Mættir: Daníel, Jónína, Bjössi, Reynir, Kristján, Albert, Siggi seini, Jóhanna og undirrituð.
Veðurskilyrði: 3ja stiga hiti, smá vindur hér og þar og heiðskírt. Ergo, himneskt vetrarveður :)
Í dag er hátíðardagur hjá Afrekshópnum. Uppskeruhátið verður haldin í kvöld þar sem afrekum síðustu missera verður fagnað með öli og mat. Í tilefni af þessum gleðidegi lagði þjálfari vor til að við hlypum ríkishringinn alræmda í Heiðmörk. Fólk er greinilega búið að gleyma þjáningum sínum og leiðindum (?) síðan í sumar frá ótalmörgum hlaupnum ríkishringjum því Afrekshópsmeðlimir samþykktu þessa hlaupaleið án nokkurra mótmæla! Til að rifja upp líðandi sumar var það einmitt lenskan að hlaupa lágmark tvo hringi .... yfirleitt þrjá ... en þeir allra klikkuðustu fóru fjóra. Fólk var farið að fá leiða á þessari leið ... og Jónína gekk svo langt að mótmæla í eitt skiptið og mætti ekki á æfingu við Helluvatn!! Þetta þóttu róttækar aðgerðir hjá annars mikilli rólyndis konu. Sumir brugðu á það ráð að hlaupa hringinn öfugan til að fá tilbreytingu í líf sitt ... og þá fórnuðu aðrir Afrekshópsmeðlimir, sem hlupu réttsælis, höndum - þetta passaði bara hreinlega ekki í þeirra litlu, þröngu ríkishringsveröld.
Nú, ef við víkjum að æfingu dagsins þá var hún bara nokkuð ágæt. Veðurguðirnir voru hressir í dag og létu okkur í té hið fínasta hlaupaveður þó að hann hafi verið nokkur svalur á vindaköflunum.
Undirrituð átti nokkuð erfitt í hringnum enda rifjuðust upp erfiðar æfingar síðasta sumars. Guði sé lof að það var bara einn hringur á dagskrá í dag.
Bjössi náði ekki að mynstra sig inn í hringinn í dag - hann fattaði ekki vinstri regluna og týndist. Hljóp bara eitthvert með náladofa í annarri og beinhimnubólgu í hinni .... Að öðru leyti sýndist undirritaðri að hlauparar hafi almennt komið vel undan hlaupi morgunsins og allir skælbrosandi eftir gott og frískandi morgunhlaup!
Næst á dagskrá er tjill og því næst hugguleg kvöldstund með hlaupafélögunum. Ætli þeir eigi öðruvísi föt en hlaupaföt? Það verður spennandi að sjá .... kannski maður verði feimin að sjá félagana í „venjulegum“ fötum :D
Með vinsemd og virðingu,
Helga Þóra
Afrekshópur er hópur hlaupara sem æfir markvisst til að ná árangri og leggur áherslu á gæði æfinga.
Saturday, October 30, 2010
Friday, October 29, 2010
Óvissuferð
Mættir: Daníel, Siggi, Reynir, Jónína, Bjössi, Rafn, Albert, Margeir og undirrituð.
Veðurskilyrði: Logn og 7 stiga hiti. Yndisgott veður.
Við mættum galvösk í Laugarból, höfuðstað Ármenninga í Laugardal. Daggskipan þjálfara hljómaði upp á 5x600 metra spretti. Við lögðum í hann ... og tókum framúrstefnulegan *hóst* upphitunarhring... leið sem aldrei hefur verið hlaupin áður *hóst* .... Þegar um það bil 3 km lágu í valnum kvað Hvíti Kenýa sér hljóðs - hann var með tilkynningu!!! ...... andrúmsloftið varð kyngimagnað því það er ekki á hverjum degi sem þessi rólyndis maður óskar eftir því að hafa orðið! ... og hvað þá að luma á tilkynningu. Reynir varð óöruggur og Siggi vissi ekki hvaðan á hann stóð veðrið. Undirrituð hlustaði með andakt og Jónína beið spennt á kantinum ...... rafmögnuð spenna ....... Þjálfari ætlaði að BREYTA dagsskipan. Engir 5x600 metra sprettir í dag kæru vinir - nei - fartleikur skyldi það vera! Við vorum níu talsins á æfingu og því sjálfskipaðir hraðastjórar á einhverjum tímapunkti á æfingunni. Allir áttu að stýra tveimur sprettum, minnst 100 metra langir, mest 1000 metra langir. Ergo 18x100 til 1000 metra sprettir. Mikil óvissa í uppsiglingu, ekki gott fyrir fólk sem er fyrirfram skipulagt og höndlar óvissu illa.
Til að gera langa sögu stutta varð þetta hin mesta og besta skemmtun - þó með þeirri áherslu á að þetta var suddalega erfið æfing!! Afrekshópshlauparar voru eins og útspýtt hundskinn um allan Laugardal og umhverfi .... allir á sínu besta tempói. Þegar fór að síga á seinni hlutann fannst undirritaðri (og Bjössa) nóg um ... þetta var bara miklu erfiðara en nokkru sinni fyrr.... 6 x 1000 metra sprettir í Öskjuhlíðinni fölna við hlið þessarar æfingar, það er morgunljóst.
Uppskeruhátið laugardagsins var rædd. Þar viðraði undirrituð, við undirtektir Jónínu, að það þyrfti að endurskipuleggja verðlagningu á matar-og drykkjarpakka kveldsins. Undirrituð fer að falla undir þann flokk að vera nöldrari með áframhaldandi nöldri.
Jæja, mál að linni.

Wednesday, October 27, 2010
Sprettæfing í Höllinni
Mættir voru Daníel, Siggi, Bjössi, Kristján, Jónína og Halldóra og einn nýr sem ég veit því miður ekki hvað heitir.
Eftir upphitunarhring um Laugardalinn var haldið inn í höll þar sem teknir voru 15 200 metra sprettir. Gaman að breyta til og vera inni en það þarf aðeins að venjast þurra loftinu. Góðir sprettir sem tóku vel í. Eftir hefðbundið niðurskokk voru teknar 700 magaæfingar í boði Sigga. Nei þetta er ekki ritvilla, alveg satt :-)
Tekin var ákvörðun um að taka styrktaræfingar eftir sprettæfingar og talaði Daníel um að hann ætlaði einnig að senda okkur upplýsingar um styrktaræfingar og liðleikaæfingar.
JG

Saturday, October 23, 2010
Haustmaraþon FM
Wednesday, October 20, 2010
Powerade hlaup nr.1
1.Powerade vetrarins 14. okt. Góð þáttaka hjá Afrekshópnum og frábær árangur margir að setja persónulegt brautarmet og jafnvel PB með góðri bætingu. Þjálfarinn sýndi gott fordæmi og fór fyrstur, hann má þó fara að vara sig miðað við árangur hlaupafélaganna!
Um 400 manns tóku þátt í hlaupinu sem fram fór við ágætar aðstæður, smá gjóla og létt rigning.
Nafn | Tími | sæti | Sæti í flokk | Stig |
Daníel | 38:20 | 16 | 2 | 9 |
Höskuldur | 40:30 | 35 | 5 | 6 |
Margeir | 41:16 | 44 | 4 | 7 |
Sigurður | 41:17 | 45 | 5 | 6 |
Viktor | 41:34 | 48 | 7 | 4 |
Reynir | 41:45 | 53 | 9 | 2 |
Kristján | 46:05 | 116 | 4 | 7 |
Jónína | 47:26 | 139 | 3 | 8 |
Rafn | 47:46 | 144 | 11 | - |
Björn | 52:40 | 256 | 49 | - |
Helga | 52:48 | 257 | 8 | 3 |
Endilega láta mig vita ef einhverjar villur eru þarna eða eitthvað vantar.
Áfram Afrekshópur! Kv. Höskuldur
Saturday, October 16, 2010
Langur laugadagur, 16 október
Löng laugadagsæfing var að þessu sinni í Garðabæ. Hittingur var við sundlaugina og voru mættir Bjössi, Danni, Halldóra, Jónína og Reynir. Hlaupið var eftir Garðabæjarlæknum og upp í Heiðmörk. Jónína fékk að ráða hringnum þar sem þetta var á hennar heimavelli. Þegar við vorum u.þ.b. hálfnuð var ákveðið að lengja hringinn aðeins og hlaupið eftir Búrfellsgjánni alla leiðina upp á Búrfell. Svo var farið aftur að sundlauginni.
Flott æfing sem tók tæplega tvo og hálfan tíma. Hlaupið á mjúku undirlendi allann tímann, smá offroad og fjallganga. Hruflað hné, tvær magalendingar, rifinn jakki, hellaferð o.fl. var meðal annars það sem gerðist. Var það samþykkt einróma að eingöngu verður hlaupið í bæjarhlutum hjá þeim sem að mæta á laugadagsæfingarnar og vonandi hvetur það fleiri til að mæta á þessar æfingar.
Kveðja,
Reynir

Monday, October 11, 2010
Brekkusprettir 11. október 2010
Hittingur var við Ármannsheimilið. Mættir voru Bjössi, Danni, Höskuldur, Jónína, Kristján, Margeir, Rafn, Reynir og Siggi. Hefðbundin upphitun um Laugadalinn og farið að sömu brekku og í síðustu viku. 10 sett að hætti Sigga. Fyrir þá sem eru að deyja úr forvitni leit þetta einhvern veginn svona út:
1. sett - ¼ hratt, hægt niður - ½ hratt, hægt niður - ¾ hratt, hægt niður - hratt alla leið, hægt niður
2. sett - ¼ hægt, hratt niður - ½ hægt, hratt niður - ¾ hægt, hratt niður - hægt alla leið, hratt niður
3. sett - ¼ hægt - ¼ hratt - ¼ hægt - ¼ hratt - hægt alla leið niður
4. sett - ¼ hratt - ¼ hægt - ¼ hratt - ¼ hægt - hratt alla leið niður
5. sett - hratt alla leið upp, hægt niður
6. sett - ¼ hratt, hægt niður - ½ hratt, hægt niður - ¾ hratt, hægt niður - hratt alla leið, hægt niður
7. sett - ¼ hægt, hratt niður - ½ hægt, hratt niður - ¾ hægt, hratt niður - hægt alla leið, hratt niður
8. sett - ¼ hægt - ¼ hratt - ¼ hægt - ¼ hratt - hægt alla leið niður
9. sett - ¼ hratt - ¼ hægt - ¼ hratt - ¼ hægt - hratt alla leið niður
10. sett - hratt alla leið upp, hægt niður
Vonandi er þetta ekki of flókið en fínasta æfing við frábærar aðstæður.
Kveðja úr Vesturbænum,

Saturday, October 9, 2010
Afrekshópur á nýjum slóðum
Mættir: Daníel, Parísar-Bjössi (já, ekkert Barcelona), Reynir, New-York-Viktor, undirrituð ... og svo kom Siggi tættur og úfinn eftir útstáelsi næturinnar :D
Veður: Tja, ég get ekki lýst því betur en svo að veðrið var STÓRFENGLEGT. Algjört prima hlaupaveður. Logn, heiðskírt og ca 8 stiga hiti þegar við lögðum í hann kl. 8:11 frá Vesturbæjarlaug, höfuðstöðvum Hlaupasamtaka Lýðveldisins.
Dagskráin hljóðaði upp á 60-120 mínútna hlaup með einu fráviki því Viktor ætlaði að trítla heila 35 km. Hann þarf jú að vera vel undirbúinn fyrir NY-maraþonið sem fer fram 7. nóvember. Það þarf að sýna hinum alþjóðlega hlaupaheimi hvar Davíð keypti ölið!! ... og það mun Viktor gera fyrir hönd Afrekshópsins.
Sigurður hinn úfni leiddi hópinn út á nes, nánar tiltekið í Rokland. Það var þó ekki raunin í dag því annað eins logn hefur ekki sést á nesinu í háa herrans tíð. Svo mikið var lognið, að hópurinn lagði í það þrekvirki að hlaupa í kringum golfvöllinn. Þvílík fegurð, þvílíkt veður, þvílíkur morgunn.
Undirrituð var ein á báti mjög fljótt (fastur liður eins og vanalega) og sá undir iljar hlaupafélagana fram undir golfvöll, þá var hún orðin ein. Þegar komið var að JL-húsinu hljóp hún Parísar-Bjössa uppi þar sem hann stóð við teygjuæfingar. Kappinn bar við beinhimnubólgu og mátti sjá að maðurinn var þjáður. Beinhimnubólga er ekki af hinu góða og munum við Reynir leggja áherslu á að Parísar-Bjössi beri virðingu fyrir þessum krankleika, annars gæti farið fyrir honum eins og Höskuldi hinum yngri Borgþórssyni sem hljóp beinhimnubólguna í álagsbrot. Við viljum engin slík meiðsl (eða nokkur önnur) inn í okkar ágæta hóp!
Það lágu 13 km hjá undirritaðri, 18 km hjá Reyni og Parísar-Bjössí ætlaði að harka upp í 15 km. Restin af hópnum er ein til frásagnar um sína vegferð í dag.

Thursday, October 7, 2010
Tempó á landsleiksdegi í Laugardal
Mættir: Daníel, Jóhanna, Jónína, Reynir, Barcelona-Bjössi (þó ekki lengur), Kristján, Rafn, Viktor og undirrituð.
Veðurskilyrði: Logn, bjart og hlýtt veður. Yndisgott og fallegt haustveður.
Áætlun þjálfara hljóðaði upp á 4,25 km tempó. Gott og vel. Við lögðum upp frá Laugardalslaug. Þegar 478 metrar voru í valnum áttaði þjálfari vor sig á því að Jóhanna væri týnd og tröllum gefin! Hún var HORFIN. Er hér með lýst eftir henni því til að gera langa sögu stutta fannst kvinnan ekki á þessari æfingu. Síðast þegar sást til hennar var hún í almennum hlaupagalla íklædd skvísujakka yfir. Jóhanna er ca 160 cm á hæð, grannvaxin og með dökkt hár. Ábendingar berist til Afrekshópsmeðlima.
Við vorum þó ekki það sorgmædd að æfingin héldi ekki áfram. Nei, engin miskunn.
Tempóið var tekið með trompi og mátti sjá Afrekshópshlaupara þeysast sem eldingar um Laugardalinn. Þvílíkur hraði, þvílíkur stíll! Þetta sést ekki á hverjum degi.
Að æfingu lokinni þóttist þjálfari vera löglega afskaður vegna landsleiks og tók ekki niðurskokk með restinni af hópnum. Við hin jogguðum huggulegt niðurskokk og skeggræddum um heimsins mál að því loknu.
Næsta æfing á laugardag ... og haldið ykkur fast ..... því upphafspunktur verður Vesturbæjarlaugin! Eins gott að meðlimir Hlaupasamtaka Lýðveldisins byrja sitt hlaup ekki fyrr en 9:30 því við gætum verið handtekin fyrir að ryðjast inn á þeirra yfirráðasvæði.

Tuesday, October 5, 2010
Christine Buchholz í 100 km hópinn
Afrekskonan Christine tók þátt í hinu magnaða 100 km hlaupi Madrid-Segovia sl laugardag og hljóp Christine vegalengdina á fjórtán og hálfri klukkustund og var meðal fyrstu kvenna í mark.
Til hamingju með árangurinn.

Sjá:
http://grindavik.is/v/6241
Siggi
Til hamingju með árangurinn.

Sjá:
http://grindavik.is/v/6241
Siggi
Brekkuæfing 5/10-10
Afreksæfing sem hófst við Ármannsheimilið og við tók gífulega góðir brekkusprettir í grasbrekku í Laugardalnum. 10 lotur af misstuttum sprettum upp og niður brekkuna sem tóku vel á. Um var að ræða nýja mjög skemmtilega æfingu sem við fáum vonandi að upplifa aftur á næstu mánuðum. Veðrið var einnig frábært. Samtals 7 km sprettir og 6 km upphitun og niðurskokk. Mjög sáttur við æfinguna og kominn í gírinn eftir UTMB. Siggi |
Saturday, October 2, 2010
Laugardagshlaup á slóðum Valsara
Mættir: Kristján, Siggi, Margeir, Rafn, Barcelona-Bjössi og undirrituð..... auk tveggja umkomulausra Valshlaupara sem áttu sér einskis von.
Veður: Yndisfagurt haustveður. Milt og gott og hlýtt!! Smá andvarið á Kársnesinu en ekkert til að tala um.
Í dag var búið að boða mætingu við höfuðstöðvar Vals-Skokks. Mæting var dræm en komst ekki með tærnar þar sem Valshópurinn hafði hælana því mæting þar er vart frásagnarverð. Eingöngu 2 aðilar af þeim annars fríða flokki sá sér fært að mæta í dag.
Við í Afrekshópnum tókum Valshlauparana undir okkar arma og gáfum þeim náðasamlegast leyfi til að hlaupa með okkur. Siggi fjallahlaupari ákvað að Kársnesið yrði staðurinn í dag og var það samþykkt möglunarlaust.
Það var temmilegur hraði á fólki í dag, svo mikill, að undirrituð rak mjög fljótlega lestina. Örskömmu síðar var hún orðin umkomulaus og sá fram á að hún þyrfti að trítla fyrir Kársnesið alein. Það varð þó ekki að veruleika þar sem þrír vaskir félagar hennar, Siggi fjallahlaupari, Margeir maraþon og Kristján Fjölnishlaupsafreksmaður, sneru við til að tryggja það að henni hefði ekki verið rænt af öðrum hlaupahópum..... fjöldi slíkra hópa er mikill hér í borg og oftar en ekki eru þeir á kreiki snemma á laugardagsmorgnum. Sumir hverjir eru mjög skæðir í hlaupararánum.
Yfirboðari Afrekshópsins hafði sett 60 mínútur + á plan í dag og var því fylgt eftir í hvívetna. Rafn og undirrituð tóku strikið yfir Kársnesið til að hafa þetta sem styst í dag á meðan restin fór upp í Kópavogsdal ... og Guð einn veit hvað dreif á dag þeirra þegar við urðum viðskila. Þeir eru einir til frásagnar.

Subscribe to:
Posts (Atom)