Laugadagsmorguninn 8. janúar voru fjórir hlauparar mættir að Hlíðarenda klukkan 9:00, Bjössi, Margeir, Rafn og Reynir. Eftir miklar vangaveltur var ákveðið að hlaupa út fyrir Kársnesið og sjá svo til. Veðrið var ágætt, logn, kalt og auðir stígar.
Hlaupið var niður í Nauthólsvík, út fyrir Kársnesið, upp Kópavogsdalinn, út fyrir Smiðjuhverfið, niður Fossvogsdalinn og að Hlíðarenda. Fátt markvert gerðist að þessu sinni nema við mættum einum afrekshópshlaupara, Höskuldi. Þannig að nú er að myndast hefð að mæta liðsfélögum sínum á löngum laugadagsæfingum. Höskuldi til varnaðar var þó ekki að hlaupa með neinum hlaupahóp að þessu sinni heldur Dadda, félaga sínum.
Annars voru menn almennt sammála um að mikill stirrðleiki og þyngsli voru í mannskapnum og var ákveðið því að hafa þetta í styttra lagi. Hlupum við um 17 km. á endanum í rólegheitum. Vonandi fer nú að hlýna og laugadagsæfingarnar að verða fjölmennari. Næsta æfing þriðjudaginn 11. janúar klukkan 18:00 í frjálsíþróttahöllinni.
Kveðja,
Reynir
No comments:
Post a Comment