Þriðjudagsæfingin hófst með hefðbundinni upphitun þar sem Jói leiddi okkur um myrkustu stíga Laugadals. Eftir hana ætlaði Gróa yoga-kennari að hitta okkur og kenna okkur stirðbusunum hvernig á að teygja líkamann. Hlauparar eru nú oft ekkert sérstaklega liðugir og því hafði hópurinn mjög gott af þessu. Í teygjuhringnum minnir mig að ég hafi talið 21 aðila. Það má leiðrétta mig ef ég fer með rangt mál. Lögð var áhersla á teygjur fyrir efri hluta líkamann að þessu sinni, bak, axlir og mjaðmir. Gróa lofaði síðan að koma aftur seinna og kenna okkur teygjur fyrir neðri hlutann.
Eftir yoga-kennsluna voru 200 metra sprettir á dagskrá. Heyrðist mér að flestir voru með 12-15 spretti. Loftið var þurrt að venju í höllinni og allir náðu að svitna vel að þessu sinni. Stíllinn var í lagi hjá fólki, allir hlupu teinréttir með háum hnélyftum. Daníel benti þó á eitt mjög alvarlegt stílbrot. Kristján var í háum hvítum sokkum sem hefur verið sett á bannlista ásamt hvítum buxum og rauðum stuttbuxum. Ég get þó tekið upp hanskann fyrir hann Kristján því að sokkarnir voru í Arsenal litunum.
Flott æfingum hjá flottum hóp. Sennilega metmæting að þessu sinni, 21 aðili.
Kveðja úr Skerjafirði,
Reynir
Frábær æfing hjá flottum hlaupurum og með flotta leiðbeinendur, það er að verða erfitt að koma bara einu sinni í viku á æfingum með hópnum frá Akranesi, hópurinn hefur mikið aðdráttarafl.
ReplyDeletekv
Magnús á Skaga