Ótrúlega góð mæting í Höllina að þessu sinni, náði ekki að telja en örugglega mætingarmet. Eftir rúmlega 3km upphitun úti var farið í 200 og 400 metra spretti inni í höll, fjöldi spretta eftir prógrammi hvers og eins. Vel tekið á því að venju og góðar teygjur á eftir. Umræðuefni dagsins var handtaka ónefnds hlaupafélaga á rjúpnaveiðum um helgina : )
Minni á að væntanlegir Rotterdam maraþonhlauparar þurfa að melda sig inn við fyrsta tækifæri en til stendur að hittast í næstu viku og ákveða ferðatilhögun.
hlaupakveðja Höskuldur
Hvernig er það, fer maður á sakaskrá fyrir svona gróft brot?
ReplyDeleteNei sennilega ekki en það er gríðarlega há sekt og málið litið mjög alvarlegum augum. Ég var í skýrslutöku allan sunnudaginn, játaði brotið og er búinn að líma veiðileyfið á byssuna.
ReplyDelete