Mættir: Daníel, Parísar-Bjössi og undirrituð.
Veðurskilyrði: Mun betri en þau litu út fyrir að vera þegar maður leit út um gluggann í morgun.
Afrekshópi var gert að mæta við Breiðholtslaugina kl. 9:00 í morgunsárið. Þegar undirrituð mætti í anddyri laugarinnar í morgun rakst hún á hlaupara úr ÖÐRUM hlaupahópi! Undirrituð varð óörugg og vissi ekki hvernig hún átti að haga sér innan um þessa ókunnugu hlaupara. Til allrar hamingju kom Daníel fljótlega ... og stuttu síðar Bjössi þannig að undirrituð var hólpin.
Þegar klukkan var orðin 9:10 ákváðum við að leggja í hann. Þvílík mæting! VÁ. Við erum að tala um eitt stærsta Afrekshópshlaupapartý veraldarsögunnar. Það var ekki þverfótað fyrir þessu liði þarna í Austurberginu. Ég þurfti stöðugt að vera sparka Sigga og Reyni frá mér svo ég kæmist nú áfram ...
........eða þið vitið, svona næstum því. Þetta var mun fámennara hlaup. Við Daníel og Bjössi þurftum að berjast í gegn ískaldan næðinginn í efri hlíðum Breiðholtsins á eigin spýtur. Daníel fór í Breiðholts-nostalgíukast og vildi leiða okkur einn 10 km klassíker sem hann hljóp alltaf á sínum yngri árum ... þegar hann var upp á sitt besta eins og hann orðaði það :D
Til að gera langa sögu stutta var þetta flott hlaup og ótrúlega frískandi. Breiðhyltingar eru bara ágætir ...
Með vinsemd og virðingu,
Helga Þóra
þið eruð hörkutól, það eru bara þeir hörðustu sem mæta á svona æfingar :) ég varð að skreppa útúr bænum svo ég komst ekki, já ég veit léleg afsökun.........
ReplyDeletekv Höskuldur
Já, þið eruð hugrökk að hafa þorað þangað uppeftir. Annars þá hefði ég nú mætt en var bíllaus í þetta skiptið. Fulllangt að hlaupa þangað á æfingu úr Vesturbænum.
ReplyDelete