Jæja þá í þetta sinn.
Það er ekki hægt að segja annað en að Afrekshópur Ármanns, undir dyggri stjórn Daníels Smára, sé á útopnu! Ef það eru ekki sprettir í Öskjuhlíð eða 10 km keppnishlaup hjá félögum vorum í Grafarvogi að þá er það fjallaferð í hamfaraveðri svo ekki sé meira sagt.
En byrjun nú á byrjuninni. Það er alltaf vænlegast til árangurs.
Í gær héldu Grafarvogshlauparar Fjölnishlaupið með miklum sóma. Slatti af Afrekshópsmeðlimum mætti að sjálfsögðu til leiks. Eftir hitting í anddyrinu þar sem skraf og ráðagerðir varðandi hlaup í sumar fóru fram, spjall um Esjuferð um miðja nótt og miklar umræður um brekkUNA í Fjölnishlaupinu, var haldið af stað í smá upphitun. Inga var sett sem fararstjóri þar sem hún þekkti hverfið vegna búsetu þar á sínum yngri árum. Restin af hópnum var nefninlega sem villuráfandi sauðir í ókunnu landi á heimaslóðum Fjölnishópsins. Ingu fórst þetta vel af hendi. Hún stýrði þessu fantavel.
Eftir góða upphitun, huggulegar hraðaaukningar, teygjur og jú, smá spjall var fræst af stað.
Hlaupið gekk nokkuð vandræðalaust hjá öllum Afrekshópshlaupurum ef undirritaðri skjátlast ekki! Hún náði reyndar ekki viðtali við alla að hlaupi loknu en náði þó að dekka stemninguna hjá flestum. Það voru nokkur pörsonal best í þetta sinnið þannig að smá mótvindur og eitt stykki eins kílómetra brekka í blálokin í hlaupinu virtust ekki hafa áhrif á alla! Það er morgunljóst. Steinunn, Laddi, Þórdís,Anna Lára og Inga sáu um að bæta sig í þessu hlaupi og eru þau vel að því komin! Við erum að tala um margra tuga sekúndna bætingu í mörgum tilfellum! Ef fleiri bættu sig mega þeir í guðs lifandi bænum koma því á framfæri í athugasemdarkerfinu hér fyrir neðan. Vaktarkerfi undirritaðrar hvað bætingar og tíma varðar er víst ekki óbrigðult :)
Frammistaða Afrekshóps Ármanns var sem hér segir:
9.sæti - Höskuldur Ólafsson - 00:39:11
14.sæti - Margeir Kúld Eiríksson - 00:40:36
21. sæti - Viktor J. Vigfússon - 00:41:22
24. sæti - Reynir Jónsson - 00:41:54
25.sæti - Sigurður Kiernan - 00:41:58
27.sæti - Hannes Hauksson - 00:42:15
28.sæti - Jón Ragnar Ragnarsson - 00:42:18
50.sæti - Anna Lára Steingrímsdóttir - 00:45:14
51.sæti - Haraldur Karl Reynisson - 00:45:16
60.sæti - Sigurður Óli Gestsson - 00:46:24
73.sæti - Rafn Sigurðsson - 00:47:55
77.sæti - Þórdís Grímheiður Magnúsdóttir - 00:48:31
95.sæti - Inga Björk Guðmundsdóttir - 00:51:06
97.sæti - Helga Þóra Jónasdóttir - 00:51:45
101.sæti - Ingvar Þór Magnússon - 00:52:06
106.sæti - Stefán Bragi Stefánsson - 00:52:47
126.sæti - Dagrún Hálfdánardóttir - 00:55:37
129.sæti - Þórhallur Helgason - 00:55:43
142.sæti - Sigurður Ólafsson - 00:58:27
156. sæti - Steinunn Sveinsdóttir - 01:02:40
Þó að undirrituð hafi ekki mölbrotið fimmtíu mínútna múrinn í þetta sinnið stóð hún sig þó með stakri prýði hvað útdráttarverðlaun varðar! Já já já já .... landaði hvorki meira né minna en gjafabréfi hjá Reykjarvíkurmaraþoni og getur hún valið um 3ja kílómetra hlaup eða 10 kílómetra hlaup í ágúst næstkomandi! Aldeilis stórveldi á minni :D
Nú. Að æfingu þessa dags. Esjuæfingu. Undirrituð kíkti samkvæmt venju inn á www.vedur.is í gærkvöldi til að rannsaka veðurfar á Esjunni kl.6:15 í morgun. Veðurspáin leit þokkalega út. 10 metrar á sekúndu, skýjað og 3ja stigi hiti. Ókei, kannski ekki sérlega þokkalegt miðað við árstíð en, miðað við þær veðurumræður sem fram hafa farið í vikunni um helgarveðrið var þetta bara skítsæmilegaþokkalegaágætt.
...... þetta hætti nú samt alveg að vera ágætt þegar við Elísabet blöstuðum fram hjá veðurstofuskiltinu við Esjumela kl. 6:08 í morgun. Kjalanes 22 m/s ... og til að toppa þá stemningu var sjórinn grár og úfinn ... og Esjan grá til hálfs og jú, eitthvað hálf kuldaleg. Við Elísabet litum á hvor aðra ..... og önnur sagði (segi ekki hver): Við getum sko alveg gert eitthvað annað en að fara á Esjuna ..... Samt var keyrt áfram .... kannski heldur hægar og með minni eftirvæntingu.
Þegar á bílastæðið var komið hittum við hlaupafélaga okkar svo eldhressa að helmingurinn í hressileika hefði verið yfirdrifinn við þessar aðstæður. Þeir ætluðu svo sannarlega að taka Esjuna í nefið og snýta henni út um aðra nösina. Gott og vel. Undirrituð gat nú ekki verið minni kona og lagði af stað með þá von í brjósti að sjá efstu menn snúa fljótlega við því þetta var heldur garralegt.
En áfram hélt hópurinn. Vindrokurnar léku um okkar vel þjálfuðu hlaupaskrokka en enginn lét undan ... ekki bili. Og áfram var haldið .... upp sandstíginn ... yfir trébrúnna..... upp steinatröppurnar .... áfram stíginn .... nei ... bíddu, er Reynir að snúa við??? Hvur þremillinn ... og Margeir líka .... Laddi ... Palli ... Svava ....Og öll sögðu þau, þegar þau fuku fram hjá undirritaðri að þetta væri bara heiðarleg vitleysa. Undirrituð ákvað samt að rannsaka málið og halda smávegis áfram þegar hinir voru þegar búnir að rannsaka þær lendur og nú þegar snúnir við. Þegar hún stóð ekki lengur í lappirnar og missti andann í einni hviðunni ákvað hún að þetta var bara ágætt í bili. Hún ætlaði ekki að fórna lífi eða limum fyrir bandbrjálaða veðurguði og eina Esjuæfingu. Ekki séns.
Nokkrir yfirnáttúrulegir Afrekshópsmeðlimir og Ekki-Afrekshópsmeðlimir þvermóðskuðust og nögluðust upp að steini og fuku eins og laufblöð í vindi niður aftur. Til allrar hamingju voru heilladísirnir yfir þeim því allir komu þeir nokkuð heilir aftur... tja, fyrir utan einn Ekki-Afrekshópsmeðlim sem fauk, í bókstaflegri merkingu, niður fjallið og tók nokkrar myndarlegar byltur í leiðinni. Hann var lemstraður, með kúlur og bólginn þegar síðast fréttist af honum.
Jæja, þetta er löngu orðið gott. Langt á morgun.
Með vinsemd og virðingu,
HT Johnson
Man ekki til þess að ég hafi notað orðið "heiðarlegt" til að lýsa þessarri vitleysu :D
ReplyDeleteEr alla vega mjög ánægður með að hafa ekki slasað mig á þessu. Get líka uppfrætt fólk um að einn af ófélagsbundnu sem fóru upp (og var á mínum vegum) sagði mér áðan að hann þyrfti aðstoð við tröppur í dag sökum harðsperra :D
Blogghöfundur tekur sér það bessaleyfi að færa „aðeins“ í stílinn þegar tækifæri gefst til þess :D
ReplyDeleteOg jú, mikið er ég þér sammála að vera heil eftir þessa svaðilför þó hún hafi nú bara verið farin til hálfs :D
Helga Þóra
Esjugangan var laaaangbesta æfing ársins líkamlega og ekki síður andlega. Reyndi á hvern vöðva til hins ýtrasta, gæðin fullkomin. Kyrrðin og fegurðin upp við Stein á þessum yndisfagra maímorgni er ógleymanleg, eitthvað sem verður ekki líst með orðum, sigur mansandans yfir náttúruöflunum, ég grét.
ReplyDelete