Mæting á mánudegi á Miklatún venju samkvæmt. Mættir voru Daníel, Reynir, Margeir, Kristján, Jóhanna, Hannes, Viktor, Lemlem, Halldóra, Barcelona Bjössi og Jónína.
Á dagskrá voru brekkusprettir og búið var að lofa betri brekku en síðast, þ.e. ekki eins brött en þeim mun lengri í staðinn. Fínasta hlaupaveður, hlýtt og vindur frekar rólegur.
Haldið var af stað með hópinn í Öskjuhlíðina og teknir sprettir frá Sóllandi að Perlu. Teknir voru átta c.a. 340-360 m sprettir, þeir allra hörðustu tóku þó tíu. Fínustu sprettir sem tóku vel í. Að lokum var tekið niðurskokk til baka.
Næsta æfing á fimmtudaginn - Tempó í Laugardalnum
JG
No comments:
Post a Comment