Saturday, January 29, 2011

Laugadagurinn 29. janúar

Afrekshópurinn hittist í Nauthólsvík klukkan 8 um morguninn þennan laugadaginn. Veðurútlit var ekkert sérstakt, sunnan strekkingur með smá úrkomu sem átti að aukast þegar leið á morgunin. Það voru 12 aðilar mættir þennan morgunin og fólk óvenju lengi að koma sér út úr bílunum. Kynjahlutföllin voru jöfn að þessu sinni, 6 strákar og 6 stelpur + 1 hundur.

Dagskráin var misjöfn hjá fólki. Þeir sem áttu að fara lengst voru með 35 kílómetra á dagskrá og aðrir minna. Fljótlega dreifðist úr hópnum því menn virtust vita af rigningarógninni og því var hlaupið hratt af stað. Þegar ég varð viðskila við forystusauðina þá voru engin merki um að þeir ætluðu að slaka á. Voru enn á fullu farti og eru sjálfsagt ennþá hlaupandi þegar þessi orð eru skrifuð.

Kveðja,
Reynir

Friday, January 28, 2011

Hlaupasería Atlantsolíu og FH

Fjórar fræknar Afrekshópskonur tóku þátt í 5km hlaupaseríu Atlantsolíu og FH  í janúar. Þáttakendur voru 245 í hlaupinu.

24:20 Þórdís Grímheiður Magnúsdóttir  23.sæti
24:32 Inga Björk Guðmundsdóttir           25.sæti
30:52 Steinunn Sveinsdóttir                    82.sæti
30:57 Steinunn Ástráðsdóttir                  84.sæti

Fimmtudagssprettir

Sameiginleg fimmtudagsæfing var ágætlega sótt þó ekki hafi þriðjudagsmætingin verið toppuð, það er áberandi á síðustu æfingum hvað nýliðun er mikil í hópnum, maður hefur ekki undan að læra ný nöfn og þekkja ný andlit hlaupafélaga. Hinn hefðbundni upphitunarhringur var tekinn að venju utandyra og síðan haldið í spretti inni í höll. Fjölbreittar æfingaráætlanir eru í gangi en margir voru í 1000 metra sprettum en aðrir í einhverju styttra. Mikil átök og gleði eins og venjulega.

Tuesday, January 25, 2011

Vel sótt Þriðjudagsæfing

Það var eflaust sett mætingamet í kvöld þegar 25 hlauparar mættu á æfingu Afrekshópsins inni í höll, enda var þétt setin brautin. Blandaður og glæsilegur hópur hlaupara með mismunandi markmið. Þemað í kvöld var 400 m sprettir.

Monday, January 24, 2011

Laugardagsæfing

Laugardagsæfing haldin í Heiðmörk, hlaupið frá Helluvatni og svokallaður 12km ríkishringur. Ágætis mæting og hlauparar að taka 1 til rúmlega 2 hringi. Æfingin var sett klukkan 09:00 svo byrjað var í hálfgerðu myrkri en það leið þó ekki á lögnu þangað til það var orðið vel hlaupabjart. Leiðinda klaki á stígunum á nokkrum stöðum en annars fínasta hlaupaveður og alltaf jafn notarlegt að hlaupa Heiðmörkina.


Hlaupakveðja HÓ

Tuesday, January 18, 2011

Powerade hlaup nr.4

Í 4.Powerade  hlaupi  vetrarins  sem fram fór s.l. fimmtudag hlupu 11 Afrekshóps hlauparar. Bent skal á að þeir sem vilja komast á listann hér að neðan verða að skrá sig undir Afrekshóp í hlaupinu! Sterkur vindur setti mark sitt á þetta hlaup og hlaupatímana og þurftu hlauparar að taka á honum stóra sýnum til að ljúka síðustu kílómetrunum frá stokk og upp að sundlaug.
Nafn
Tími
sæti
Sæti í flokk
Sæti í stigak.
Höskuldur Ó
41:37
26
3
2-3
Margeir
42:25
33
6
5
Siggi K
43:07
41
9
8
Viktor V
43:49
48
10
12
Reynir
44:34
52
8
10
Kristján G
50:26
140
7
4
Rafn
50:46
146
14
13
Helga Þóra
54:38
196
10
12
Björn Arnars
54:58
204
41

Magnús
55:21
210
18

Anna Lára
58:46
233
7
15

Hlaupakveðja HÓ

Langur laugadagur

Það voru 6 hetjur mættar klukkan 9 á laugadagsmorguninn var. Veðrið frábært miðað við árstíma og 1-2 ríkishringir á dagskrá hjá flestum. Albert, Bjössi, Danni, Reynir, Siggi og Sigurðu Óli lögðu af stað í Ríkishringinn. Fóru menn rólega þennan daginn þar sem þetta var fyrsta æfing ársins í Heiðmörkinni hjá flestum. Fóru menn einn til tvo hringi á rólegu tempói og sást síðan til Jóa og Helgu seinna um morguninn. Einhvernveginn grunar undirrituðum að ófáir hringirnir eiga eftir að liggja í valnum eftir sumarið...
 
Næsta æfing er þriðjudaginn 19. janúar klukkan 18:00 í frjálsíþróttahöllinni
 
Kveðja,
Reynir

Friday, January 14, 2011

Tvær hlaupadrottningar heiðraðar.

Afrekskonurnar Christine Buchholz og Anna Sigríður Sigurjónsdóttir fengu sérstaka viðurkenningu á Gamlársdag úr afrekssjóði UMFG fyrir að hlaupa 100 km ofurmaraþon á Spáni í s.l.haust.
Til hamingju stelpur.  

Tuesday, January 11, 2011

Þriðjudagsæfing

Það var stórgóð mæting á þessa þriðjudagsæfingu, samkvæmt talningu og endurtalningu voru 19 afrekshlauparar mættir, gæti verði met eða jöfnunarmet að minnsta kosti. Laugardalsríkishringurinn var tekinn rangsælis í upphitun. Skrítið hvað auðvelt er að taka þennan bæði réttsælis og rangsælis þegar það er alveg ómögulegt að hlaupa heiðmerkurhringinn með góðu móti nema bara réttsælis??
Jæja að lokinn upphitun og heilmiklum kjaftagangi (sumum fannst nóg um) var farið í sprettina sem voru 200m langir og "BARA"12-15 stykki að þessu sinni hjá flestum þar sem að stutt er í Poweraid hlaupið á fimmtudaginn. Fantagóð gæðaæfing að venju.

sjáumst á fimmtudag!

Sunday, January 9, 2011

Laugadagsæfing

Laugadagsmorguninn 8. janúar voru fjórir hlauparar mættir að Hlíðarenda klukkan 9:00, Bjössi, Margeir, Rafn og Reynir. Eftir miklar vangaveltur var ákveðið að hlaupa út fyrir Kársnesið og sjá svo til. Veðrið var ágætt, logn, kalt og auðir stígar.

Hlaupið var niður í Nauthólsvík, út fyrir Kársnesið, upp Kópavogsdalinn, út fyrir Smiðjuhverfið, niður Fossvogsdalinn og að Hlíðarenda. Fátt markvert gerðist að þessu sinni nema við mættum einum afrekshópshlaupara, Höskuldi. Þannig að nú er að myndast hefð að mæta liðsfélögum sínum á löngum laugadagsæfingum. Höskuldi til varnaðar var þó ekki að hlaupa með neinum hlaupahóp að þessu sinni heldur Dadda, félaga sínum.

Annars voru menn almennt sammála um að mikill stirrðleiki og þyngsli voru í mannskapnum og var ákveðið því að hafa þetta í styttra lagi. Hlupum við um 17 km. á endanum í rólegheitum. Vonandi fer nú að hlýna og laugadagsæfingarnar að verða fjölmennari. Næsta æfing þriðjudaginn 11. janúar klukkan 18:00 í frjálsíþróttahöllinni.

Kveðja,
Reynir

Friday, January 7, 2011

Afreksmannaæfing

Fimmtudagsæfingin var að þessu sinni nokkuð óvenjuleg, ekkert þáttökumet núna en gæti veðrið hafa spilað þar inní. Það voru samt nokkrir félagar mættir (þeir hörðustu J ) en að auki fengum við gestahlaupara sem flúðu inn úr storminum og fengu að hlaupa með okkur í höllinni. Þetta var engin annar en Siggi P íslandsmethafi í maraþoni ásamt 2 eða 3 lærisveinum. Hópurinn hafði því innanborðs að þessu sinni 2 bestu maraþonhlaupara sögunnar á Íslandi þá Danna og Sigga, ekki slæmt það, sannkallaður „afreksmanna hópur“!
Upphitunin úti var í styttra lagi vegna veðurs en stormur barði á mönnum auk þess sem það var  mínus 11°C og éljagangur. Menn voru því vel barðir þegar inn var komið og rjóðir í kinnum.  Teknar voru hefðbundnar léttar teigjur og hraðaaukningar og svo var farið í sprettina sem voru 800 metrar og flestir að fara 5-6 umferðir. 
Einn nýliði mætti, stúlka sem sýndi góða tilburði og er greinilega efnilegur hlaupari, einnig vakti Reynir töluverða athygli fyrir litadýrð en hann mætti í spánýjum grænum NB hlaupaskóm, bleikum sokkum, hvítum stuttbuxum og ljósbláum bol.  Skiptar skoðanir voru um hvort þetta væri hreint og klárt stílbrot og tískuslys eða hvort þetta væri bara vel við hæfi þar sem það var nú þrettándinn.
Reynir á heimskokkinu !

Bestu hlaupakveðjur,

Tuesday, January 4, 2011

Þriðjudagur til þrautar

Staður: Höllin

Mættir: Alltof margir svo hægt sé að telja það upp. Segjum bara að það hafi verið dúndurgóð æfing. Allt morandi í Afrekshópshlaupurum.

Uppleggið í dag voru 400 mtr sprettir. Margir með 10 stykki, aðrir með 8 stykki og nokkrar með eitthvað annað.
Upphitun var tekin úti ... í vindi og 3ja stiga frosti. Nokkrum var um og ó að fara út í þetta frystikistuveður en létu sig hafa það. Undirrituð mætti í heimskautabúningi. Það var reyndur heldur öfgakennd aðgerð því Höskuldur leiddi hópinn svo vel að maður varð varla var við hryssingslega veðrið! Svitnaði meira að segja undir peysunum þremur og lambhúshettunni.

Þegar inn var komið hófst hlaupareiðin. Hraðinn var mikill á Afrekshópsmeðlimum. Það neistaði af skóm þeirra og svitinn spratt í allar áttir. Allir báru sig vel og luku við sína spretti með miklum sóma. Eftir spretti var umræða um utanvegahlaup eitt, sem fer fram um miðjan júlí, og telur 55 km. Undirrituð getur sagt með nokkurri vissu að fólk hafi þótt nóg um verðlagningu á því að fá að hlaupa þarna um óbyggðir Íslands ..... 30 kjell.

Fyrst ég er komin í frásagnargírinn langar mig að segja frá Afreksæfingu einni í desembermánuði! Ef mig brestur ekki minni fór sú æfing fram laugardaginn 18. desember. Það eru engar ýkjur þegar ég segi að það hafi verið gríðarlega fámennt en fruntalega góðmennt! Undirrituð, Reynir, Kristján og Margeir voru fulltrúar hópsins. Vorum mætt við Valsheimilið kl. 9:00 í sótsvarta myrkri og smá kulda. Reynir skipaði okkur að hlaupa fyrir Kársnesið með viðkomu í hinum margumrædda Himnastiga sem er í Kópavogsdalnum. Fæst orð bera minnsta ábyrgð varðandi téðan stiga. Leiðinni var svo haldið áfram upp dalinn, inn í Mjódd, niður í Fossvogsdal ..... þar sem við mættum föðurlandssvikurunum Jóa og Sigga! Kapparnir voru bara í góðum gír með Bíddu Aðeins hópnum. Hlupu fram hjá okkur eins og ekkert væri - skömmuðust sín ekki fyrir fimmaur! Uss. Þetta féll ekki í góðan jarðveg og er undirbúningur kæru í hámarki þessa dagana. Þessa menn skal draga fyrir Afrekshópsdóm!

Jæja, hætt í dag.
Með vinsemd og virðingu,
Helga Þóra

Saturday, January 1, 2011

Gleðilegt nýtt ár!

Góður hópur félaga Afrekshóps tók þátt í Gamlárshlaupi ÍR við góðar aðstæður, flestir að ljúka árinu með stæl og nokkrir á PB. Af einhverjum ástæðum er hlaupahópurinn okkar ekki tilgreindur við nafn hlaupara í úrslitunum þó íþróttafélög og sumir aðrir hlaupahópar séu tilgreindir. Það gerði aðeins erfiðara að sjá hverjir voru að hlaupa frá hópnum og vonandi er enginn að gleymast. Spurning hver hjá ÍR ákveður hvaða hópar eru nógu merkilegir til að komast á blað : )

31      38:28   Róbert Gunnarsson                               
34      38:33   Höskuldur Ólafsson                 
57      39:54   Margeir Kúld Eiríksson 
62      40:06   Bjarnsteinn Þórsson
68      40:34   Daníel Smári Guðmundsson   
95      41:21   Reynir Jónsson                       
99      41:31   Viktor Jens Vigfússon              
100      41:34   Hannes Hauksson
130      43:02   Albert Þorbergsson    
131      43:03   Björn Skorri Ingólfsson                          
219      45:31   Kristján Gunnarsson   
418      50:13   Helga Þóra Jónasdóttir             
493      51:50   Magnús Guðmundsson                 
497      51:56   Björn Kristján Arnarson            
554      53:08   Inga Björk Guðmundsdóttir                        
1054      66:08   Steinunn Sveinsdóttir              
      
Gleðilegt ár!    HÓ