Monday, February 21, 2011

Afrekshópur í hraðaleik

Jæja, vor í lofti og búið að setja í lás í höllinni .... tja, alla vega gagnvart Afrekshópnum. Er haggí?

Mættir: Daníel, Margeir, Reynir, Bjössi, Jónína, Sævar, Steinunn, Þórdís, Birna (hef ég rétt fyrir mér með þessi nöfn? :) ..sorrí, þetta fer alveg að koma), Anna Lára, Gróa, Friðrik, Rafn og undirrituð.

Veður: Skýjað, 5 stiga hiti, smá vindur hér og þar og rigning í lok æfingar.

Afrekshópurinn, sem er orðin gríðarstór, hittist  við Laugaból kl. 17:15. Samkvæmt venju var lagt af stað ca 8 mínútum eftir auglýstan tíma. Það er bara klassík.

Áður en við lögðum af stað þurfti þjálfi að útskýra æfinguna. Fartlek. Það er ekki bara nóg að skrifa Fartlek í 60-75 mínútur í planið og setja svo punkt þar fyrir aftan. Metnaðarfullir og nákvæmir Afrekshópsmeðlimir vilja nánari útskýringar á æfingum því þeir verða að hafa tækifæri til þess að undirbúa sig andlega og næringarlega fyrir æfinguna og þá þýðir ekkert umþaðbilkannskihérumbil.

Æfingin var sem hér segir: Upphitun frá Laugabóli upp í Elliðaárdal. Þar skyldi taka spretti og jogg á milli í neðri hluta Poweradehringsins og voru sprettirnir lagðir upp þannig að það var sprett í 30 sek. og joggað/hlaupið í 30 sek. Sprett í 1 mínútu, joggað/hlaupið í 1 mínútu ... alveg upp í 3 mínútur ... og svo aftur niður í 30 sekúndur.

Eftir að hafa útskýrt æfinguna þrisvar sinnum lögðum við í hann. Okkur Bjössa þótti upphitunin heldur hröð! Tölur eins og 5:16 og 5:10 heyrðust .. og það er ansi gróft fyrir fólk sem er enn að berjast við 50 mínútna múrinn í 10 km keppnishlaupum. Það var þó enginn afsláttur gefinn þennnan daginn og forystusauðirnir Danni, Viktor og Margeir héldu ótrauðir áfram á mögnuðum hraða. Svipan var enn á lofti þegar í Powerade-dalinn var komið því að Afrekshópsmeðlimir fengu ekki einu sinni svigrúm til að kasta mæðinni eftir keppnisupphitunina eða til að teygja! Fyrr má nú aldeilis vera. Við vitum að það er kreppa og allt það ... en kommon... öllu má nú ofgera.
Jæja, eftir að hafa tekið sprettina á heiðarlegan hátt hittumst við nokkur við undirgöngin og héldum til baka í Laugarból áður en við kólnuðum niður. Niðurskokkið var ekkert skárra en upphitunin og ef eitthvað er, þá var niðurskokkið bara helvíti hratt! Manni hljóp bara kapp í kinn að hlaupa við hlið Sævars og Reynis.... hraðatölur eins og 5 og 4:40 sáust á garminum hans Reynis. Sel það ekki dýrara en ég keypti það.

Þess má svo geta í lok þessa bloggs að Margeir og Friðrik hlustuðu ekki hætis hót á þjálfara vor því þeir misskildu æfinguna og framkvæmdu hana RANGT að hluta til. Alveg þrír mínusar fyrir svona gríðarlegt andvaraleysi.

Með vinsemd og virðingu,
Helga Þóra

1 comment:

  1. obbobbobb nú er greinilega nafnakall og skyldumæting á allar æfingar :) ég verð að bera fyrir mig afsökun fyrir því að ég mætti ekki, fékk ekki pössun fyrir börnin og komst því ekki á þessa æfingu. Hef heyrt miklar ánægjuraddir með þetta Fartlek og bíð spennt eftir næstu æfingu.. legg til að menn gúggli "Fartlek" sem voru ekki að ná þessu hehehe
    kv Inga

    ReplyDelete