Mættir: Haugur
Staður: Kjarvalsstaðir
Stund: 17:15
Veðurskilyrði: Bongó. Heitt, úði af og til. Logn að mestu
Klæðnaður: Margir léttklæddir. Þeir veðurskeptísku voru þó í síðu að neðan og ofan
Esjuæfing föstudagsins setti svo sannarlega strik í reikninginn hjá flestum ef ekki öllum Afrekshópsmeðlimum um helgina. Sögur heyrðust héðan og þaðan um alls konar erfiðleika sem stöfuðu af Esjuharðsperrum! Meira að segja hörðustu karlmenn játuðu sig sigraða og kvörtuðu sáran undan fjallaeymslum. Undirrituð átti virkilega erfitt á laugardaginn. Komst með herkjum út úr bíl og niður tröppur. Daníel Smári aka Hvíti Kenya þurfti einnig að láta undan sínum sperrum og breytti því uppleggi æfingarinnar úr 4 x 1000 metra brekkusprettum yfir í 10 x 500 metra spretti á mjúkum stígum Öskjuhlíðarinnar ..... svo fylgdi sá bónus með frá foringja vor að þetta ætti að vera létt og þægilegt .... þannig að við kæmum mjúk og slök inn í æfingu dagsins í dag á Esjunni.
Við getum deilt um léttleika og þægilegheit þessara æfingar til jóla því það fór lítið fyrir því hjá flestum sem þreyttu þessa spretti. En, undirrituð er nú ekki frá því að heilsan sé nú bara töluvert betri eftir þessa huggulegu og krúttlegu spretti.
Nú, að æfingu dagsins í dag sem var þreytt kl.6:15 in the crack of dawn. Æfing sem undirrituð mætti ekki á fyrr en seinni partinn því að hún svaf á sínu græna.... þannig að ... það er eiginlega ekki við hæfi að undirrituð bloggi mikið um þá æfingu! Hún getur þó sagt að veðrið seinni partinn var yndislega fullkomið. Dásamleg fjallaferð og góð upphitun fyrir júróvisjón.
..... talandi um júró. Þegar undirrituð spændi niður síðasta spotta Esjunnar mætti hún Palla-og Ladda Palla.... sem var að hefja sína vegferð upp að steini. Klukkan átján núll núll. Samkvæmt vísindalegum útreikningum átti hann að vera kominn niður rétt rúmlega um kvöldmat.... sem leiðir svo til þeirrar staðreyndar að Palli missti af júróvisjón. Hér er um hreint og klárt júróvisjónlögbrot að ræða sem verður tekið til meðferðar næstkomandi laugardag.
Annars mælir undirrituð með að fólk haldi með Noregi (já já, hún datt út en klárlega eitt af betri hressileikalögum keppninnar), Íslandi, Danmörku, Georgíu, Sviss Grikklandi og FRAKKLANDI. Kannski Írlandi, veit ekki.... jafnvel Paradísar-Óskari frá Finnlandi... það er samt ansi umhverfislega væminn lagstúfur..... Bretar þykjast vera svalir í ár... við skulum sjá hvort að það nái einhverjum hæðum hjá þeim.
Með vinsemd og virðingu,
Helga Thoris Johnson
No comments:
Post a Comment