Neehei! Ekki í dag. Óruddir stígar eru sko ekki eitt af þessu alls konar fyrir aumingja, það er morgunljóst.
Mættir: Daníel, Anna Lára, Þórdís, Reynir, Bjössi, Albert, Siggi, Jói, maður með gleraugu sem ég veit ei hvað heitir en Siggi veit það því hann var að tala við hann, Arnór (því Anna Lára sagðimjérða), Gróa og undirrituð.
Þessi tignarlegi og litríki hópi lagði upp frá Valsheimili rétt rúmlega átta. Og það var BJART! Þvílíkur lúxus. Það var líka eini lúxusinn í dag því við máttum vaða hnéháa skafla allt hlaupið (undirrituð tekur sér það bessaleyfi að ýkja frásagnir endrum og sinnum til að gera hlutina meira krassandi og dramatíska).
Bjössi litlu-táar-böðull var alveg extra mjór í morgun. Svo mjór, að undirrituð tók ekki eftir því að hann var vopnaður heilu drykkjarbelti undir jakkanum sínum! Það var ekki eina vopnið hans því hann var einnig vopnaður sérstökum gúmmíhólk sem hann smeygði yfir löskuðu litlu tána (sem var nú þegar með second skin, heftiplástur og vaselín) þannig að hann gæti jú hlaupið í dag! ALLT fyrir hlaupin. Allt.
Af öðrum hefur undirrituð lítið að segja... tja, jú. Rotterdamgaukarnir Höskuldur og Margeir bættust við hópinn þegar ca 250 metrar lágu í valnum. Þeir hlupu heiman frá sér. Nú gildir ekkert annað en kílómetrasöfnun hjá maraþonurunum því Rotterdam-maraþonið er nær en ykkur öll grunar! Höskuldur bar þess merki að hafa barist í gegnum skafla og snjóstorm ofan úr Árbæ.... hárið hans var frosið og þakið snjó og hann minntist á að færðin væri ekki góð. Höskuldur er hógvær maður sem kvartar sjaldrei (sjaldan+aldrei) þannig að við getum kvittað undir að færðin var slæm.
Leiðin lá niður í Nauthólsvík og inn á Ægisíðu. Þar beygði undirrituð til hægri upp Hofsó og í humátt kom Gróa í bleika jakkanum. Saman hlupum við stystu leið í Valsheimilið.
Restin fór lengra. Maður eru að sjá tölur allt frá 14 km upp í þrjátíuogfimmkommaeitthvað á hlaupadagbókinni. Sel það ekki dýrara en ég keypti það.
Með vinsemd og mikilli virðingu,
Helga Þóra
Við Danni fengum snilldarhugmynd meðan við ösluðum skaflana, við ætlum að bjóðast til að skafa stígana "ókeypis" ef Borgin lánar okkur tæki, maður vaknar þá bara snemma, fer og skefur göngustígana og fer svo heim á eftir og út að hlaupa :) það getur ekki verið mikið mál að keyra þessa traktora, maður var nú í sveit!
ReplyDeleteKv HÓ
Já! Þetta er ljómandi góð hugmynd :D Ég ætla samt að leyfa ykkur Danna að sjá bara alfarið um þetta .... finnst alveg nógu snemmt að vakna kl. 7:30 á laugardagsmorgni... hvað þá fyrr til að moka stígana því Jón Gnarr nennir því ekki :þ
ReplyDeleteHelga Haugur með stóru HÁ-I :D