Staður: Miklatún
Mættir: Daníel, Siggi, Kristján, Reynir, Margeir, Höskuldur, Hannes, Jóhanna, Halldóra og Jónína
Vegalengd: 7-7,5 km
Hópurinn lagði af stað frá Miklatúni kl.17:15 þar sem ferðinni var heitið í Öskjuhlíðina. Á dagskránni í dag voru 6-8 30 sek brekkusprettir. Valin var brött og góð brekka upp að Perlunni sem reyndist lengri en 30 sek. Sprettirnir voru því u.þ.b. 1:15 min langir og tóku þokkalega vel í, bæði læri og lungu. Síðan var skokkað í rólegheitum til baka og teygt vel á (treysti á það allavega, þar sem ég hljóp ekki með tilbaka). Fín æfing í frábæru hlaupaveðri, logni og smá rigningu.
No comments:
Post a Comment