Það voru þrír ferskir aðilar mættir við Ármannsheimilið í dag, Bjössi, Rafn og Reynir. Á dagskrá voru 6x1000km sprettir. Veðrið leit nú ekki vel út þegar maður sat inni í bílnum en þegar út var kominn var logn, hlýtt og nýfallinn snjór í Laugadalnum. Verður ekki jólalegra en það, er það nokkuð Helga?
Hefðbundin upphitun með fjórum hraðaaukningum. Sprettirnir voru teknir á aðal stígnum í gegnum Laugadalinn og rifjuðust þá upp skemmtilegir tímar frá síðasta vetri. Flott æfing í frábæru veðri og fyrir þá sem ekki vissu þá er Þorláksmessa haldin til heiðurs Þorláki helga Þórhallssyni biskupi í Skálholti. Hann lést 23 desember 1193 og var þessi messudagur tekinn upp og lögleiddur honum til heiðurs 1199. Þessar upplýsingar voru í boði Wikipedia.
Gleðileg jól
Reynir
Rétt til getið Reynir, þetta er toppurinn á jólaveðrinu :)
ReplyDeleteÉg kann þér miklar þakkir fyrir þessar Wikipedia-upplýsingar! ... ekki vissi ég þetta .... þó það loði við mig að vera dáldið jóla-kreisí :D
og þetta var jú Helga Þóra sem ritaði hér að ofan!
ReplyDelete