Friday, September 17, 2010

Heimasíða Afrekshópsins

Fimmtudaginn 16.september var haldinn fundur hjá Afrekshópnum þar sem farið var yfir árangur þessa árs og rætt var hvað væri framundan í æfingum og markmiðum ársins 2011. Ein af þeim hugmyndum sem upp komu var að stofna heimasíðu fyrir hlaupahópinn. Hugmyndin er að síðan verði vettvangur til að skrá inn upplýsingar um æfingar og annað sem er á döfinni  og vonandi verður hægt að finna hér inni eitthvað af skemmtilegu og fræðandi efni um hlaup og hlaupatengt efni félögum og utanaðkomandi vonandi til gagns og gamans.

6 comments:

  1. Flott Höskuldur það tók ekki langan tíma að koma upp heimasíðu, þú ert greinilega ekki bara fljótur að hlaupa.

    ReplyDelete
  2. Glæsilegt, ég hlakka til að fylgjast með því sem er að gerast.
    Kveðja úr norðan áttinni fyrir austan
    Jóhanna Kr. Hauksd

    ReplyDelete
  3. Halldóra B. BergmannSeptember 17, 2010 at 6:42 PM

    Vei frábært þetta kalla ég að bregðast við í skyndi. Afrekshópur til hamingju með heimasíðuna :)

    ReplyDelete
  4. takk, nú er bara að vera öll dugleg að nota síðuna svo hún verði lifandi og skemmtileg.

    kv Höskuldur

    ReplyDelete
  5. Frábært framtak :)
    Kveðja
    Andrea, Grindavík

    ReplyDelete
  6. Glæsilegt Höskuldur, verður gaman að fylgjast með þessari síðu. Hún er komin í favourites hjá mér.

    Kveðja,
    Reynir

    ReplyDelete