Saturday, October 9, 2010

Afrekshópur á nýjum slóðum

Mættir: Daníel, Parísar-Bjössi (já, ekkert Barcelona), Reynir, New-York-Viktor, undirrituð ... og svo kom Siggi tættur og úfinn eftir útstáelsi næturinnar :D

Veður: Tja, ég get ekki lýst því betur en svo að veðrið var STÓRFENGLEGT. Algjört prima hlaupaveður. Logn, heiðskírt og ca 8 stiga hiti þegar við lögðum í hann kl. 8:11 frá Vesturbæjarlaug, höfuðstöðvum Hlaupasamtaka Lýðveldisins.

Dagskráin hljóðaði upp á 60-120 mínútna hlaup með einu fráviki því Viktor ætlaði að trítla heila 35 km. Hann þarf jú að vera vel undirbúinn fyrir NY-maraþonið sem fer fram 7. nóvember. Það þarf að sýna hinum alþjóðlega hlaupaheimi hvar Davíð keypti ölið!! ... og það mun Viktor gera fyrir hönd Afrekshópsins.

Sigurður hinn úfni leiddi hópinn út á nes, nánar tiltekið í Rokland. Það var þó ekki raunin í dag því annað eins logn hefur ekki sést á nesinu í háa herrans tíð. Svo mikið var lognið, að hópurinn lagði í það þrekvirki að hlaupa í kringum golfvöllinn. Þvílík fegurð, þvílíkt veður, þvílíkur morgunn.

Undirrituð var ein á báti mjög fljótt (fastur liður eins og vanalega) og sá undir iljar hlaupafélagana fram undir golfvöll, þá var hún orðin ein. Þegar komið var að JL-húsinu hljóp hún Parísar-Bjössa uppi þar sem hann stóð við teygjuæfingar. Kappinn bar við beinhimnubólgu og mátti sjá að maðurinn var þjáður. Beinhimnubólga er ekki af hinu góða og munum við Reynir leggja áherslu á að Parísar-Bjössi beri virðingu fyrir þessum krankleika, annars gæti farið fyrir honum eins og Höskuldi hinum yngri Borgþórssyni sem hljóp beinhimnubólguna í álagsbrot. Við viljum engin slík meiðsl (eða nokkur önnur) inn í okkar ágæta hóp!

Það lágu 13 km hjá undirritaðri, 18 km hjá Reyni og Parísar-Bjössí ætlaði að harka upp í 15 km. Restin af hópnum er ein til frásagnar um sína vegferð í dag.

Með vinsemd og virðingu,
Helga Þóra

No comments:

Post a Comment