Nú reyndi á sjálfsbjargarviðleitnina í hópnum því þjáfarinn hafði brugðið sér til útlanda á skíði...... eða það var allavega meiningin hélt maður en miðað við hlaupa bloggið í dag þá er greinilega ekki mjög gaman á skíðunum J.
Hvað um það fín mæting á hlaupaæfinguna eins og venjulega þessa dagana, 18 hlauparar mættir. Eftir 400 metra spretti voru línurnar lagðar fyrir næstu hlaup, Powerade á fimmtudag sem flestir ætla að taka þátt í og svo laugardagshlaupið ómótstæðilega, 35 km hjá þeim sem lengst fara (óháð veðri). Það verður spennandi að sjá hvað veðurguðirnir bjóða okkur uppá að þessu sinni.
Kv HÓ
Tja, samkvæmt www.vedur.is kl. 08:38 í dag, fimmtudaginn 10.febrúar spáir 9 m/s, ausandi úrhelli og 4urra stiga hita. Ég veit að Afrekshópsmiðlimir slá ekki hendinni á móti slíkri veðurdásemd. :D
ReplyDeleteHelga Þóra