Mættir: Margir. Og mjög margir sem ég hef ekki hugmynd um hvað heita! Ég held að við þurfum að fara í nafnaleik á einhverri æfingunni.
Veðurskilyrði: Logn og úði. Himneskt veður.
Við hittumst við höfuðstöðvar Valur-Skokk-hlaupahópsins - að Hlíðarenda. Undirrituð gat ekki betur séð en að ferskleikinn svifi yfir vötnum - allir hressir og kátir svona í morgunsárið í birtunni.
Það vantaði reyndar mikilvæga mannveru í upphafi æfingar - Reyni! Fregnir herma að bíllinn hans hafi sprungið í gærmorgun. Sel það ekki dýrara en ég keypti það (s.s. af hlaupadagbók Reynis). Hann hitti reyndar fremstu menn fljótlega því hann kom hlaupandi að heiman!
Nú, svo var þetta bara ósköp heiðarleg hlaupaæfing í lúxusfærð. Lítill snjór, engar hnélyftur og lítil hálka. Fremstu menn hurfu fljótt og eftir varð hlaupaalmúginn í þéttum kjarna. Margir Afrekshópsmeðlimir tóku 15 km hring með því að trítla Ægisíðuna og stefna út á hið ógurlega Seltjarnarnes þar sem jafnan ríkir mikið rok. Þetta var þó ósköp huggulegt í gær í logninu. Rotterdam-gaukarnir fræstu hins vegar stíga og götur upp í 35 km enda eiga þeir eitt stykki maraþon fyrir höndum eftir 2 vikur ef undirritaðri skjátlast ekki! Það verður spennandi að sjá hvaða fantagóða árangri fulltrúar Afrekshópsins ná að landa :)
Annars er tilhlökkun til vors og sumars gífurleg hjá undirritaðri - tel nokkuð víst að fleiri séu sammála því!
Með vinsemd og gífurlegri virðingu,
Helga Þóra
Spurning um að fólk mæti bara með nafnspjöld næst, nennum ekki að sóa tíma í einhverja nafnaleiki, o sei sei nei! :D
ReplyDeleteTveir af þessum óþekktu andlitum voru allavega Helgason-bræðurnir, þeir Palli og Laddi (og nei, foreldrar þeirra bara gátu ekki fengið það af sér að taka grínið alla leið). Raunar notuðum við ykkur sem héra til að byrja með en héldum svo að þið væruð að fara miklu lengra en við og beygðum af leið við Eiðistorg við þriðja mann og tókum svo strikið niður að Höfða og þaðan beinustu leið til baka í Valsheimilið. Hefðum betur bara elt ykkur alla leið... :)
Já ok, það voru s.s. P(H)alli og Laddi sem voru fyrir aftan okkur! Ég skal segja ykkur það að ég hélt að ég yrði seint notuð sem héri í mínu hlaupalífi enda seint talinn til röskra hlaupara! Það er gott að það er hægt að nýta mann í eitthvað :)
ReplyDeleteHelga