Saturday, December 4, 2010

Helgafell á laugardegi

Mættir: Jónína, Helga, Cristine,Reynir, Kristján,Albert,Margeir,Bjössi, Anna og María
Veðurskilyrði: Logn og 5-6 gráðu frost
Mæting við Suðurbæjarlaugina í Hafnarfirði þar sem planið var að fara á Helgafell. Þjálfarinn sendi út þau skilaboð deginum  áður að Helga og Jónína ætluðu að sjá um leiðangurinn...smá kvíðahnútur í maga eftir það og mikið gúglað til öryggis kvöldinu áður.
Leiðin lá sem sagt upp Hvammsbrautina og út á Kaldárselsveg, framhjá hesthúsum og sumarbústaðarbyggð að Helgafelli – upp fjallið og niður aftur  - og sömu leið til baka. Rúmlega 20 kílómetrar lagðir í þessari ferð.  Reyndar fór Reynir  líka hringinn í kringum Helgafellið líka, það eru nú að koma jól J
Grindavíkurkonurnar mættu galvaskar og velbúnar, rosalega gaman að hafa þær með og mikil tilhlökkun að mæta til þeirra næsta laugardag. Loksins fær maður að  prófa að hlaupa upp á Þorbjörn.
Skemmtilegt hlaup í frábærum félagsskap.

P.s  Barcelona/Parísar – Bjössi setti nýja hefð í hlaupinu; 10 armbeygjur (á tánum að sjálfsögðu) á fjallstoppnum. Nú verður þetta gert  í hvert sinn sem hlaupið er á fjöll -  spurning með að bæta 10 við í hvert skipti
JG

2 comments:

  1. Líst feykivel á þessa hefð! Við Reynir tókum einmitt nokkrar með klappi á toppnum, á tánum. :)

    ReplyDelete
  2. Það vill svo skemmtilega til að nýtt hlaup var að detta inn á hlaup.is. Þá er hlaupið frá Kaldárseli og niður í miðbæ Hafnafjarðar, 10 km hlaup. Ókeypis þátttaka og frí rútuferð inn í Kaldársel...

    ReplyDelete