Wednesday, November 17, 2010

Þriðjudagsæfing í Laugardalshöll

Góð mæting var á sprettæfingu í höllinni. Eftir hefðbundinn upphitunarhring um Laugardalinn var farið í  hina sívinsælu 200 metra spretti á brautinni inní í höll. Að venju var misjafnt hve marga spretti meðlimir tóku og fór eftir áætlun hvers og eins en fjöldi spretta var frá 15  og uppí óteljandi að því er virtist en nokkrir ofurhlauparar voru enn í sprettunum þegar síðast fréttist og þegar aðrir meðlimir voru komnir heim búnir að fara í sturtu og sestir fyrir framan sjónvarpið.
Nú líður varla sú æfing að ekki sjáist ný andlit en að þessu sinni bættust 3 í hópinn sem ekki hefur sést til áður og eru „þær“ boðnar velkomnar. (auglýst er eftir nöfnum nýju meðlimanna)
Mættir: Danni, Siggi, Rafn, Helga, Jónína, Albert, Maggi, Bjössi, Margeir, Höskuldur, Kristján og 3 nýjir meðlimir sem mig vantar nöfnin á. (Jói mætti líka en ekki á hlaupaskónum)
Hlaupakveðja Höskuldur

2 comments:

  1. Sérdeilis fín æfing þetta, alveg til háborinnar fyrirmyndar.
    Hér er smá upphitun fyrir fimmtudags hraðaleikinn. :)
    http://www.youtube.com/watch?v=YTg_D-yZ208

    ReplyDelete
  2. Hehehehe ... þessir Emoríkanar :D Þessi til vinstri var nú ekki alveg að kaupa þetta! :D
    Hilsen,
    Helga

    ReplyDelete