finna hér inni eitthvað af skemmtilegu og fræðandi efni um hlaup og hlaupatengt efni félögum og utanaðkomandi vonandi til gagns og gamans.