Sunday, February 27, 2011

Afrekshópur á Heiðmerkurslóðum

Mættir: Höskuldur, Albert, Reynir, Viktor, Þórdís, Anna Lára+Hera, nýr meðlimur án nafns, Margeir, Hannes, Frikki, Jói, Siggi.

Staðsetning: Helluvatn

Veður: Alls konar. Logn, vindur, sól, éljagangur, skýjað.

Það voru sannkallaðir morgunhanar sem mættu klukkan átta við Helluvatn í gærmorgun! Fyrst á svæðið voru Höskuldur, Albert, Reynir, Viktor, nafnlaus, Þórdís og undirrituð. Það var reyndar einn grunsamlegur og mannlaus bíll á bílastæðinu, hvítur Volkswagen Polo. Maður var nú ekki lengi að leggja saman 2 plús 2 og fá út 4 því það gat enginn annar en Hekluhlauparinn Margeir átt þennan bíl! Hann var greinilega enn sprækari en við sem mættum átta því hann var lagður af stað!

Við ákváðum að vera ekkert að hika við hlutina og lögðum af stað því það var pínu svalt. Leiðir skyldu fljótt. Strákarnir leiddu, ég dróst aftur úr og Þórdís var fyrir aftan, væntanlega að bíða eftir Önnu Láru.
Ég setti því útvarpið í eyrun og fór í minn eigin heim ..... sem var ágætt .... þangað til að stór, brúnn og yfir sig æstur hundur, ekki í taum, hljóp á 120 km hraða að mér og gelti eins og hann ætti lífið að leysa. Þá brá mér. Svo mikið að ég gargaði! Alveg óvart. Stuttu síðar kom gönguhópur og þar á meðal eigandinn. Ég baðst afsökunar á þessu dramatíska góli og útskýrði að mér hefði brugðið svo mikið að þetta hefðu verið ósjálfráð viðbrögð. Eigandinn tjáði mér að hundurinn hefði farið í þennan æsingsgír út af MÚNDERINGUNNI minni! Heimskautabúningurinn vakti þá upp varnarviðbrögð hjá hundinum :D

Eftir rúmlega 6 km mætti ég Jóa og stóð hann að ríkishringslögbroti. Kappinn var að fara í öfuga átt. Ég ákvað að geyma áminninguna þar til síðar þar sem það er stutt í stóra hlaupið hjá honum og svona .... það er betra að halda friðinn :D Áfram veginn og það líðu ekki nema nokkrar mínútur, þá var Jói búinn að snúa við og var mættur aftur ásamt Sigga, Hannesi og Frikka. Við héldum hópinn  til loka hrings nr.1 og eitthvað fram í hring 2. Þá dó ég og sneri við.

Þannig fór um sjóferð þá. Þeir sem fóru styst fóru einn hring og sumir rétt rúmlega en verðandi Rotterdam-maraþonhlauparar sýndu hörku í éljaganginum og tóku 3 hring takk fyrir og góðan daginn. Kanarífuglarnir þjösnuðust tvo.

Transgrancanaria hlaupið fer svo fram um næstu helgi. Lengsta hlaupið verður ræst á miðnætti föstudag/laugardag. Hinar vegalengdirnar verða ræstar morguninn eftir. Þeir sem hafa áhuga á fréttum af Kanaríförum geta farið á þessa slóð http://www.transgrancanaria.net/paginas/ver/72 Við getum vonandi komið keppnisnúmeraupplýsingum áleiðis svo þið getið nú örugglega fylgt okkur eftir í huganum og sent góða strauma :)

Með vinsemd og virðingu,
Helga Þóra

Friday, February 25, 2011

úrslit Atlantsolíu / FH hlaup

46     20:46    Albert Þorbergsson                                        
47     20:50    Reynir Jónsson                    
103   23:44    Anna Lára Steingrímsdóttir                    
118   24:20    Inga Björk Guðmundsdóttir                                
119   24:22    Þórdís Grímheiður Magnúsdóttir                          
121   24:43    Björn Arnarson                                            
162   26:56    Birna Guðmundsdóttir                                 
170   27:20    Gróa Másdóttir  
223  30:55    Steinunn Sveinsdóttir                                    
228   31:24     Guðrún Björg Elíasdóttir                                 

Fimmtudagsæfing

Það var fámenn og góðmenn æfing á fimmtudagskvöldið en nokkuð margir félagar brugðu sér til Hafnarfjarðar til þáttöku í FH olíuhlaupinu. Ekki er búið að byrta staðfesta tíma úr því hlaupi þegar þetta er skrifað en heyrst hefur að nokkrir Afrekshópsmeðlimir hafi náð BP árangri þrátt fyrir leiðinda veðurskilyrði.  Við sem mættum í Höllina létum okkur nægja góða upphitun úti við og svo notarlega 1000m spretti í höllinni lausir við rokið og rigninguna.
Mættir: Margeir, Viktor, Rafn, Ingvar og undirritaður.
HÓ.

Monday, February 21, 2011

Afrekshópur í hraðaleik

Jæja, vor í lofti og búið að setja í lás í höllinni .... tja, alla vega gagnvart Afrekshópnum. Er haggí?

Mættir: Daníel, Margeir, Reynir, Bjössi, Jónína, Sævar, Steinunn, Þórdís, Birna (hef ég rétt fyrir mér með þessi nöfn? :) ..sorrí, þetta fer alveg að koma), Anna Lára, Gróa, Friðrik, Rafn og undirrituð.

Veður: Skýjað, 5 stiga hiti, smá vindur hér og þar og rigning í lok æfingar.

Afrekshópurinn, sem er orðin gríðarstór, hittist  við Laugaból kl. 17:15. Samkvæmt venju var lagt af stað ca 8 mínútum eftir auglýstan tíma. Það er bara klassík.

Áður en við lögðum af stað þurfti þjálfi að útskýra æfinguna. Fartlek. Það er ekki bara nóg að skrifa Fartlek í 60-75 mínútur í planið og setja svo punkt þar fyrir aftan. Metnaðarfullir og nákvæmir Afrekshópsmeðlimir vilja nánari útskýringar á æfingum því þeir verða að hafa tækifæri til þess að undirbúa sig andlega og næringarlega fyrir æfinguna og þá þýðir ekkert umþaðbilkannskihérumbil.

Æfingin var sem hér segir: Upphitun frá Laugabóli upp í Elliðaárdal. Þar skyldi taka spretti og jogg á milli í neðri hluta Poweradehringsins og voru sprettirnir lagðir upp þannig að það var sprett í 30 sek. og joggað/hlaupið í 30 sek. Sprett í 1 mínútu, joggað/hlaupið í 1 mínútu ... alveg upp í 3 mínútur ... og svo aftur niður í 30 sekúndur.

Eftir að hafa útskýrt æfinguna þrisvar sinnum lögðum við í hann. Okkur Bjössa þótti upphitunin heldur hröð! Tölur eins og 5:16 og 5:10 heyrðust .. og það er ansi gróft fyrir fólk sem er enn að berjast við 50 mínútna múrinn í 10 km keppnishlaupum. Það var þó enginn afsláttur gefinn þennnan daginn og forystusauðirnir Danni, Viktor og Margeir héldu ótrauðir áfram á mögnuðum hraða. Svipan var enn á lofti þegar í Powerade-dalinn var komið því að Afrekshópsmeðlimir fengu ekki einu sinni svigrúm til að kasta mæðinni eftir keppnisupphitunina eða til að teygja! Fyrr má nú aldeilis vera. Við vitum að það er kreppa og allt það ... en kommon... öllu má nú ofgera.
Jæja, eftir að hafa tekið sprettina á heiðarlegan hátt hittumst við nokkur við undirgöngin og héldum til baka í Laugarból áður en við kólnuðum niður. Niðurskokkið var ekkert skárra en upphitunin og ef eitthvað er, þá var niðurskokkið bara helvíti hratt! Manni hljóp bara kapp í kinn að hlaupa við hlið Sævars og Reynis.... hraðatölur eins og 5 og 4:40 sáust á garminum hans Reynis. Sel það ekki dýrara en ég keypti það.

Þess má svo geta í lok þessa bloggs að Margeir og Friðrik hlustuðu ekki hætis hót á þjálfara vor því þeir misskildu æfinguna og framkvæmdu hana RANGT að hluta til. Alveg þrír mínusar fyrir svona gríðarlegt andvaraleysi.

Með vinsemd og virðingu,
Helga Þóra

Friday, February 18, 2011

Hraðareiknivél

Hér er ágætis leið til að reikna út viðeigandi "pace" fyrir ákveðnar vegalengdir.  Skellið nokkrum tölum í töfluna og voila!
http://www.mcmillanrunning.com/mcmillanrunningcalculator.htm

Kv, AÞ

Sunday, February 13, 2011

Powerade hlaup nr 5 úrslit

Nafn
Tími
sæti
Sæti í flokk
Sæti í stigak.
Höskuldur Ó
42:44
21
2
3
Margeir
44:08
24
4
4
Viktor V
46:10
41
5
8
Anna Lára
56:24
128
3
9
Björn Arnars
60:16
155
27
-
Margrét
60:48
161
9
21
Helga Þóra
62:23
168
11
13

Saturday, February 12, 2011

Langur Laugardagur

Sameignileg æfing var farin frá Valsheimili að þessu sinni,  veðrið var svona þokkalegt þar sem farið var snemma en heldur var farið að bæta í vind og úrkomu seinnihluta hlaupsins. Leiðin lá með strönd útá Gróttu og til baka norðanmegin. Fljúgandi hálka á köflum. Vegalendir allt að 35 km eftirtektarvert  er hvað konurnar eru farnar að sækja í sig veðrið í vegalendum, 30+ farið að steinliggja hjá þeim! Húrra fyrir þeim.
Mættir: Margeir, Albert, Bjössi, Steinunn, Þórdís, Gróa, Anna + fjórfætlingur, Viktor og Höskuldur.

Friday, February 11, 2011

Powerade hlaup nr 5

Næst síðasta powerade hlaup vetrarins fór fram í afleitu veðri á fimmtudagskvöld, það er reyndar orðið alvanalegt og flestir hættir að kippa sér upp við það að hlaupa þessi hlaup í „skíta“ veðri.  Sameinginleg upphitun var tekin frá sundlaug kl 19:15 (næstum stundvíslega) og mættir voru Margeir, Helga ofurhlaupakona, Margrét (ekki lengur nýliði), Viktor, Bjössi og Höskuldur.  Síðar sást til Önnu Láru í hlaupinu. Þáttaka virtist vera með minna móti í þessu hlaupi (150-200), líklega bara þeir hörðustu sem mættu enda aðstæður eins og fyrr segir ekki góðar. Allt hafðist þetta þó að lokum eins og venjulega og þó tímarnir hafi ekki verið til að hreykja sér af þá geta þáttakendur verið stoltir af afrekinu að ljúka hlaupi við þessar aðstæður.
Samantekt úrslita koma síðar.
Nú hefur verið full þörf fyrir heimskautagallann  : ) (Forsíðumynd mbl)

Tuesday, February 8, 2011

Þriðjudagur án þjálfara.

Nú reyndi á sjálfsbjargarviðleitnina í hópnum því þjáfarinn hafði brugðið sér til útlanda á skíði...... eða það var allavega meiningin hélt maður en miðað við hlaupa bloggið í dag þá er greinilega ekki mjög gaman á skíðunum J.
Hvað um það fín mæting á hlaupaæfinguna eins og venjulega þessa dagana, 18 hlauparar mættir. Eftir 400 metra spretti voru línurnar lagðar fyrir næstu hlaup, Powerade á fimmtudag sem flestir ætla að taka þátt í og svo laugardagshlaupið ómótstæðilega, 35 km hjá þeim sem lengst fara (óháð veðri).  Það verður spennandi að sjá hvað veðurguðirnir bjóða okkur uppá að þessu sinni.

Kv HÓ

Friday, February 4, 2011

Áhugaverð bók

Geri ráð fyrir að ultra-hlaupararnir í hópnum hafi lesið þessa bók, en ég mæli sterklega með henni fyrir alla með snefil af hlaupaáhuga. Þetta ekki bara skemmtileg og áhugaverð lesning, heldur líka hættuleg (þú átt á hættu að hlaupa frá fjölskyldu og vinnu og setjast að í fjallasal í Mexíkó).

Verst að hún gæti dregið úr skósölu hjá Daníel...

Hérna er linkur:
http://www.chrismcdougall.com/index.html

VJV

Fimmtudagsæfing 3. febrúar.

Æfingin átti að vera í frjálsíþróttahöllinni en því miður þá var verið að setja upp einhverja ferðasýningu. Búið var að setja upp tjald þvert yfir hlaupabrautina og þar af leiðandi ekki hægt að hlaupa heilan hring á þar. Var því ákveðið að taka sprettina úti að þessu sinni.

Eftir hefðbundinn upphitunarhring var mældur út 800m. sprettur í staðinn fyrir 1000m sem var á dagskrá. Þeir sem fóru flesta spretti fóru sex kvikindi en aðrir minna. Var hlaupið frá bílastæðinu við gömlu stúkuna á Laugadalsvelli, eftir malbikaða stígnum í gegnum Laugadalinn og að hringtorginu sem þar er. Færðin var frekar þung. Nýfallinn snjór var yfir stígnum og hálkuvottur þar undir sem að olli miklu spóli.

Flott æfing í fínu veðri og ágætis tilbreyting að taka sprettina úti. Plúsinn að þessu sinni fær hann Hannes fyrir að eyða 45 ára afmælisdeginum sínum að hlaupa 6x800m spretti úti í frostinu. Mínusinn fær hann Margeir því að þegar niðurskokki var lokið hjá hópnum og farið inn í höll að teygja kom í ljós að hann hefði tekið sýna spretti inni. Kannski hefur honum bara verið eitthvað kalt. Annars mjög flott æfing eins og venjulega og mæting prýðileg. Eitthvað um 15 manns að þessu sinni en þær tölur hafa ekki fengist staðfestar.

Kveðja,
RJ

Thursday, February 3, 2011

Þriðjudagur 1.Febrúar

Þriðjudagsæfing í Laugardalshöll var vel sótt eins og venja er orðin,  það er augljóst að orðspor hópsins (eða þjálfarans) fer um víðan völl því mikil á sér stað sem er frábært og ekki verra að í hópnum eru ótrúlega margir efnilegir hlauparar. Nóg að gera að læra að þekkja ný andlit og svo ég tali nú ekki um ný nöfn í hópnum.
200 metra sprettir voru á dagskánni eftir góða úti-upphitun og mismunandi margir sprettir eftir prógrammi hvers og eins.
Augljóst er að síendurteknar sprettæfingar undanfarnar vikur eru farnar að skila sér svo mikið að menn ætluðu varla að trúa hvað þeir hlupu hratt..... hvar endar þetta eiginlega!