Sunday, February 27, 2011

Afrekshópur á Heiðmerkurslóðum

Mættir: Höskuldur, Albert, Reynir, Viktor, Þórdís, Anna Lára+Hera, nýr meðlimur án nafns, Margeir, Hannes, Frikki, Jói, Siggi.

Staðsetning: Helluvatn

Veður: Alls konar. Logn, vindur, sól, éljagangur, skýjað.

Það voru sannkallaðir morgunhanar sem mættu klukkan átta við Helluvatn í gærmorgun! Fyrst á svæðið voru Höskuldur, Albert, Reynir, Viktor, nafnlaus, Þórdís og undirrituð. Það var reyndar einn grunsamlegur og mannlaus bíll á bílastæðinu, hvítur Volkswagen Polo. Maður var nú ekki lengi að leggja saman 2 plús 2 og fá út 4 því það gat enginn annar en Hekluhlauparinn Margeir átt þennan bíl! Hann var greinilega enn sprækari en við sem mættum átta því hann var lagður af stað!

Við ákváðum að vera ekkert að hika við hlutina og lögðum af stað því það var pínu svalt. Leiðir skyldu fljótt. Strákarnir leiddu, ég dróst aftur úr og Þórdís var fyrir aftan, væntanlega að bíða eftir Önnu Láru.
Ég setti því útvarpið í eyrun og fór í minn eigin heim ..... sem var ágætt .... þangað til að stór, brúnn og yfir sig æstur hundur, ekki í taum, hljóp á 120 km hraða að mér og gelti eins og hann ætti lífið að leysa. Þá brá mér. Svo mikið að ég gargaði! Alveg óvart. Stuttu síðar kom gönguhópur og þar á meðal eigandinn. Ég baðst afsökunar á þessu dramatíska góli og útskýrði að mér hefði brugðið svo mikið að þetta hefðu verið ósjálfráð viðbrögð. Eigandinn tjáði mér að hundurinn hefði farið í þennan æsingsgír út af MÚNDERINGUNNI minni! Heimskautabúningurinn vakti þá upp varnarviðbrögð hjá hundinum :D

Eftir rúmlega 6 km mætti ég Jóa og stóð hann að ríkishringslögbroti. Kappinn var að fara í öfuga átt. Ég ákvað að geyma áminninguna þar til síðar þar sem það er stutt í stóra hlaupið hjá honum og svona .... það er betra að halda friðinn :D Áfram veginn og það líðu ekki nema nokkrar mínútur, þá var Jói búinn að snúa við og var mættur aftur ásamt Sigga, Hannesi og Frikka. Við héldum hópinn  til loka hrings nr.1 og eitthvað fram í hring 2. Þá dó ég og sneri við.

Þannig fór um sjóferð þá. Þeir sem fóru styst fóru einn hring og sumir rétt rúmlega en verðandi Rotterdam-maraþonhlauparar sýndu hörku í éljaganginum og tóku 3 hring takk fyrir og góðan daginn. Kanarífuglarnir þjösnuðust tvo.

Transgrancanaria hlaupið fer svo fram um næstu helgi. Lengsta hlaupið verður ræst á miðnætti föstudag/laugardag. Hinar vegalengdirnar verða ræstar morguninn eftir. Þeir sem hafa áhuga á fréttum af Kanaríförum geta farið á þessa slóð http://www.transgrancanaria.net/paginas/ver/72 Við getum vonandi komið keppnisnúmeraupplýsingum áleiðis svo þið getið nú örugglega fylgt okkur eftir í huganum og sent góða strauma :)

Með vinsemd og virðingu,
Helga Þóra

3 comments:

  1. Flott að fá þennan link Helga svo við getum fylgst með ykkur, það verður gaman að sjá afrakstur allra æfinganna í góðum árangri hjá ykkur :)
    kv HÓ

    ReplyDelete
  2. Fín mæting þennan laugadaginn. Annars þá mun maður fylgjast með næsta laugadag hvernig ykkur mun ganga. Ekki spurning...

    ReplyDelete
  3. Hlakka til að fylgjast með ykkur á Kanarí. Góða skemmtun og gangi þér vel Helga.

    kv. Anna Lára

    ReplyDelete