Tuesday, May 31, 2011

Gíraður og græjaður og farinn

Mættir: Flottustu hlauparar norðan Alpafjalla og þó víðar væri leitað
Staður: Kjarvalsstaðir
Veður: Sól og vindur. Samt alveg gott sko. Miklu betra en skýjað og vindur með nokkrum frostgráðum í ofanálag.

Æfing dagsins voru 1000 metra brekkusprettir í Öskjó. Sumir áttu að taka þrjá, aðrir fjóra og sumir fimm. Allt eftir markmiðum hvers og eins. Gott og blessað.
Eftir að hafa beðið eftir höfðingjanum kom hann loks eftir dúk og disk. Græjaður í drasl. Craft-klæddur frá toppi til táar, merktur Afreki og Afreksvörum, nýklipptur, með Raid-light trailpokann sinn, í njú ballans túttum og með hlaupaúr. Græjaðri mann er vart hægt að finna á götum Reykjavíkurborgar svona á heiðarlegum mánudegi. Hann var svo gíraður að hann sá sér ekki fært að hlaupa sprettina með okkur. Joggaði samviskusamlega inn í skóg .... og laumaði sér svo í burtu... hjóðalaust ..... Það kom ekki að sök, enda erum við búin að vera svo lengi í góðu og ströngu uppeldi hjá Danna að þeirri hugdettu um að svíkjast undan laust ekki niður í huga neins!!! Þetta kallar maður járnaga og vel upp alin kvikindi. Undirrituð veit ekki betur en að allir hafi lagt sig 130% fram og hlaupið alla þá spretti sem fyrir voru lagðir. Meira að segja Steinunn Þórdísarmamma var mætt til að þeysast um Öskjuhlíðina þvera og endilanga eftir margra mánaða ökklameiðslavesen! Enda lagði hún sig svo mikið fram að hún náði að hrasa um enn lítinn ólukku stein sem varð á vegi hennar. Helv... steinar ... þeir geta nú alveg orðið færustu hlaupurum að falli. Undirrituð mælir með að fólk hafi viskukorn þjálfara vor ávallt í huga ..... en það viskukorn hljóðar svo:
„Maður verður að lyfta löppunum þegar maður hleypur“ ..... afskaplega einfalt ... en getur orðið flókið þegar þrjátíuogeitthvað kílómetrar liggja í valnum og lappirnar orðnar þuuuuungar .......

Svo mörg voru þau orð.

Með vinsemd og virðingu,
HT Johnson

Tuesday, May 24, 2011

Veðurguðagrín?

Staður: Ríkishringsstaðir
Stund: 17:30 á skuggalegum mánudegi
Mættir: Margir

Þetta var frekar öskuþrunginn mánudagur. Eldgos í Grímsvötnum litaði bæinn öskubrúnan.
Fyrr um daginn höfðu heitar umræður farið fram í tölvupóstsamskiptum hópsins. Áttu menn almennt að mæta eða ekki? Og, ef menn ákváðu að mæta ekki, yrðu þeir þá stimplaðir sem eymingjar að eilífu amen? Þjálfari vor skýtur nefninlega hörðum skotum ef honum finnst tilefni til.... samanber Afrekshópsmeðlimina sem létu undan hundrað metrum á sekúndu á Esjunni síðastliðinn föstudag og Yfirnáttúrulegu Afrekshópsmeðlimina sem gömbluðu með líf sitt og þrömmuðu upp að steini í 200 metrum á sekúndu. Síðar nefndi hópurinn fékk tíu í kladdann hjá Danna Boj á meðan hinir fengu núll.
Og áfram héldu tölvupóstsamskiptin. Palli sendi hópnum hlekk á síðu Umhverfisstofnunar sem sýndi fram á þá staðreynd að loftgæðin í Reykjavík voru arfaslök sökum öskufalls .... á meðan Laddi sendi lærðar greinar á hópinn varðandi áhrif ösku á lungun auk þess sem hann lagði áherslu á að konan hans hefði BANNAÐ honum að fara út þennan daginn vegna ösku ... og hún er sko hámenntaður doktor! ...
Þetta voru orðnar ævintýralegar ógurlegar umræður um mögulegar afleiðingar þess að fara út að hlaupa í ösku ... þar til hlaupahöfðinginn sjálfur sá ástæðu til að leggja orð í belg ... og sagði .....

Mætum öll hress á æfingu í dag og tökum vel á því.  Látum nokkur öskukorn ekki stoppa okkur af.

Og það dugði því það mætti heill hellingur á æfingu. Iss, ég meina, smá sement í lungun, hvað er það á milli vina?
Aðstæður voru vægast sagt nóvemberlegar. 3ja stiga hiti og rok. Uss. Of ef litið var í átt að Esjunni mátti sjá gráma í henni. Þessi vetrardjókur á vordögum hjá háttsettum veðurguðum fer að verða ansi þreytt.

Nóg um það. Sprettæfingin var krefjandi svo ekki sé meira sagt. Þetta var brekkusprettaæfing fyrir allan peninginn svo vægt sé tekið til orða. Sviði í lærum, mæði í hámarki og gubb í hálsi. Alveg eins og þetta á að vera. Ég meina, þetta er ástæðan fyrir því að maður hleypur sér til ánægju og yndisauka!
Þegar allir höfðu þreytt sína spretti samviskusamlega voru þeir sammála um að að skrölta stystu leið til baka, þetta var jú að verða ansi gott. Nema hún Svava. Hún er aðdáandi laaaaaaaaaangs niðurskokks. Undirrituð vildi hins vegar eins stutt og möguleiki var á. 3,3 km var niðurstaðan. Það var þokkalega passlegt að mati undirritaðrar, hefði þó ekki mátt vera lengra. Hefði Svava fengið að ráða hefðum við tekið töluvert lengra ... kannski værum við bara enn á hlaupum....

Með sól í hjarta og ösku í augum,
Helga

Friday, May 20, 2011

Keppni og hamfarir

Jæja þá í þetta sinn.
Það er ekki hægt að segja annað en að Afrekshópur Ármanns, undir dyggri stjórn Daníels Smára, sé á útopnu! Ef það eru ekki sprettir í Öskjuhlíð eða 10 km keppnishlaup hjá félögum vorum í Grafarvogi að þá er það fjallaferð í hamfaraveðri svo ekki sé meira sagt.

En byrjun nú á byrjuninni. Það er alltaf vænlegast til árangurs.

Í gær héldu Grafarvogshlauparar Fjölnishlaupið með miklum sóma. Slatti af Afrekshópsmeðlimum mætti að sjálfsögðu til leiks. Eftir hitting í anddyrinu þar sem  skraf og ráðagerðir varðandi hlaup í sumar fóru fram, spjall um Esjuferð um miðja nótt og miklar umræður um brekkUNA í Fjölnishlaupinu, var haldið af stað í smá upphitun. Inga var sett sem fararstjóri þar sem hún þekkti hverfið vegna búsetu þar á sínum yngri árum. Restin af hópnum var nefninlega sem villuráfandi sauðir í ókunnu landi á heimaslóðum Fjölnishópsins. Ingu fórst þetta vel af hendi. Hún stýrði þessu fantavel.
Eftir góða upphitun, huggulegar hraðaaukningar, teygjur og jú, smá spjall var fræst af stað.

Hlaupið gekk nokkuð vandræðalaust hjá öllum Afrekshópshlaupurum ef undirritaðri skjátlast ekki! Hún náði reyndar ekki viðtali við alla að hlaupi loknu en náði þó að dekka stemninguna hjá flestum. Það voru nokkur pörsonal best í þetta sinnið  þannig að smá mótvindur og eitt stykki eins kílómetra brekka í blálokin í hlaupinu virtust ekki hafa áhrif á alla! Það er morgunljóst. Steinunn, Laddi, Þórdís,Anna Lára og Inga sáu um að bæta sig í þessu hlaupi og eru þau vel að því komin! Við erum að tala um margra tuga sekúndna bætingu í mörgum tilfellum! Ef fleiri bættu sig mega þeir í guðs lifandi bænum koma því á framfæri í athugasemdarkerfinu hér fyrir neðan. Vaktarkerfi undirritaðrar hvað bætingar og tíma varðar er víst ekki óbrigðult :)
Frammistaða Afrekshóps Ármanns var sem hér segir:

9.sæti - Höskuldur Ólafsson - 00:39:11
14.sæti - Margeir Kúld Eiríksson - 00:40:36
21. sæti - Viktor J. Vigfússon - 00:41:22
24. sæti - Reynir Jónsson - 00:41:54
25.sæti - Sigurður Kiernan - 00:41:58
27.sæti - Hannes Hauksson - 00:42:15
28.sæti - Jón Ragnar Ragnarsson - 00:42:18
50.sæti - Anna Lára Steingrímsdóttir - 00:45:14
51.sæti - Haraldur Karl Reynisson - 00:45:16
60.sæti - Sigurður Óli Gestsson - 00:46:24
73.sæti - Rafn Sigurðsson - 00:47:55
77.sæti - Þórdís Grímheiður Magnúsdóttir - 00:48:31
95.sæti - Inga Björk Guðmundsdóttir - 00:51:06
97.sæti - Helga Þóra Jónasdóttir - 00:51:45
101.sæti - Ingvar Þór Magnússon - 00:52:06
106.sæti - Stefán Bragi Stefánsson - 00:52:47
126.sæti - Dagrún Hálfdánardóttir - 00:55:37
129.sæti - Þórhallur Helgason - 00:55:43
142.sæti - Sigurður Ólafsson - 00:58:27
156. sæti - Steinunn Sveinsdóttir - 01:02:40

Þó að undirrituð hafi ekki mölbrotið fimmtíu mínútna múrinn í þetta sinnið stóð hún sig þó með stakri prýði hvað útdráttarverðlaun varðar! Já já já já .... landaði hvorki meira né minna en gjafabréfi hjá Reykjarvíkurmaraþoni og getur hún valið um 3ja kílómetra hlaup eða 10 kílómetra hlaup í ágúst næstkomandi! Aldeilis stórveldi á minni :D

Nú. Að æfingu þessa dags. Esjuæfingu. Undirrituð kíkti samkvæmt venju inn á www.vedur.is í gærkvöldi til að rannsaka veðurfar á Esjunni kl.6:15 í morgun. Veðurspáin leit þokkalega út. 10 metrar á sekúndu, skýjað og 3ja stigi hiti. Ókei, kannski ekki sérlega þokkalegt miðað við árstíð en, miðað við þær veðurumræður sem fram hafa farið í vikunni um helgarveðrið var þetta bara skítsæmilegaþokkalegaágætt.
...... þetta hætti nú samt alveg að vera ágætt þegar við Elísabet blöstuðum fram hjá veðurstofuskiltinu við Esjumela kl. 6:08 í morgun. Kjalanes 22 m/s ... og til að toppa þá stemningu var sjórinn grár og úfinn ... og Esjan grá til hálfs og jú, eitthvað hálf kuldaleg. Við Elísabet litum á hvor aðra ..... og önnur sagði (segi ekki hver): Við getum sko alveg gert eitthvað annað en að fara á Esjuna .....  Samt var keyrt áfram .... kannski heldur hægar og með minni eftirvæntingu.
Þegar á bílastæðið var komið hittum við hlaupafélaga okkar svo eldhressa að helmingurinn í hressileika hefði verið yfirdrifinn við þessar aðstæður. Þeir ætluðu svo sannarlega að taka Esjuna í nefið og snýta henni út um aðra nösina. Gott og vel. Undirrituð gat nú ekki verið minni kona og lagði af stað með þá von í brjósti að sjá efstu menn snúa fljótlega við því þetta var heldur garralegt.
En áfram hélt hópurinn. Vindrokurnar léku um okkar vel þjálfuðu hlaupaskrokka en enginn lét undan ... ekki bili. Og áfram var haldið .... upp sandstíginn ... yfir trébrúnna..... upp steinatröppurnar .... áfram stíginn .... nei ... bíddu, er Reynir að snúa við??? Hvur þremillinn ... og Margeir líka .... Laddi ... Palli ... Svava ....Og öll sögðu þau, þegar þau fuku fram hjá undirritaðri að þetta væri bara heiðarleg vitleysa. Undirrituð ákvað samt að rannsaka málið og halda smávegis áfram þegar hinir voru þegar búnir að rannsaka þær lendur og nú þegar snúnir við. Þegar hún stóð ekki lengur í lappirnar og missti andann í einni hviðunni ákvað hún að þetta var bara ágætt í bili. Hún ætlaði ekki að fórna lífi eða limum fyrir bandbrjálaða veðurguði og eina Esjuæfingu. Ekki séns.
Nokkrir yfirnáttúrulegir Afrekshópsmeðlimir og Ekki-Afrekshópsmeðlimir þvermóðskuðust og nögluðust upp að steini og fuku eins og laufblöð í vindi niður aftur. Til allrar hamingju voru heilladísirnir yfir þeim því allir komu þeir nokkuð heilir aftur... tja, fyrir utan einn Ekki-Afrekshópsmeðlim sem fauk, í bókstaflegri merkingu, niður fjallið og tók nokkrar myndarlegar byltur í leiðinni. Hann var lemstraður, með kúlur og bólginn þegar síðast fréttist af honum.

Jæja, þetta er löngu orðið gott. Langt á morgun.

Með vinsemd og virðingu,
HT Johnson

Tuesday, May 17, 2011

Dúddírú

Staður: Kjarvalsstaðir við Klambratún
Mættir: Heill haugur
Veður: Óásættanlegt miðað við dagsetningu - sól, vindasamt og kalt. Við erum að tala um að fólk var með vetrarvettlinga, húfur og buff. Sumir vitleysingar voru í stuttbuxum og bol en um þá verður ekki rætt hér.

Hinn ört stækkandi, og ef ekki stærsti hópurinn á hlaupadagbókinni, Afrekshópur hittist við Kjarvalsstaði í gær. Sumum var kalt, aðrir mánudagsþreyttir en aðrir síkátir. Það er „vandamál“ sem klárlega hægt er að lifa með =o)
Eftir að hafa hríslast úr kulda í margar mínútur mætti þjálfi og af stað var haldið. Að sjálfsögðu var hefðbundin leið valin út í Öskjuhlíð því í Afrekshóp gildir ekkert nema að fylgja hefðum hvað upphitun varðar. Niður Flókagötu, til vinstri inn á Rauðarárstíg, til vinstri upp Miklubraut, undirgöngin undir ljósin, Langahlíð og til hægri inn Eskihlíð, Slökkviliðsstöð, Hlíðarendi, Öskjó ..... Undirrituð gæti joggað þetta blindandi með ís í annarri og gettóblaster í hinni.....

Jamm og já, hvað um það. Dagskipun þjálfarans hljóðaði upp á fjóra til fimm 1000 metra spretti með 2ja mínútna hvíld á milli. Klassíkerinn síðan í fyrra. Þessi æfing klikkar ekki fyrir Laugarann. Ef ykkur fannst þess æfing rífa af ykkur rassgatið og sjóða á ykkur lærin, bíðið þá sultuslök á kantinum eftir Heiðmerkursprettum. Þar erum við að tala um atvinnumennsku í Laugavegsmaraþonsæfingaprógrammi! 
Eftir flotta takta á stígum Öskjuhlíðar, marga svitadropa, ótal mörg púst, nokkrar ælur í hálsi og nokkur þúsund metra var haldið til baka að Kjarvalsstöðum þar sem Daníel sagði frá reynslu sinni í Mont Blanch hlaupinu í fyrra. Hann sagði okkur meðal annars frá því að í því hlaupi hafi hann tapað tilgangi lífsins ... a.m.k. um stundarsakir. Ætli það séu góð meðmæli með annars frábæru hlaupi?

Jæja, endemis þvaður alltaf hreint.

Með vinsemd og virðingu,
Helga Thoris Johnson

Friday, May 13, 2011

Hundraðkallar

Fimmtudagskvöldið 12 maí, klukkan 20:00 voru sex hlauparar úr Afrekshópnum vígðir inn í hið virta félag 100 km. hlaupara á Íslandi. Það voru þau:

Christine Buchholz, meðlimur númer 30
Anna Sigríður Sigurjónsdóttir, meðlimur númer 31
Sigurður Kiernan, meðlimur númer 32
Jóhann Gísli Sigurðsson, meðlimur númer 33
Helga Þóra Jónasdóttir, meðlimur númer 34
María Jóhannesdóttir, meðlimur númer 35


Vildi ég óska þeim kærlega til hamingju með áfangann og er ég viss um að fleiri fræknir hlauparar í hópnum eiga eftir að bætast í hópinn fljótlega.

Svo er það bara Neshlaupið er það ekki??

Föstudagskveðja úr Vesturbænum,
Reynir

Tuesday, May 10, 2011

Æfing gærdagsins og dagsins í dag

Mættir: Haugur
Staður: Kjarvalsstaðir
Stund: 17:15
Veðurskilyrði: Bongó. Heitt, úði af og til. Logn að mestu
Klæðnaður: Margir léttklæddir. Þeir veðurskeptísku voru þó í síðu að neðan og ofan

Esjuæfing föstudagsins setti svo sannarlega strik í reikninginn hjá flestum ef ekki öllum Afrekshópsmeðlimum um helgina. Sögur heyrðust héðan og þaðan um alls konar erfiðleika sem stöfuðu af Esjuharðsperrum! Meira að segja hörðustu karlmenn játuðu sig sigraða og kvörtuðu sáran undan fjallaeymslum. Undirrituð átti virkilega erfitt á laugardaginn. Komst með herkjum út úr bíl og niður tröppur. Daníel Smári aka Hvíti Kenya þurfti einnig að láta undan sínum sperrum og breytti því uppleggi æfingarinnar úr 4 x 1000 metra brekkusprettum yfir í 10 x 500 metra spretti á mjúkum stígum Öskjuhlíðarinnar ..... svo fylgdi sá bónus með frá foringja vor að þetta ætti að vera létt og þægilegt .... þannig að við kæmum mjúk og slök inn í æfingu dagsins í dag á Esjunni.
Við getum deilt um léttleika og þægilegheit þessara æfingar til jóla því það fór lítið fyrir því hjá flestum sem þreyttu þessa spretti. En, undirrituð er nú ekki frá því að heilsan sé nú bara töluvert betri eftir þessa huggulegu og krúttlegu spretti.

Nú, að æfingu dagsins í dag sem var þreytt kl.6:15 in the crack of dawn. Æfing sem undirrituð mætti ekki á fyrr en seinni partinn því að hún svaf á sínu græna.... þannig að ... það er eiginlega ekki við hæfi að undirrituð bloggi mikið um þá æfingu! Hún getur þó sagt að veðrið seinni partinn var yndislega fullkomið. Dásamleg fjallaferð og góð upphitun fyrir júróvisjón.

..... talandi um júró. Þegar undirrituð spændi niður síðasta spotta Esjunnar mætti hún Palla-og Ladda Palla.... sem var að hefja sína vegferð upp að steini. Klukkan átján núll núll. Samkvæmt vísindalegum útreikningum átti hann að vera kominn niður rétt rúmlega um kvöldmat.... sem leiðir svo til þeirrar staðreyndar að Palli missti af júróvisjón.  Hér er um hreint og klárt júróvisjónlögbrot að ræða sem verður tekið til meðferðar næstkomandi laugardag.

Annars mælir undirrituð með að fólk haldi með Noregi (já já, hún datt út en klárlega eitt af betri hressileikalögum keppninnar), Íslandi, Danmörku, Georgíu, Sviss Grikklandi og FRAKKLANDI. Kannski Írlandi, veit ekki.... jafnvel Paradísar-Óskari frá Finnlandi... það er samt ansi umhverfislega væminn lagstúfur..... Bretar þykjast vera svalir í ár... við skulum sjá hvort að það nái einhverjum hæðum hjá þeim.

Með vinsemd og virðingu,
Helga Thoris Johnson

Friday, May 6, 2011

Esjuæfing

Staður: Esjurætur
Stund: 6:15 takk fyrir pent
Mættir: Gríðarlegur fjöldi í ljósi þess að sólin var ennþá í svefnrofanum

Já. Nú ert ekkert elsku mamma hjá foringja vor. Laugavegsmaraþonið nálgast eins og sveittur bavíani á hjóli og því er ekki slegið slöku við. Enda var Esjuæfing sett á eins ókristilegum tíma og hugsast getur ... tja, æfingin sem slík er kannski ekki á svo svakalega ókristilegum tíma... en, í ljósi þess hvenær og hvar æfingin er þá þarf maður að rífa sig upp all illilega snemma til að vera mættur á réttum tíma. Klukkan var 5:30 þegar vekjaraklukka undirritaðrar hringdi, hvernig hinir fóru að veit hún ekki.

Veðrið var alveg hreint þokkalega sæmilegt... þ.e. við Esjurætur! 4-5 stiga hiti, smá gjóla og svo hékk hann þurr. Þó ansi rigningarlegt. Þegar klukkan sló 6:16 og sjálfur foringinn var EKKI MÆTTUR var haldið af stað. Og það var ekki að spyrja að því; órólega deildin fræsti svoleiðis af stað að við hin stóðum í reykmekkinum og máttum halda áfram göngu okkar með súrefnisgrímur, svo svakalega spóluðu hinir óðu af stað. Enda engir slortímar sem þessir fyrstu náðu ... þrjátíu og eitthvað margar mínútur að steini. Það er sko ekki á hvers manns færi gott fólk!

Sumir voru svellkaldir og voru léttklæddir eins og t.d. EmmessÍsBjörn. Hann mætti í stullum. Verði honum að góðu. Ég býst fastlega við því að hann hafi haldið sig í heitu loftrými í dag og sleppt því að fara niður í framleiðslu að sækja sér Hnetutopp með ævintýralega góðu bananaíssósunni sinni. Svo voru sumir á peysunni einni fata (sko, að ofan). Verði þeim líka að góðu. Undirritaðri var hreinlega kalt fyrir þeirra hönd - hún var guðslifandi fegin að hafa brotið odd af oflæti sínu og farið í auka ullarundirbol í nótt (já, það var nótt) þrátt fyrir að það sé 5.maí. Skaplega veðrið við Esjurætur náði nefninlega ekki ofar í fjallið. Það var hvasst og rok og vindur og hvasst. Og líka kalt.

Venju samkvæmt var undirrituð með síðustu skipum að fyrsta áfangastað, hinum margrómaða steini. Þegar hún var að tjilla við steininn mætti þjálfari vor með stafina sína. Hann lagði af stað korteri seinna en náði í skottið á síðasta skipinu. Undirrituð náði rétt svo að bjóða góðan daginn og skipa þjálfa að klukka steininn (það eru óskrifuð lög að klukka steininn, annars fær maður ekki steinatíma) áður en hann hvarf sjónum. Hann hljóp ævintýralega hratt niður.

Jæja, þetta ætti að vera nógu mikið blaður um ekki stærri viðburð en þetta er.

Með vinsemd og virðingu,
Helga Þóra

Tuesday, May 3, 2011

Vormaraþon FM

Síðastliðinn laugadagsmorgunn voru margir hlauparar sem að hlupu undir merkjum Afrekshópsins eða hlaupahóps Ármanns. Aðstæður voru ágætar og var árangur samkvæmt því. Logn, snjókoma og rúmlega frostmark kom ekki í veg fyrir það að fjöldi hlaupara í hópnum náði sínum besta árangri og/eða besta árangri sínum í langan tíma. Hér að neðan koma tímar þeirra sem að hlupu undir merkjum hópsins og setti ég in PB hjá þeim sem að bættu tímana sína að ég best veit.
6    Daníel S Guðmundsson               01:22:02
7    Róbert Gunnarsson                  01:22:05
14   Margeir Kúld Eiríksson             01:25:20 PB
39   Viktor Jens Vigfússon              01:29:57 PB
40   Svava Rán Guðmundsdóttir           01:30:43 PB
60   Reynir Jónsson                     01:34:26 PB
70   Jón Ragnar Ragnarsson              01:35:45 PB
74   Albert Þorbergsson                 01:36:14 PB
101  Anna Lára Steingrímsdóttir         01:39:25 PB
136  Rafn Sigurðsson                    01:46:02
162  Christine Buchholz                 01:48:43
169  Þórdís Grímheiður Magnúsdóttir     01:50:25 PB
197  Inga Björk Guðmundsdóttir          01:55:21 PB
218  Páll Helgason                      01:58:56 PB
220  Gróa Másdóttir                     01:59:03 PB
227  Arndís Björnsdóttir                02:00:47
233  Ingvar Þór Magnússon               02:02:29 PB
235  Þórhallur Helgason                 02:03:37 PB
256  Guðrún Björg Elíasdóttir           02:16:20 PB
260  Steinunn Sveinsdóttir              02:20:21 PB

Að lokum skal þess getið að Svava vann kvennaflokkinn og Daníel vann sinn aldursflokk!!

Kveðja,
Reynir