Saturday, January 29, 2011

Laugadagurinn 29. janúar

Afrekshópurinn hittist í Nauthólsvík klukkan 8 um morguninn þennan laugadaginn. Veðurútlit var ekkert sérstakt, sunnan strekkingur með smá úrkomu sem átti að aukast þegar leið á morgunin. Það voru 12 aðilar mættir þennan morgunin og fólk óvenju lengi að koma sér út úr bílunum. Kynjahlutföllin voru jöfn að þessu sinni, 6 strákar og 6 stelpur + 1 hundur.

Dagskráin var misjöfn hjá fólki. Þeir sem áttu að fara lengst voru með 35 kílómetra á dagskrá og aðrir minna. Fljótlega dreifðist úr hópnum því menn virtust vita af rigningarógninni og því var hlaupið hratt af stað. Þegar ég varð viðskila við forystusauðina þá voru engin merki um að þeir ætluðu að slaka á. Voru enn á fullu farti og eru sjálfsagt ennþá hlaupandi þegar þessi orð eru skrifuð.

Kveðja,
Reynir

1 comment:

  1. Hundurinn var víst tík svo að stelpurnar vinna mætingarhlutfallið að þessu sinni 7/6 :) Flott hlaup annars, flottur hópur og bara gaman!!

    ReplyDelete