Friday, February 4, 2011

Fimmtudagsæfing 3. febrúar.

Æfingin átti að vera í frjálsíþróttahöllinni en því miður þá var verið að setja upp einhverja ferðasýningu. Búið var að setja upp tjald þvert yfir hlaupabrautina og þar af leiðandi ekki hægt að hlaupa heilan hring á þar. Var því ákveðið að taka sprettina úti að þessu sinni.

Eftir hefðbundinn upphitunarhring var mældur út 800m. sprettur í staðinn fyrir 1000m sem var á dagskrá. Þeir sem fóru flesta spretti fóru sex kvikindi en aðrir minna. Var hlaupið frá bílastæðinu við gömlu stúkuna á Laugadalsvelli, eftir malbikaða stígnum í gegnum Laugadalinn og að hringtorginu sem þar er. Færðin var frekar þung. Nýfallinn snjór var yfir stígnum og hálkuvottur þar undir sem að olli miklu spóli.

Flott æfing í fínu veðri og ágætis tilbreyting að taka sprettina úti. Plúsinn að þessu sinni fær hann Hannes fyrir að eyða 45 ára afmælisdeginum sínum að hlaupa 6x800m spretti úti í frostinu. Mínusinn fær hann Margeir því að þegar niðurskokki var lokið hjá hópnum og farið inn í höll að teygja kom í ljós að hann hefði tekið sýna spretti inni. Kannski hefur honum bara verið eitthvað kalt. Annars mjög flott æfing eins og venjulega og mæting prýðileg. Eitthvað um 15 manns að þessu sinni en þær tölur hafa ekki fengist staðfestar.

Kveðja,
RJ

No comments:

Post a Comment