Afrekshópurinn hittist í Heiðmörkinni á hefðbundnum stað við Helluvatn. Mættir voru Daníel, Hannes, Jóhanna, Jónína, Kristján, Lemlem, Margeir og undirritaður (Reynir). Dagskráin sagði einn rólegur hringur.
Veðurútlitið var ekki glæsilegt, rok og rigning. Var farið rólega af stað og héldum við hópinn. Einhverra hluta vegna talaði Margeir um fátt annað en Blikaleikinn og hvað rokið hentaði Eyjamönnum miklu betur en Blikum. Eftir um hálfan hring hvarf Margeir úr augsýn. Kom það svo í ljós að hann var að verða of seinn á Players þar sem Blikarnir ætluðu að hittast klukkan 10 og hita upp fyrir leikinn. Fyrstu 4 km. einkenndust af miklum mótvind og rigningu í fangið. Eftir það þegar hæsta punkti var náð var þetta meira í bakið og allt léttara. Voru svo blautir hlauparar sem komu að bílastæðinu eftir rúmlega klukkustund.
Fín æfing í frekar slæmu veðri og gaman að endurnýja kynnin við Heiðmerkurhringinn. Næsta sameiginlega æfing er á mánudaginn klukkan 17:15 á Klambratúni.
Kveðja
Reynir
Gleymdir að nefna Reynir að þú fórst sjáfur tvo Ríkishringi eins og Jónína kallar hringinn, en það er ljóst að Margeir var á yfirsnúningi, vonum bara að hann nái að róa sig og hlaupi ekki inn á völlinn (nakinn) í leiknum.
ReplyDelete