Wednesday, March 2, 2011

Þriðjudagsæfing

Hinn klassíski upphitunarhringur tekinn í slabbi og bleytu og engu líkara en að froskahjörð hefði gert innrás í Dalinn við Laugarnar slík voru slabbbbhljóðin í hverju skrefi hlaupara.
..já blautt var það
En þegar inn var komið lumuðu einhverjir á aukasokkum og jafnvel aukaskóm meðferðis en undirrituð var ekki í þeim lúxus heldur tók sprettina með poll í skónum :)
Byrjendahópur Daníels Smára var mættur á brautina með okkur og áhuginn, metnaðurinn og talentinn skein úr andlitum þeirra ! Byrjendur hvað ?? Daníel Smári hélt sig á hliðarlínunni og taldi hringina fyir hvern og einn hlaupara, þvílík þjónusta því eins og vanir hlauparar í Afrekshópnum vita þá er ekkert jafn erfitt við þessa spretti en að halda tölu á þeim !
20 x 200 m sprettir á dagskrá hjá okkur í dag og Þórdís loksins búin að fá sér Bleiku Sokkana og sýndi mun betri tilburði fyrir vikið :)
Sjáumst á fimmtudaginn

1 comment:

  1. Maður hleypur hraðar í bleiku sokkunum, engin spurning!!

    ReplyDelete