Friday, February 11, 2011

Powerade hlaup nr 5

Næst síðasta powerade hlaup vetrarins fór fram í afleitu veðri á fimmtudagskvöld, það er reyndar orðið alvanalegt og flestir hættir að kippa sér upp við það að hlaupa þessi hlaup í „skíta“ veðri.  Sameinginleg upphitun var tekin frá sundlaug kl 19:15 (næstum stundvíslega) og mættir voru Margeir, Helga ofurhlaupakona, Margrét (ekki lengur nýliði), Viktor, Bjössi og Höskuldur.  Síðar sást til Önnu Láru í hlaupinu. Þáttaka virtist vera með minna móti í þessu hlaupi (150-200), líklega bara þeir hörðustu sem mættu enda aðstæður eins og fyrr segir ekki góðar. Allt hafðist þetta þó að lokum eins og venjulega og þó tímarnir hafi ekki verið til að hreykja sér af þá geta þáttakendur verið stoltir af afrekinu að ljúka hlaupi við þessar aðstæður.
Samantekt úrslita koma síðar.
Nú hefur verið full þörf fyrir heimskautagallann  : ) (Forsíðumynd mbl)

No comments:

Post a Comment