Sameignileg æfing var farin frá Valsheimili að þessu sinni, veðrið var svona þokkalegt þar sem farið var snemma en heldur var farið að bæta í vind og úrkomu seinnihluta hlaupsins. Leiðin lá með strönd útá Gróttu og til baka norðanmegin. Fljúgandi hálka á köflum. Vegalendir allt að 35 km eftirtektarvert er hvað konurnar eru farnar að sækja í sig veðrið í vegalendum, 30+ farið að steinliggja hjá þeim! Húrra fyrir þeim.
Mættir: Margeir, Albert, Bjössi, Steinunn, Þórdís, Gróa, Anna + fjórfætlingur, Viktor og Höskuldur.
HÓ
No comments:
Post a Comment